Ragnar Þór: Segir fjármálakerfið hafa valtað yfir almenning

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, átti von á mót­fram­boði þegar kjör­tíma­bil hans rann sitt skeið. Það kom ekki og hann var sjálf­kjör­inn til áfram­hald­andi setu. Hann telur það merki um ákall eftir rót­tæk­ari tón.

„Já ég átti von á mót­fram­boði, alla­vega miðað við hvernig orð­ræðan hefur verið í kringum bæði mig og emb­ættið. En svo var ekki og ég tek því þannig að sjálf­sögðu að það séu ekki gerðar frek­ari athuga­semdir við mín störf, alla­vega ekki af mínum félags­mönnum.“

Þetta sagði Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Ragnar sagð­ist þar vera til­bú­inn til að setja stöff sín í dóm félags­manna hvar og hvenær sem er. „Þessi tónn sem er að breyt­ast í hreyf­ing­unni er þessi tónn sem ég var að kalla eftir þegar ég var í stjórn VR. Það sýn­ist sig bara á þeim breyt­ingum sem orðið hafa innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að það er verið að kalla eftir nýjum rót­tæk­ari tón frá verka­lýðs­hreyf­ing­unni.“

[adspot]Hann sagði margt í sam­fé­lag­inu hafa orsakað það að eft­ir­spurn sé eftir þessum rót­tæk­ari tón. „Við vitum hvernig fjár­mála­kerfið og fjár­mála­öflin hafa nán­ast valtað yfir almenn­ing, ekki bara í aðdrag­anda hruns­ins heldur líka í eft­ir­málum þess.“

Það sé nauð­syn­legt að fólk finni að það hafi sterkan málsvara til að takast á við slíka stöðu. „Nú hefur verka­lýðs­hreyf­ingin gríð­ar­lega mik­inn og öfl­ugan fjár­hags­legan slag­kraft og mikla og sterka teng­ingu inn í líf­eyr­is­sjóða­kerfið og við eigum að sjálf­sögðu að láta til okkar taka þegar kemur að því að taka á málum sem snúa að hags­munum sem vinna gegn okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár