Víða ekkert íbúðarhúsnæði byggt á landsbyggðinni – Stjórnvöld leggja fram tillögur að aðgerðum

Samkvæmt Íbúð­ar­lána­sjóði er stöðnun algengt vanda­mál í sveit­ar­fé­lögum víða á lands­byggð­inni og á mörgum stöðum hefur ekk­ert íbúð­ar­hús­næði verið byggt í einn til tvo ára­tugi.

Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra hefur lagt fram til­lögur að aðgerðum til þess að styrkja hús­næð­is­mark­að­inn á lands­byggð­inni og koma til móts við áskor­anir sem fjöl­mörg sveit­ar­fé­lög standa frammi fyrir í hús­næð­is­málum.

Meðal þess­ara aðgerða er að rýmka heim­ildir um við­bót­ar­fram­lag sem heim­ilt er að veita vegna íbúða á svæðum þar sem bygg­ing hefur verið í lág­marki og skortur er á leigu­hús­næði, veita styrki til upp­bygg­ingar á köldum mark­aðs­svæðum, liðka á kröfum innan stjórn­sýsl­unnar til þess að lækka bygg­ing­ar­kostnað og að auka sam­starf hags­muna­að­ila, sveit­ar­fé­laga og Íbúð­ar­lána­sjóða.

Til­lög­urnar eru í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en hægt er að gera athuga­semdir við verk­efnið til 12. ágúst næst­kom­andi.

Samkvæmt Íbúð­ar­lána­sjóði er stöðnun algengt vanda­mál í þessum sveit­ar­fé­lögum og víða hefur ekk­ert íbúð­ar­hús­næði verið byggt í einn til tvo ára­tugi. Mun meira var byggt á lands­byggð­inni frá alda­mótum og fram að hruni, heldur en síð­ustu ár. Sér­fræð­ingar Íbúða­lána­sjóðs sjá merki um mark­aðs­brest á mörgum svæðum enda ráð­ist fáir í að reisa nýtt íbúð­ar­hús­næði þrátt fyrir að atvinna sé víð­ast hvar næg og eft­ir­spurn eftir íbúðum mikil. Þeir fáu sem vilja byggja í smærri sveit­ar­fé­lögum komi oft og tíðum að lok­uðum dyrum á lána­mark­aðnum. Dýr og erfið fjár­mögnun, skortur á bygg­ing­ar­að­ilum og misvægi milli hús­næð­is­verðs og bygg­ing­ar­kostn­aðar hafi valdið því að lítið eða ekk­ert er byggt.

Til­lög­urnar byggja meðal ann­ars á til­rauna­verk­efni Íbúða­lána­sjóðs með sjö sveit­ar­fé­lögum og er ætlað að bregð­ast við ofan­greindum áskor­unum land­byggð­ar­innar.

Ráðherra boð­aði einnig að hann myndi setja í reglu­gerð nýjan lána­flokk hjá Íbúða­lána­sjóði til að auð­velda sjóðnum að veita fjár­mögnun á lands­byggð­inni. „Hann leggur áherslu á að tryggja þurfi íbúum lands­byggð­ar­innar aðgengi að fjár­magni á sam­bæri­legum kjörum og fást á virk­ari mark­aðs­svæðum. Þá vill hann bregð­ast við skorti á hag­kvæmu leigu­hús­næði með því að gera sveit­ar­fé­lögum á lands­byggð­inni kleift að byggja íbúðir í almenna leigu­kerf­inu með stofn­fram­lagi rík­is­ins. Heimilt verði að veita sér­stakt byggða­fram­lag vegna leigu­í­búða á svæðum þar sem misvægi ríkir á milli bygg­ing­ar­kostn­aðar og mark­aðs­verðs og þá verði heim­ildir sveit­ar­fé­laga til þess að leggja fram stofn­fram­lög rýmkaðar. Til­lög­urnar taka mið af ólíkum áskor­unum sveit­ar­fé­laga víðs vegar um land,“ segir í frétt Íbúð­ar­lána­sjóðs um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár