Stríðsátök hafa ólík áhrif á líf fólks eftir stöðu þeirra og kyni. Á meðan karlmenn eru líklegri til að deyja í átökum eru konur líklegri til að verða fyrir kynbundnu ofbeldi, mansali og búa við skort þegar stríðsátök geisa. Þá hefur nauðgunum markvisst verið beitt sem stríðsvopni í gegnum tíðina í fjölda landa um allan heim, meðal annars í Mjanmar, Sýrlandi, Sierra Leone og Eþíópíu og nú í Úkraínu.
UN Women hefur lagt mikla áherslu á að kvenmiðuð neyðaraðstoð sé veitt á átakatímum, ekki aðeins í eigin störfum heldur einnig í verkefnum annarra viðbragðsaðila og stofnana Sameinuðu þjóðanna. En hvað felur kvenmiðuð neyðaraðstoð í sér?
Fyrst og fremst þýðir sú nálgun að tekið sé mið af þörfum allra þegar neyðaraðstoð er veitt. Fólk af ólíkum stéttum, uppruna, kyni, kynhneigð, aldri og efnahag hefur ólíkar bjargir og ólíkar þarfir á neyðartímum. „Ein stærð fyrir alla“ nýtist því ekki jaðarsettustu hópunum þegar stríð skellur á.
Nokkur dæmi um kvenmiðaða neyðaraðstoð:
- „ONE STOP“ miðstöð þarf að vera á öllum móttökustöðum/flóttamannabúðum þar sem konur fá upplýsingar um réttindi sín, fá heilbrigðisþjónustu, sálræna aðstoð, sæmdarsett og fjárhagsaðstoð ef þarf.
- Þjónusta fyrir þolendur kynbundins ofbeldis þarf að vera á staðnum og aðgengileg öllum. Athvörf fyrir þolendur heimilisofbeldis þurfa einnig að vera á staðnum.
- Starfsfólk hjálparsamtaka og friðargæsluliðar þurfa að vera af öllum kynjum svo hægt sé að tryggja öryggi kvenna. Árið 2020 voru konur aðeins 5,2% allra friðargæsluliða á vegum Sameinuðu þjóðanna. Starfsfólk þarf jafnframt að fá góða þjálfun og vera vakandi fyrir hættumerkjum.
- Kynjaskipt baðaðstaða, salerni og vatnsbrunnar þurfa að vera til staðar innan flóttamannabúða til að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi. Aðgengi og lýsing á þessum stöðum þarf að vera góð.
- Skólar og dagvistunarúrræði þurfa að vera til staðar til að koma í veg fyrir brottfall úr námi og þvinguð barnahjónabönd.
- Tryggja þarf túlka af öllum kynjum svo konur geti verið óhræddar við að tjá þarfir sínar. Konur eru tregari við að tjá sig um líkamlegt heilbrigði og kynheilbrigði ef karlmaður er á staðnum.
Úkraínskar konur í hættu
Mikilvægi kvenmiðaðrar neyðaraðstoðar er augljós í því gríðarlega neyðarástandi sem nú ríkir í Úkraínu og á landamærum nágrannaríkja landsins. Þau frjálsu félagasamtök í Úkraínu sem tóku þátt í nýrri þarfagreiningu UN Women lögðu mikla áherslu á mikilvægi þess að líta sérstaklega til þarfa kvenna og barna á flótta og að tryggja þurfi fjármagn í kvenmiðaða neyðaraðstoð sem veitt er á staðnum. Verulegur skortur er á nauðsynlegum vörum eins og mat – sérstaklega barnamat, lyfjum og hreinlætisvörum líkt og bleyjum í landinu. Aðgengi að vatni, rafmagni og öðrum nauðsynjum er af skornum skammti á mörgum svæðum.
[adspot]Tekjumissir og skertur aðgangur að fjármagni er augljóst vandamál. Að lifa með stöðugum ótta um heilsu sína og öryggi nánustu fjölskyldu er svo farið að taka sinn toll á andlegri heilsu fólks. Ofbeldi hefur aukist, bæði heimilisofbeldi og kynferðisofbeldi. Fréttir hafa borist af því að konur og börn á flótta hafi horfið í ringlureiðinni sem ríkir á lestarstöðvum og móttökustöðum. Hjálparstarfsmenn hafa eftir bestu getu reynt að skrásetja alla sem koma inn á svæðin, t.d. bílstjóra og fólk sem býður fram húsnæði, en þrátt fyrir það hefur ekki verið hægt að vernda alla sem eru á flótta fyrir hrottalegum einstaklingum sem hyggjast nýta sér neyð þeirra og hafa nú þegar heyrst sögur af konum og stúlkum sem hafa verið seldar í vændi til Evrópuríkja. Þá hafa fregnir borist af því að rússneskir hermenn deili myndböndum af því þegar úkraínskum konum er nauðgað. Þar sem úkraínskum karlmönnum á aldrinum 18-60 ára hefur verið meinað að yfirgefa landið, eru konur og börn meirihluti fólks á flótta eða um 90%. UN Women er á vettvangi og meðal verkefna er að dreifa fatnaði, sæmdarsettum og neyðarpökkum til kvenna á flótta og veita þeim fjárhagsaðstoð. Þá berst UN Women fyrir því að kvenmiðuð neyðaraðstoð sé veitt. Að þær fái strax upplýsingar um réttindi sín, húsaskjól og áfallahjálp við komuna til gistilands. Allt til að koma í veg fyrir að hægt sé að nýta sér neyð þeirra.
Þú getur hjálpað með því að senda sms-ið KONUR í númerið 1900.
Höfundur er framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir