Eðlilegt og jákvætt að halda áfram Borgarlínu

Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir nauð­syn­legt að vera með­vit­aður um kostnað við Borg­ar­línu. Hildur var gestur Aðfar­ar­innar ásamt Sig­ur­borgu Ósk Har­alds­dóttur for­manni skipu­lags­ráðs og borg­ar­full­trúa Pírata.

Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að það verði alltaf ódýr­ast fyrir borg­ina að fjár­festa í almenn­ings­sam­göngum. Þetta sagði Hildur í podcast þætt­inum Aðförin á Kjarn­anum sem nálg­ast má hér.

[links]Hildur var gestur þátt­ar­ins ásamt Sig­ur­borgu Ósk Har­alds­dóttur borg­ar­full­trúa Pírata og for­manni skipu­lags­ráðs borg­ar­innar og voru skipu­lags og umferð­ar­mál rædd á víðum grunni í þætt­inum.

Sig­ur­borg sagði að ljóst væri að ekki kæmust fleiri bílar fyrir á stofn­vega­kerf­inu í dag. Það væri ekki hægt að þenja það meira út. „Stofn­vega­kerfið er ekk­ert sér­lega gott að mínu mati.“ Sig­ur­borg sagði Borg­ar­línu tíma­mót í sam­göngu­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og að ekki væri hægt að nota nægi­lega sterk orð yfir það hversu miklu línan mun breyta. „Þetta mun hafa áhrif á hvernig við byggjum, þetta mun hafa áhrif á þétt­leika, þetta mun hafa áhrif á lífs­gæði og það sem mun breyt­ast mest það er við­horfið. Þegar við sjáum hlut­ina raun­ger­ast og mun breyta fram­gangi sam­gangna í borg­inni til fram­tíðar.

Hildur sagði pláss vera tak­mörkuð gæði. „Við sjáum ofboðs­lega mikið af fólki sem keyrir um á stórum sjö sæta bílum, hver um sig einn í hverjum bíl. Enginn sem hugsar um hversu mikð pláss við­kom­andi er að taka fyrir sig einan. Þessu sama fólki finnst gjarnan eðli­legt að notað sé skattfé til að tryggja að það fái að hafa þetta pláss og að það kom­ist algjör­lega leiðar sinnar,“ sagði Hildur sem telur eðli­legt og jákvætt að halda áfram vinnu við Borg­ar­línu.

Hildur segir margar borgir hafa lært að það virki ekki að fjölga akreinum og mis­lægum gatna­mótum og þess í stað hafi þær farið að ein­beita sér að almenn­ings­sam­göngum. Hún vilji hins vegar vera með­vituð um nákvæman kostnað við Borg­ar­lín­una. „Ég er svona ráð­deild­ar­söm hús­frú, vil vita hvað þetta kostar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár