Namibískur blaðamaður: „Ein stærsta frétt síðustu tuttugu ára í Namibíu“

Yfir­maður rann­sókn­arteymis The Namibian segir að sjald­gæft sé að stjórn­mála­menn þar­lendis segi af sér, en það hafi verið nauð­syn­legt vegna kom­andi kosn­inga. Ímynd Íslands er flekkuð í Namibíu.

Shinovene Immanuel
Shinovene Immanuel Yfir­maður rann­sókn­arteymis The Namibian segir að kallað sé á breyt­ingar.

Orðspor Íslands hefur beðið hnekki í Namibíu og lík­legt er að upp­ljóstr­anir um mútu­greiðslur Samherja til þar­lendra stjórn­mála muni hafa áhrif í kosn­ingum sem fram fara 27. nóv­em­ber næst­kom­andi. Þetta er mat Shinovene Immanuel, yfir­manns rann­sókn­arteymis hjá dag­blað­inu The Namibian.

„Ég mundi segja að þetta sé ein stærsta frétt síð­ustu tutt­ugu ára í Namibíu,“ segir hann í sam­tali við Stundina. „Bæði hvað varðar gæði og magn gagn­anna sem liggja að baki og sýna gjörðir hátt settra stjórn­mála­manna. Ég hef unnið við leka úr Panama­skjöl­unum og í öðrum slíkum málum, en þessi umfjöllun er á toppnum. Hún gæti haft þau áhrif að völd sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra til að úthluta kvóta minnki og ferlið verði gagn­særra. Kerfið yrði þá betur varið gegn spill­ingu í fram­tíð­inni og þetta er það sem Namib­íu­menn vona að ger­ist.“

Shinovene telur að traust Namib­íu­manna til Íslend­inga hafi beðið högg við upp­ljóstr­anir Stund­ar­innar, RÚV, Wikileaks og Al Jazeera. „Íslend­ingar komu og fjár­festu í sjáv­ar­út­veg­inum hér, en nú sjáum við að sam­starf þeirra við Namib­íu­menn var byggt á blekk­ingum sem fólk er farið að sjá í gegnum. Ef þú spyrð núna fólk í sjáv­ar­út­vegi um hvort það vilji vinna með Íslend­ingum segir það lík­lega nei. Ímyndin er flekkuð og það mun taka tíma að end­ur­heimta traustið. Namib­íu­menn munu vera var­kárir í sam­skiptum við Íslend­inga.“

„Ef þú spyrð núna fólk í sjáv­ar­út­vegi um hvort það vilji vinna með Íslend­ingum segir það lík­lega nei“

Sam­herj­a­skjölin sýna hvernig verð­mæti streymdu úr landi í hendur fárra ein­stak­linga og hvernig hátt settir með­limir stjórn­mála­flokks­ins SWAPO fengu greitt fyrir vikið. „Þetta mál hefur komið umræð­unni í deigl­una, en það hefur verið á sveimi orðrómur í mörg ár um spill­ingu í þessum geira,“ segir Shinovene. „Fólki hefur grunað að sjáv­ar­út­veg­ur­inn hafi verið, eins og einn ráð­herra orð­aði það, mafíu­starf­semi. Að það hafi þurft að stunda ólög­legt athæfi til að taka þátt. En það var eng­inn leki og engin sönn­un­ar­gögn til að sann­reyna þessa mafíu­starf­semi, en núna höfum við fengið að sjá í smá­at­riðum hvernig hlut­irnir virk­uðu. Þegar nýtt skip er vígt er það bara glans­myndin af bransa þar sem fjár­munir voru sog­aðir burt.“

Bern­hardt Edau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Sacky Shang­hala dóms­mála­ráð­herra hafa sagt af sér vegna máls­ins, en í namibískum stjórn­málum er sjald­gæft að stjórn­mála­menn geri slíkt. „Það gerð­ist fyrir nokkrum mán­uðum líka, en venju­lega segja þeir ekki af sér og það hafði ekki gerst í ára­tug áður,“ segir Shinovene. „Tíma­setn­ingin skipti máli. Það eru nokkrar vikur í kosn­ingar og það þurfti að bregð­ast við ásök­un­unum. Þetta mál mun vera notað til að þrýsta á fólk um að kjósa um breyt­ingar. SWAPO hefur verið við stjórn­völdin í þrjá­tíu ár, svo þeir eru vanir völd­unum og gera hluti án þess að búast við afleið­ingum. Utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslan er byrjuð og við höfum séð að for­set­inn er að tapa fylgi.“

„Þetta mál mun vera notað til að þrýsta á fólk um að kjósa um breyt­ingar“

Shinovene segir athygli fólks hafa beinst helst að ger­end­unum sjálfum, stjórn­mála­mönnum sem komu að mútu­mál­inu, frekar en að kerf­is­lægum þáttum sem gerðu spill­ing­una mögu­lega. „Áherslan hefur ekki verið á Samherja, þannig að umræðan um svo­kall­aða nýja nýlendu­stefnu kemur frekar síðar. Núna er áherslan á að losna við stjórn­mála­menn­ina sem hafa verið að gera þessa hluti árum saman. Við fjöll­uðum um þetta í rit­stjórn­ar­grein í dag. Það er ekki stór­mál að reka stjórn­mála­menn­ina. Lyk­il­at­riðið er að laga kerfið sem hefur leyft þeim að mis­nota það til að hagn­ast sjálfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár