Benedikt gagnrýnir vinnubrögð hæfisnefndar um skipun seðlabankastjóri

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, hefur dregið umsókn sína um stöðu seðla­banka­stjóra til baka. Hann segir vinnu­brögð hæf­is­nefndar um skipun seðla­banka­stjóra alls ekki stand­ast þá kröfu til stjórn­sýslu sem við­hafa þurfi.

Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármálaráðherra, hefur dregið umsókn sína um stöðu seðlabankastjóra til baka. Í bréfi til Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, gagnrýnir hann vinnubrögð hæfisnefndar um skipan í embætti seðlabankastjóri og segir hana vanrækja að horfa til þess við mat á umsækjendum að sameina eigi Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið. Frá þessu er greint Fréttablaðinu í dag.

Hæfisnefndin lítur ekki til þeirra breytinga sem boðaðar hafa verið

Í bréfinu segir Benedikt að meginverkefni nýs seðlabankastjóra verði að leiða sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um næstu mánaðamót, auk annarra breytinga sem boðaðir eru í lagafrumvarpi um breytingar á Seðlabankanum. Hann segir hins vegar að nefndin miða ekki við þær breytingar í umsögn sinni.

„Í ljósi þess að meginverkefni nýs seðlabankastjóra verður að leiða breytingar á þessu mikilvæga sviði kom það mér í opna skjöldu þegar hæfisnefnd um stöðuna tjáði mér í upphafi viðtals að hún myndi aðeins miða sína umsögn við starfið eins og það hefur verið og ekki líta til þeirra breytinga sem boðaðar hafa verið“ skrifar Benedikt í bréfinu. Hann segir jafnframt að formaður nefndarinnar hafi sagt að það gæti verið Katrín líti þó til breytinganna. [adspot]

Þannig segir Benedikt að vinnubrögð nefndarinnar standist alls ekki þá kröfu til stjórnsýslu sem viðhafa þurfi. „Formaður nefndarinnar boðar í viðtali að önnur viðmið kunni að ríkja hjá þeim sem skipar í stöðuna en nefndinni sem fjallar um hæfið. Því má spyrja til hvers er nefnd sem á að vera ráðherranum til aðstoðar, ef hann notar svo allt önnur viðmið?“ spyr Benedikt í bréfinu og kallar eftir annarri skammtímalausn í því skyni að störf nefndarinnar valdi því ekki að gerð verði alvarleg stjórnsýslumistökum.

Skipun seðlabankastjóra rennur út í ágúst

[links] Skipunartími Más Guðmunds­son­ar seðlabanka­stjóra renn­ur út þann 20. ágúst næstkomandi. For­sæt­is­ráðuneyt­inu hafa borist 16 um­sókn­ir um embætti seðlabanka­stjóra sem aug­lýst var laust til um­sókn­ar 20. fe­brú­ar Seðlabanka­stjór­ar eru skipaðir til fimm ára í senn og ein­ung­is má skipa þann sama tvisvar sinn­um.

For­maður hæfisnefnd­ar­innar er Sig­ríður Bene­dikts­dótt­ir, hag­fræð­ingur við Yale háskóla og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands. Sig­ríður sat einnig í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um banka­hrunið sem skil­aði umfangs­mik­illi skýrslu í apríl 2010. Með henni í nefnd­inni eru Eyjólfur Guð­munds­son, rektor Háskól­ans á Akur­eyri, til­nefndur af sam­starfs­nefnd háskóla­stigs­ins, og Þór­unn Guð­munds­dótt­ir, hæsta­rétt­ar­lög­maður og vara­for­maður banka­ráðs, til­nefnd af banka­ráði Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár