Bankasýslan auglýsir eftir nýjum stjórnarmönnum í Landsbankanum

Banka­sýsla rík­is­ins aug­lýsir í dag eftir ein­stak­lingum til að sitja í stjórnum fjár­mála­fyr­ir­tækja sem stofn­unin fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í. Fyr­ir­tækin sem um ræðir eru Lands­bank­inn, Íslands­banki, Arion banki og Spari­sjóður Aust­ur­lands.

Aug­lýs­ingin kemur í kjöl­far þess að fimm af sjö banka­ráðs­mönnum í Lands­bank­anum til­kynntu í vik­unni að þeir ætli ekki að gefa áfram kost á sér í banka­ráðið vegna Borg­un­ar­máls­ins. Stjórn Banka­sýsl­unnar mun því kjósa að minnsta kosti fimm nýja banka­ráðs­menn í bank­anum, og stefnt er að því að það verði gert á aðal­fundi bank­ans þann 14. apríl næst­kom­andi.

Á meðal þeirra sem ætla að hætta er Tryggvi Pálsson, for­maður banka­ráðs­ins, en aðrir eru Eva Sóley Guð­björns­dóttir, Jón Sig­urðs­son, Kristján Dav­íðs­son og Jóhann Hjart­ar­son.

Í til­kynn­ingu sinni um málið í vik­unni sögðu banka­ráðs­menn­irnir að stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unnar hafi boðað for­mann banka­ráðs Lands­bank­ans á fund áður en bréf stofn­un­ar­innar vegna Borg­un­ar­máls­ins var sent til Lands­bank­ans á föstu­dag. Á þeim fundi, sem for­stjóri Banka­sýsl­unnar hafi verið við­staddur var þeim skila­boðum komið á fram­færi að „það eina sem dugi til sé að banka­stjór­anum verði sagt upp störfum auk þess sem for­maður og vara­for­maður víki. Sú afstaða stjórnar Banka­sýsl­unnar fékkst síðar stað­fest. Þarna gengur Banka­sýslan skrefi of langt. Það er hlut­verk banka­ráðs og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að meta hæfi banka­stjór­ans. Við munum ekki taka þátt í skolla­leik sem hvorki sam­rým­ist meg­in­reglum félaga­réttar né góðum stjórn­ar­háttum. Steinþór Pálsson er stefnu­fastur og öfl­ugur stjórn­andi; hreinn og beinn. Hann er leið­togi bank­ans og hefur staðið sig með afbrigðum vel. Við teljum far­sæl­ast að hann stjórni bank­anum áfram til góðra verka."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár