Geta veirusýkingar ýtt undir þróun Alzheimer?

Rannsókn sýnir að þeir sem fá lyfja­gjöf við herpes-veirunni eru ólík­legri en aðrir til að þróa með sér Alzheimer-sjúk­dóm­inn.

Veirusýkingar gætu átt þátt í Alzheimer
Veiru­sýk­ingar gætu átt þátt í Alzheimer Rann­sóknir renna stoðum undir kenn­ing­una.

Lengi hefur því verið haldið fram að ein­hvers konar teng­ing geti legið á milli veiru­sýk­ingar og Alzheimer-sjúk­dóms­ins. Til að skil­greina hvort og þá hvaða sam­band gæti verið þarna á milli liggja fyrir fjöl­margar vís­inda­greinar sem styðja að minnsta kosti þá stað­reynd að þarna á milli er fylgni.

Alzheimer’s er þó nokkuð algengur tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dómur. Aðal­ein­kenni sjúk­dóms­ins eru minnistap og minnkuð geta fólks til að átta sig á aðstæðum. Þetta getur lýst sér þannig að fólk þekkir ekki lengur staði sem það er vant, áttar sig ekki á því hvort það er innan um ókunn­uga eða fjöl­skyldu­með­limi og auk þessa geta orðið miklar skap­gerð­ar­breyt­ingar.

Helstu líf­eðl­is­fræði­legu breyt­ingar sem eiga sér stað í heilum Alzheimer-sjúk­linga eru útfell­ingar prótíns sem kall­ast beta-amyloid og upp­söfnun flóka sem saman standa af tau pró­tín­inu. Í heil­brigðum heila eru þessi prótín einnig til staðar, en vegna smá­vægi­legra breyt­inga í prótín­unum eða umhverfi þeirra hætta þau að virka sem skyldi. Um leið og þessar breyt­ingar eiga sér stað fara pró­tínin að falla út, það er að segja mynda skellur og flækjur sem hindra eðli­lega starf­semi heil­ans.  

Herpes-veiran

Herpes-veiran eða Herpes Simplex virus (HSV) er veira sem sýkir fólk og veldur meðal ann­ars frunsu í munni og nálægri slím­húð. Til eru nokkrar týpur af veirunni, sem hafa fengið hlaup­andi númer, þá er sú veira sem gjarnan veldur frunsu kölluð HSV-1 og svo fram­vegis. Einnig getur sama veira, þá týpa tvö, valdið sárum eða blöðrum á kyn­færum. Smit af völdum herpes-veira, hvort sem er týpa eitt eða tvö, eru þónokkuð algeng, en talið er að nær allir kom­ist í tæri við veiruna ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni.

Allar herpes-veirur til­heyra þeim hópi veira sem kall­ast retró­veirur. Aðrar þekktar retró­veirur eru til dæmis Human immunodeficiency virus (HIV). Þessar veirur hafa þann eig­in­leika að inn­lima erfða­efni sitt inn á erfða­efni hýs­ils­ins, sem þýðir að hafi veiran eitt sinn komið sér fyrir, þá er hún ekki á förum.

Við fyrsta smit losa veir­urnar erfða­efnið sitt inn í frumur hýs­ils­ins. Veirur eru mjög skil­virkar því þær nýta inn­viði hýsilfrumn­anna til að tjá sitt eigið erfða­efni. Skil­virknin á kannski sér­stak­lega við um retró­veirur, því þær troða sínu eigin erfða­efni inn á litn­ing hýs­ils­ins, sem gerir það að verkum að þær þurfa ekk­ert að hafa fyrir því að kalla til pró­tínin sem þarf að nota til að tjá erfða­efnið og búa til fleiri veirur.

Retróveirur gera vart við sig

Í til­felli herpes-veirunnar kemur smitið fram sem frunsa, blöðrur eða sár en síðan liggur veiran yfir­leitt í dvala. Ónæm­is­kerfið sér til þess að við erum ekki stans­laust með sýk­ingu, sem felst í því að veir­urnar eru ekki til staðar þótt erfða­efni þeirra sé alltaf til staðar. Við sér­stakar kring­um­stæður getur hýsilfruman þó sofnað á verð­inum og þá tekur sýk­ingin sig upp. Þetta ger­ist oft þegar ónæm­is­kerfið er upp­tekið við að berj­ast á öðrum víg­stöðvum, þegar mikil streita gerir vart við sig og sér í lagi þegar fólk fer að eld­ast og ónæm­is­kerfið verður slak­ara.

Einn fylgi­kvilli þess að eld­ast er að ónæm­is­kerfið hættir að vera jafn öfl­ugt og það var. Því geta veirur sem herpes farið á kreik þegar ald­ur­inn fær­ist yfir og þá oft á öðrum stöðum eða af meiri krafti en áður. Í til­fellum margra retró­veira getur þessi end­ur­sýk­ing komið fram í tauga­kerf­inu. Þá eru það ekki frumur í slím­húð (við munn eða kyn­færi) sem fara að fram­leiða veir­urnar heldur eru það frumur í tauga­kerf­inu.

Herpes tengt við Alzheimer

Rann­sóknir allt frá árinu 1991 hafa sýnt fram á til­vist herpes-veirunnar í heila­vef eldri ein­stak­linga, hvort sem þeir lát­ast eftir bar­áttu við Alzheimer eður ei. Sú stað­reynd að veiran er til staðar í tauga­vef ein­stak­linga sem eru farnir að tapa minni var fyrsta vís­bend­ing vís­inda­hópa til að skoða betur hvaða hlut­verki hún gegnir.

Svo virð­ist sem ítrek­aðar end­ur­komur veirunnar í tauga­vefnum valdi tauga­skemmdum, ekki ósvip­aðar þeim sem koma fram þegar um Alzheimer-sjúk­dóm­inn er að ræða. Með vax­andi fjölda herpes-sýk­inga í vefnum, fjölgar einnig beta amyloid skell­unum sem eru svo ein­kenn­andi fyrir sjúk­dóm­inn.

Nokkrar rann­sóknir hafa verið birtar þar sem sýnt hefur verið fram á upp­söfnun herpes-veira nálægt eða við þessar prótínskellur. Þessar rann­sóknir hafa flestar verið unnar ann­ars vegar í frumu­rækt­unum eða í músa­mód­elum. Þær rann­sóknir sem unnar hafa verið í mönnum snúa flestar að fylgni veiru­sýk­inga og þróun Alzheimer-sjúk­dóms­ins í stóru þýði.

Fyrirbyggjandi aðgerðir

Ein mjög áhuga­verð rann­sókn, sem unnin var af rann­sókn­ar­hópi í Taívan sýndi að ein­stak­lingar sem fengu lyfja­gjöf gegn herpes-veirunni, þegar á sýk­ingu stóð, voru ólík­legri til að þróa með sér Alzheimer. Þar sem Alzheimer-sjúk­dóm­ur­inn er ekki algengur þarf þýðið að vera þó nokkuð stórt til að geta metið slík áhrif. En í þess­ari til­teknu rann­sókn liggur einmitt nær öll þjóðin undir. Þegar öll þjóð Taívan liggur fyrir sem úrtak sést að ef veiru­sýk­ingin er mikil getur lyfja­gjöf haft afger­andi áhrif á hvort sýk­ingin ýti undir þróun Alzheimer eða ekki. Þetta bendir til þess að lyfja­gjöf við veiru­sýk­ingum sem þessum geti verið nauð­syn­legt sem fyr­ir­byggj­andi þáttur hjá eldra fólki.

Frekari rann­sókna er þó þörf áður en farið er út í slíkar aðgerðir, þar sem þessi rann­sókn nær ein­ungis yfir eina þjóð og má einnig benda á að bólu­setn­ingar væru mögu­lega enn betri kostur, en slíkar bólu­setn­ingar eru því miður ekki mögu­legar eins og staðan er í dag.  

Alzheimer er ekki alltaf herpes að kenna

Sé allt tekið saman má sjá að herpes-veiran getur stuðlað að myndun Alzheimer. Veiran ein og sér getur þó ekki talist ábyrg fyrir öllum Alzheimer-til­fellum heims­ins. Alzheimer-sjúk­dóm­ur­inn er mjög flók­inn og fjöl­margir utan­að­kom­andi þættir sem honum valda.

Sjúk­dóm­inn má svo að ein­hverju leyti skýra með erfðum og þó retró­veirur inn­lim­ist inn á erfða­efni hýs­ils­ins þá erf­ist sýk­ingin ekki. Að öllum lík­indum er um sam­spil erfða, veira og umhverfis að ræða. Auk þess sem Alzheimer getur verið birt­ing­ar­mynd fjöl­margra þátta. Þessar rann­sóknir skýra þó að ein­hverjum hluta hvað það er sem ger­ist í tauga­kerfi Alzheimer-sjúk­linga.  

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár