Verðbólga yfir markmiði annað skiptið á fjórum árum

Tólf mán­aða verð­bólga mæld­ist í 2,8% í júní síð­ast­liðnum, en þetta er í annað skiptið á fjórum árum sem hún mælist yfir mark­miði Seðla­bank­ans.

Verð á flugferðum hækkaði óvænt í júní í ár.
Verð á flug­ferðum hækk­aði óvænt í júní í ár. Mynd: Pexels

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,62% milli mán­aða í júní sam­kvæmt nýbirtum tölum Hagstofu. Með því hækk­aði árs­verð­bólgan úr 2% í 2,6%. Árs­verð­bólgan er því komin yfir yfir­lýst verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans, í annað skiptið á fjórum árum.

Flugferðir dýrari

Samkvæmt mark­aðs­punktum Arion banka voru verð­bólgu­spár grein­ing­ar­að­ila nokkuð undir mæl­ingu Hagstofu, eða á bil­inu 0,3-0,4%. Þá reynd­ust mæl­ingar á verði hús­næðis og flug­far­gjöldum til útlanda helst vera yfir vænt­ingum. Flug­far­gjöld til útlanda hækk­uðu um 15,2%, nær þrefalt meira en búist var við. Sömu­leiðis hækk­aði fast­eigna­verð lít­il­lega milli mán­aða, en það hefur staðið í stað og lækkað nokkuð á und­an­förnum miss­erum.

Arion nefnir einnig áhrif inn­fluttra vara á verð­bólg­una, en hún hefur síð­ustu árin dregið neyslu­verð niður á Íslandi sam­hliða því sem fast­eigna­mark­að­ur­inn hefur haft jákvæð áhrif á verð. Áhrif beggja þess­ara þátta virð­ast hins vegar hafa dvínað nokkuð nýlega með hærri olíu­verði og kulnun á fast­eigna­mark­aðnum.

Húsaleigan stríðir Landsbankanum

Samkvæmt grein­ingu Hag­fræði­deildar Lands­bank­ans var stærsta mis­ræmið milli spár bank­ans og mæl­ingar Hagstofu í liðnum reiknuð húsa­leiga. Þar var hækkun á húsa­leigu 1,1% milli mán­aða, sem var þre­föld á við spá bank­ans. Einnig hafði hækkun á flug­far­gjöldum og heims­mark­aðs­verði á olíu haft áhrif, sem og hækkun fast­eigna­verðs.

[links]Þetta er í annað skiptið á rúmum fjórum árum sem tólf mán­aða verð­bólga hefur farið yfir 2,5% verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans, en hún hefur hald­ist lág frá fyrri part árs­ins 2014 sam­hliða geng­is­hækkun krón­unnar og lækk­andi heims­mark­aðs­verði á olíu.

Á síð­ustu tíu mán­uðum hefur olíu­verð hins vegar hækkað nokkuð hratt og verð á inn­fluttum vörum sömu­leiðis. Raun­gengi krón­unnar hefur þó hald­ist til­tölu­lega stöðugt á sama tíma­bili, þrátt fyrir mikla veik­ingu á fyrri hluta síð­asta sum­ars.

Nýbirtar tölur eru í nokkru sam­ræmi við spár Seðla­bank­ans um verð­bólgu fyrir annan árs­fjórð­ung, en í nýjasta hefti Pen­inga­mála sem kom út í maí spáði bank­inn því að hún yrði að með­al­tali 2,4% þennan árs­fjórð­ung, en auk­ist upp í 2,9% á síð­asta árs­fjórð­ungi. Þá var gert ráð fyrir því að verð­bólga færi minnk­andi að verð­bólgu­mark­mið­inu á næsta ári og hald­ist í grennd við það út spá­tím­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár