Aukinn þrýstingur á að lífeyrissjóðir verði virkir hluthafar

Hag­fræð­ingur segir vax­andi ójöfnuð og aukna lofts­lags­á­hættu hafa leitt til ákalls um að líf­eyr­is­sjóðir sinni sínum upp­runa­legum til­gangi sem virkir hlut­hafar í skráðum og óskráðum félögum.

Guðrún Johnsen, hagfræðingur og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði verzlunarmanna.
Guðrún Johnsen, hag­fræð­ingur og stjórn­ar­maður í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna. Mynd: Arion banki

Upp­runa­legt hlut­verk líf­eyr­is­sjóða á Norð­ur­löndum var að aga iðn­rek­endur og hafa áhrif á stjórn­ar­hætti fyr­ir­tækja sem virkir hlut­hafar, en auk­inn þrýst­ingur hefur mynd­ast á síð­ustu árum á að þeir sinni því aftur. Þetta skrifar Guðrún Johnsen, lektor í CBS og stjórn­ar­maður í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Stofnað út frá velferðarríkinu

Samkvæmt Guðrúnu eiga líf­eyr­is­sjóð­irnir rætur sínar að rekja til stofn­unar vel­ferð­ar­rík­is­ins á Norð­ur­löndum. Í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Finn­landi hefur þessi þróun verið leidd áfram af jafn­að­ar­manna­flokkum, á meðan vel­ferð­ar­ríki var sett saman hér­lendis vegna útbreiddrar aðildar launa­fólks að verka­lýðs­fé­lögum.

Eftir stofnun vel­ferð­ar­rík­is­ins hafi jafn­að­ar­manna­flokkar svo hvatt til svo­kall­aðs atvinnu­lýð­ræðis, sem myndi tryggja völd launa­fólks í fram­leiðslu fyr­ir­tækja sem þau störf­uðu í án þess að fyr­ir­tækin yrðu þjóð­nýtt. Slíkt fyr­ir­komu­lag var þó ekki tekið upp, en starfs­menn stærri fyr­ir­tækja í öllum Norð­ur­löndum utan Íslands öðl­uð­ust þó rétt til að til­nefna full­trúa sína í stjórn eig­ins fyr­ir­tækis á sjö­unda ára­tugnum.

Þar að auki náð­ist sam­komu­lag um að launa­fólk safn­aði smátt og smátt í líf­eyr­is­sjóði sem myndi tryggja áhrif launa­fólks í stjórnun fyr­ir­tækj­anna líkt og aðrir fjár­magns­eig­endur. „Því var upp­runa­legt hlut­verk líf­eyr­is­sjóða einnig að aga iðn­rek­endur með áhrifum sínum á stjórn­ar­hætti fyr­ir­tækja, sem full­trúar fjár­magns­eig­enda og virkir hlut­hafar í fyr­ir­tækjum,“ skrifar Guðrún í grein sinni.

Breyttar áherslur með aukinni trú á markaðinn

Á níunda ára­tugnum breytt­ust hins vegar áherslur sjóð­anna, í kjöl­far þess að kenn­ingar um að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn agaði stjórn­endur fyr­ir­tækja sjálf­krafa sóttu í sig veðrið. Samkvæmt Guðrúnu virð­ast líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa tekið mið af þessum breyttu við­horfum til skil­virkni mark­aða með því að láta lítið til sín taka við að móta stjórn­ar­hætti félag­anna og ein­beita sér fremur að því hvenær og hvaða hluta­bréf ætti að kaupa og selja fyrir hönd sjóð­fé­laga.

Á síð­ustu ára­tugum hafa hins vegar nýrri kenn­ingar sýnt fram á að hluta­bréfa­mark­aðir séu ekki fylli­lega skil­virkir, auk þess sem Guðrún segir að dag­legar fréttir af umboðs­svikum í kringum fyr­ir­tækja­rekstur bendi til að víða skorti vand­aða stjórn­ar­hætti sem líf­eyr­is­sjóð­irnir áttu meðal ann­ars að stuðla að.

Einnig segir hún að gæta megi við­horfs­breyt­ingu gagn­vart hlut­verki líf­eyr­is­sjóða á síð­ustu árum, sam­hliða auknum ójöfn­uði og meiri lofts­lags­á­hættu. Samkvæmt henni hafa augu fólks beinst að sjóð­unum um að þeir sinni sínum upp­runa­lega til­gangi af ein­urð og beiti afli sínu sem hlut­hafar og fjár­magns­eig­endur til að hafa áhrif á við­skipta­hætti fyr­ir­tækja.

Hægt er að lesa grein Guðrúnar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár