Langmest viðskipti með íbúðir á milli einstaklinga

Í kringum 75% fast­eigna­við­skipta með íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eiga sér stað á milli ein­stak­linga. Fyr­ir­tæki eru mun dug­legri að kaupa íbúðir af ein­stak­lingum mið­svæðis í Reykja­vík en ann­ars staðar.

Langstærstur hluti við­skipta með íbúða­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á sér stað milli ein­stak­linga. Ekki hafa orðið gríð­ar­legar hlut­falls­legar breyt­ingar þar á frá því fyrir hrun. Þetta má sjá í tölum sem Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman um skipt­ingu við­skipta með íbúð­ar­hús­næði.

Í töl­unum er hægt að sjá við­skipti með íbúð­ar­hús­næði eftir árs­fjórð­ungum aftur til árs­ins 2006. Líkt og sést á mynd­inni hér að neðan er hlut­fall við­skipta á milli ein­stak­linga, það er þegar ein­stak­lingur selur ein­stak­lingi, lang­hæst. Iðulega eru um 3 af hverjum 4 við­skiptum milli ein­stak­linga. Næst koma fyr­ir­tæki sem selja ein­stak­lingum íbúða­hús­næði, en það er oft í kringum 15-20 pró­sent af við­skiptum í hverjum árs­fjórð­ungi.

Und­an­farin ár hefur hlut­fall ein­stak­linga sem selja fyr­ir­tækjum íbúða­hús­næði verið í kringum 5-7 pró­sent. Það hlut­fall hækk­aði strax í hrun­inu, og fór upp í 12 pró­sent í lok árs 2008 og var í kringum tíu pró­sent fyrri hluta árs­ins 2009.

Önnur staða miðsvæðis

Myndin er aðeins öðru­vísi þegar horft er til Reykja­víkur vestan Kringlu­mýr­ar­brautar. Engu að síður er það svo að lang­flest við­skipti eiga sér stað á milli ein­stak­linga, þrátt fyrir að hlut­fallið hafi lækkað síð­ustu ár. Und­an­farin tvö ár hefur hlut­fall við­skipta milli ein­stak­linga verið á bil­inu 71 til 81 pró­sent.

Hlutfall fyr­ir­tækja sem kaupa íbúða­hús­næði af ein­stak­lingum hefur auk­ist tals­vert á þessu svæði á und­an­förnum árum. Árið 2011 voru slík við­skipti innan við fimm pró­sent af heild­ar­fjöld­anum, en þau juk­ust svo mjög skarpt á seinni hluta árs­ins 2012, og voru komin í 14 pró­sent í lok þess árs. Í fyrra voru fast­eigna­við­skipti þar sem fyr­ir­tæki keyptu af ein­stak­lingum í kringum 13 pró­sent. Það er því tals­vert meira um að fyr­ir­tæki kaupi íbúða­hús­næði af ein­stak­lingum mið­svæðis í Reykja­vík heldur en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár