Krár og skemmtistaðir lokaðir til 1. júní

Skemmti­staðir, krár og spila­salir verða lok­aðir til 1. júní. Sömu sögu er að segja um sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar.

Fjölda­mörk sam­komu­banns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí, unnt verður að opna fram­halds- og háskóla og ýmsir þjón­ustu­veit­endur geta á ný tekið á móti við­skipta­vinum. Skemmti­staðir, krár og spila­salir verða hins vegar áfram lokuð til 1. júní. Þá skulu aðrir veit­inga­staðir þar sem heim­il­aðar eru áfeng­is­veit­ingar ekki hafa opið lengur en til kl. 23.00 alla daga vik­unnar.

Þetta er meðal þess sem leiðir af nýrri aug­lýs­ingu heil­brigð­is­ráð­herra um tak­mörkun á sam­komum vegna far­sóttar. Rýmkun á reglum um tak­mark­anir á skóla­haldi og sam­komum er í sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­læknis. Aug­lýs­ingin tekur gildi 4. Maí og gildir til mið­nættis þann 1. júní.

[adspot]

Frá 4. maí falla alveg niður tak­mark­anir á fjölda nem­enda í leik- og grunn­skólum og einnig fjölda­tak­mark­anir við íþrótta­iðkun og æsku­lýðs­starf barna á leik- og grunn­skóla­aldri.

Í aug­lýs­ing­unni kemur einnig fram að sund­laugar og hús­næði lík­ams­rækt­ar­stöðva skulu áfram vera lokuð almenn­ingi. Sund­laugar mega þó hafa opið fyrir skóla­sund og skipu­lagt íþrótta­starf.

Æfingar og keppnir skipu­lagðs íþrótta­starfs eru heim­ilar án áhorf­enda með ákveðnum tak­mörk­unum.

[links]Í skipu­lögðu íþrótta­starfi skulu snert­ingar vera óheim­ilar og halda skal tveggja metra bili á milli ein­stak­linga. Notkun á sam­eig­in­legum bún­aði, einkum þeim sem snertur er með höndum, skal haldið í lág­marki og ber að sótt­hreinsa hann á milli notk­unar.

Óheimilt er að nota bún­ings­klefa, sturtu­klefa og aðra inni­að­stöðu en íþrótta­sal og sal­ernis­aðstöðu.

Við skipu­lagt íþrótta­starf inn­an­dyra mega ekki fleiri en fjórir ein­stak­lingar æfa eða leika saman í einu rými, sem skal vera a.m.k. 800 m².

Við skipu­lagt íþrótta­starf utandyra mega ekki fleiri en sjö ein­stak­lingar æfa eða leika saman í hópi. Séu fleiri hópar við æfingar á sama svæði skal miða við að hver hópur hafi um 2.000 m² til umráða.

Sem fyrr segir gilda þessar tak­mark­anir ekki meðal barna á leik- og grunn­skóla­aldri.

Hér er aug­lýs­ingin í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár