Boðar aðgerðir til að mæta tæknibreytingum

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra boð­aði ýmsar aðgerðir til að mæta kom­andi tækni­breyt­ingum á sam­fé­lag­inu í ræðu sinni á Við­skipta­þingi í dag og sett þær á dag­skrá ólíkra vett­vanga.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra boð­aði ýmsar aðgerðir til að mæta kom­andi tækni­breyt­ingum á sam­fé­lag­inu í ræðu sinni á Við­skipta­þingi í dag.

Katrín sagði sam­fé­lagið vera að breyt­ast og setja þurfi mark­mið til að hægt sé að nýta hraðar tækni­breyt­ingar til góðs fyrir okkur öll. Taka þurfi þátt í rann­sóknum og þróun á gervi­greind og sjálf­virkni, tryggja menntun og fræðslu í takt við nýja tíma, tryggja ábyrgan og rétt­látan vinnu­markað, rétt­indi launa­fólks og nýta tækni­breyt­ingar til að bæta kjör. Taka þurfi for­ystu í að end­ur­skoða lög­gjöf og reglu­verk sam­fé­lags­ins til að mæta tækni­breyt­ingum.

[links]Í þessu skyni hefur for­sæt­is­ráð­herra sett tækni­breyt­ingar á dag­skrá nokk­urra ólíkra vett­vanga. Þannig hefur hún óskað eftir því að Sam­ráðs­vett­vangur um aukna hag­sæld taki fjórðu iðn­bylt­ing­una á dag­skrá og vinni aðgerð­ar­á­ætlun fyrir íslenskt atvinnu­líf og vinnu­markað. Sam­ráðs­vett­vang­ur­inn er undir for­ystu Katrínar Olgu Jóhann­es­dóttur, for­manns Við­skipta­ráðs og Rögnu Árna­dóttur, aðstoð­ar­for­stjóra Lands­virkj­unar, en þar sitja einni full­trúar stjórn­mála­flokka, atvinnu­lífs­ins og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Sam­ráðs­vett­vang­ur­inn var settur á lagg­irnar árið 2013 að til­lögu alþjóð­lega ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins McKinsey & Company.

Þá verður þáttur vís­inda og rann­sókna settur á dag­skrá Vísinda- og tækni­ráðs. Katrín sagði að þar þurfi að horfa til lengri tíma, gera áætl­anir um menntun frá fyrstu skóla­stigum, grunn­rann­sóknir og hvernig við getum tryggt að nýsköpun á þessu sviði eins og raunar fleirum, geti vaxið og dafnað hér á landi. Vísinda- og tækni­ráð starfar sam­kvæmt sam­nefndum lögum. For­sæt­is­ráð­herra er for­maður ráðs­ins en þar sitja einnig mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Formaður skipar tvo menn í ráðið auk þess sem 14 full­trúar eru til­nefndir í ráðið af ráðu­neytum, háskólum og aðilum vinnu­mark­að­ar­ins.

Að auki verður sett á lagg­irnar svokölluð fram­tíð­ar­nefnd á Alþingi, eins og kveðið var á um í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Þessi nefnd verður að sögn Katrínar að finnskri fyr­ir­mynd en þar hefur í um 25 ár verið starf­andi nefnd með þing­mönnum úr öllum flokkum sem er eins­konar hug­veita þings­ins um fram­tíð­ar­mál­efni. Fram­tíð­ar­nefnd­inni í Finn­landi hefur verið ætlað að skapa umræðu við stjórn­völd um tæki­færi og ógn­anir til fram­tíðar og senda reglu­lega frá sér vandað efni um fram­tíð­ar­mál­efni. „Starf finnsku nefnd­ar­innar hefur reynst mik­il­vægt við að for­gangs­raða mark­miðum sem Finnar setja á dag­skrá en þeir hafa að mörgu leyti verið til fyr­ir­myndar með því að vinna mark­visst að því að efla stöðu finnsks sam­fé­lags á mik­il­vægum fram­fara­sviðum,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár