Samþykkja að lengja og hækka gjaldskyldu bílastæða

Skipu­lags- og sam­göngu­ráð Reykja­vík­ur­borgar hefur sam­þykkt að lengja gjald­skyldu á gjald­svæði 1 til klukkan átta á virkum dögum og laug­ar­dögum sem og að hefja gjald­skyldu á sunnu­dögum. Ráðið sam­þykkti einnig að hækka gjald­skrár á gjald­svæð­unum fjórum.

Skipu­lags- og sam­göngu­ráð Reykja­vík­ur­borgar hefur sam­þykkt þrjár til­lögur þess efnis að hækka gjald­skrá, stækka gjald­skyld­svæði og lengja gjald­skyldu­tíma bíl­stæða í mið­bænum. Ráðið sam­þykkti að lengja gjald­skyldu á gjald­svæði 1 til átta á virkum dögum og laug­ar­dögum. Auk þess var sam­þykkt að hefja gjald­skyldu á sunnu­dögum og að gjald­skrá á gjald­svæð­unum fjórum verði hækkuð.

Gjaldskylda á sunnudögum

Þrjár til­lögur voru sam­þykktar á fundiskipu­lags- og sam­göngu­ráðs í gær með fyr­ir­vara um sam­þykki lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Til­lög­urnar þrjár voru sam­þykktar með atkvæðum full­trúa Pírata, full­trúa Við­reisnar og full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sátu hjá.

Ráðið sam­þykkti að lengja gjald­skyldu­tíma á gjald­svæði 1 á virkum dögum og laug­ar­dögum. Samþykkt var að gjald­skyldu­tími á gjald­svæði 1 verði lengdur til klukkan 20:00 á virkum dögum og á laug­ar­dögum. Í dag er gjald­skylda til klukkan 18:00 á virkum dögum og til klukkan 16:00 á laug­ar­dögum.

Auk þess var sam­þykkt að hefja gjald­skyldu á gjald­svæði 1 á sunnu­dögum frá klukkan 10:00 til klukkan 16:00.

Klukkutíminn á gjaldsvæði 1 kostar nú 400 krónur

Önnur til­laga sneri að hækka gjald­skrá á öllum gjald­svæð­unum fjórum. Ráðið sam­þykkti að á gjald­svæði 1 verði gjaldið nú 400 krónur á klukku­stund, 200 krónur á klukku­stund á gjald­svæði 2, 100 krónur á klukku­stund á gjald­svæði 3 og 200 krónur á klukku­stund á gjald­svæði 4.

Þá var einnig sam­þykkt til­laga um að gjald­svæði 1 verði stækkað, þar á meðal að hluti af Borg­ar­túni verði gert að gjald­svæði 1.

Harkalegar aðgerðir á meðan Strætó er ekki fýsilegur kostur

Ásgerður Jóna Flosa­dóttir, áheyrn­ar­full­trúi Flokks fólks­ins, bók­aði á fund­inum að til­lög­urnar þrjár sner­ust um að gera bíla­fólki eins erfitt fyrir hægt væri að koma bílnum sínum í bæinn. Hún sagði að annar ávinn­ingur væri ekki sýni­legur.

„Afleið­ingar munu ekki standa á sér, æ fleiri Íslend­ingar, íbúar úthverfa munu hætta leggja leið sína í bæinn. Þetta eru harka­legar aðgerðir á meðan ekki er boðið upp á Strætó sem fýsi­legan kost. Flokkur fólks­ins vill ítreka að borgin er fyrir alla, líka þá sem koma á bíl sínum,“ segir í bókun Ásgerðar.

Full­trúar Pírata. full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar og full­trúi Við­reisnar gagn­bók­uðu bókun Ásgerðar og sögðu að stækkun gjald­skyldra svæða og leng­ing gjald­skyldu­tíma sé í sam­ræmi við þá stefnu sem mótuð hefur verið og útfærð í stýri­hópi um bíla­stæða­mál.


„Mark­miðin eru: betri stýr­ing umferðar, hag­kvæm­ari nýt­ing stæða og auknar tekjur. Sann­gjörn gjald­taka hvetur til fjöl­breytt­ari ferða­máta og minnkar umfang þess að fal­legt borg­ar­rými sé nýtt sem lang­tíma­geymslu­svæði fyrir bíla,“ segir í bók­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár