Ananassala á Seltjarnarnesi jókst um 27%

Um eitt tonn af ananas seld­ist í búðum Hagkaups í jan­úar. Mikil sveifla var í söl­unni á milli búða miðað við sama mánuð í fyrra.

Talið er að það hafi verið Kristófer Kólumbus sem kynnti Evrópubúa fyrir ananas. Hann var fyrstu áratugina aðeins á færi fína fólkins að neyta og framreiddur í veislum þess enda munaður.
Talið er að það hafi verið Krist­ó­fer Kólumbus sem kynnti Evr­ópu­búa fyrir ananas. Hann var fyrstu ára­tug­ina aðeins á færi fína fólk­ins að neyta og fram­reiddur í veislum þess enda mun­aður. Mynd: Bára Huld Beck

Sala á ananas jókst um 27% í Hagkaup á Sel­tjarn­ar­nesi í jan­úar miðað við sama mánuð í fyrra. Í kílóum talið er sam­an­lögð ananas­sala í versl­unum Hagkaups á pari við jan­ú­ar­söl­una í fyrra en Sigurður Reyn­alds­son fram­kvæmda­stjóri segir í sam­tali við Kjarnann að það vekja athygli að sjá megi „sveiflu í söl­unni á milli búða“.

Það var ekki aðeins sölu­aukn­ing í versl­un­inni á Eiðis­torgi heldur einnig í Smára­lind, í Spöng og Kringl­unni. Í Smára­lind jókst salan um 54% milli jan­úar í ár og í fyrra. Í Kringl­unni jókst hún um heil 295% sem skýrist meðal ann­ars af því að ananas­salan í jan­úar 2019 var þar óvenju lítil en er nú komin á rétt ról.

Sveiflan er hins vegar í hina átt­ina í versl­unum Hagkaups í Garðabæ og í Skeif­unni. Í búð­inni í Garðabæ var salan 21% minni en hún var á sama tíma á síð­asta ári og 16% minni í Skeif­unni, elstu verslun keðj­unnar. Í þessum tveimur búðum er ananas­salan þó alla jafna mest. „Það er því spurn­ing hvort menn séu að færa anana­svið­skiptin milli búða,“ segir Sigurður.

Tíst Auðar Jóns­dóttur rit­höf­undar í byrjun jan­úar, þar sem ananas kom við sögu, vakti gríð­ar­lega athygli. Þar vitn­aði Auður í umhyggju­sama vin­konu sína sem sagði að ef fólk setti ananas í inn­kaupa­körf­una í Hagkaup úti á Nesi gæfi það merki um að það væri til í maka­skipti (e. swing).

Margir frétta­miðlar vöktu athygli á færslu Auðar og fólk var dug­legt að deila skoð­unum sínum á mál­inu á sam­fé­lags­miðlum. Margir létu mynda sig með ananas og svo hefur ávöxt­ur­inn góm­sæti spilað hlut­verk á ein­hverjum þorra­blótum síð­ustu vikur.

Ananas er hita­beltis­á­vöxtur með safa­ríkum, ætum kjarna. Hann er upp­runn­inn í Suður-Ameríku þar sem hann hefur verið rækt­aður í aldir. Ananas­ræktun hófst í Evrópu á sautj­ándu öld og var ávöxt­ur­inn lengi vel tákn um vel­megun.

Hagkaup flytur ananas aðal­lega inn frá Kosta Ríka. Í jan­úar voru seld um 1.000 kíló, eitt tonn, af þessum ávexti í versl­unum þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár