Reykvískt hverfi, sem óljóst er hvort megi rísa, til sýningar í Ósló

Deilur hafa staðið yfir á milli ríkis og borgar um heim­ild til að hefja upp­bygg­ingu íbúða í svoköll­uðum Nýja-Skerja­firði. Hönn­un­ar­leið­bein­ingar vegna almenn­ings­rýma og gatna hverf­is­ins eru til sýnis á arki­tekt­úr­há­tíð í Ósló.

Teikning af mögulegri götumynd í Nýja-Skerjafirði.
Teikning af mögu­legri götu­mynd í Nýja-Skerja­firði. Mynd: Af vef Reykjavíkurborgar

Hönn­un­ar­leið­bein­ingar fyrir almenn­ings­rými og götur í Nýja-Skerja­firði, sem deild borg­ar­hönn­unar hjá Reykja­vík­ur­borg vann að í sam­starfi við sænsku arki­tekt­úr­stof­una Mandaworks, voru á meðal sex verka sem valin voru til sýn­ingar á arki­tekt­úr­há­tíð­inni Ósló­ar­þrí­ær­ingnum, Oslo Architecture Triennale, sem hófst form­lega í gær.

Alls bár­ust 383 fram­lög í opna sam­keppni hátíð­ar­innar, frá öllum heims­hornum, sam­kvæmt því sem skipu­leggj­endur Ósló­ar­þrí­ær­ings­ins segja, en þema þrí­ær­ings­ins þetta árið eru hverfi borga og bæja, skipu­lagn­ing þeirra og hlut­verk.

Sérstök áhersla er á nor­rænar borgir, og segir hinn danski Christian Pagh, sem er fram­kvæmda­stjóri og list­rænn stjórn­andi Ósló­ar­þrí­ær­ings­ins í ár, að borgir á Norð­ur­lönd­unum geti lært mikið hver af annarri og í sam­ein­ingu ef til vill orðið fyr­ir­myndir ann­arra, við sköpun mann­vænna hverfa.

Blaða­maður Kjarnans er staddur í Ósló og hefur sótt við­burði opn­un­ar­daga hátíð­ar­innar. Á blaða­manna­fundi á mið­viku­dag sagði Pagh að bæði hér í Ósló og á alþjóða­vísu væri mikil umræða um þessar mundir um gæði hús­næðis og aðgengi að því.

Ekki síst væri þessi umræða hávær nú í kjöl­far þess að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á, því þegar hann geis­aði sem harð­ast hafi sést glögg­lega að hverfi margra borga búa yfir mjög mis­mun­andi gæðum og að slæmt skipu­lag bitn­aði bein­línis á heilsu og lífs­gæðum íbú­anna.

Þessi þáttur skipu­lags, að hverfi snú­ist um annað og meira en að vera bara staðir til þess að sofa, þarf meiri athygli að mati Pagh. Því er sjónum beint að hverf­unum í efn­is­tökum þrí­ær­ings­ins í ár.

Í umsögn dóm­nefndar sagði að í hönn­un­ar­leið­bein­ingum Nýja-Skerja­fjarðar væri farið yfir fjölda lausna til þess að tryggja hágæða­al­menn­ings­rými, með áherslu á að móta borg­ar­landið á milli bygg­ing­anna; garða, torg og götur. Í hönn­un­ar­leið­bein­ing­unum er lagt upp með að bílar verði víkj­andi, hæg­fara og lítt áber­andi á yfir­borði, á meðan að göt­urnar verði staðir sem styðji við lífið í hverf­inu. Bíla­stæði í hverf­inu eiga að mestu að verða í mið­lægu bíla­stæða­húsi.

Kynn­ingin á hönn­un­ar­leið­bein­ingnum á sjálfri hátíð­inni er í formi víd­eó­verks, sem verður til sýnis í gamla Munch-safn­inu í Tøyen-hverf­inu í Ósló næsta mán­uð­inn, en safna­húsið, sem ekki hefur enn fengið nýtt hlut­verk til fram­tíðar frá því að nýja Munch-safnið við sjáv­ar­síð­una var tekið í notkun í fyrra, er aðal­vett­vangur arki­tekt­úr­þrí­ær­ings­ins.

En fær hverfið að rísa samkvæmt fyrirliggjandi skipulagi?

Þrátt fyrir að hönn­un­ar­leið­bein­ing­arnar fyrir hverfið hafi mælst vel fyrir hjá dóm­nefnd­inni í Ósló er sem kunn­ugt er alls óvíst hvenær hægt verður að fara að vinna eftir þeim, og sam­þykktu deiliskipu­lagi svæð­is­ins, sem felur í sér bygg­ingu alls um 690 íbúða í fyrri hluta upp­bygg­ing­ar­innar, auk upp­bygg­ingar nýs grunn­skóla.[links]

Deilur hafa staðið yfir á milli inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar um hvort heim­ilt sé að hefja upp­bygg­ing­una í Nýja-Skerja­firði og hefur komið fram að starfs­hópur, svo­kall­aður „sprett­hópur“, eigi að skila nið­ur­stöðu um málið í upp­hafi októ­ber­mán­aðar.

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, sagði í nýlegu svari við skrif­legri fyr­ir­spurn á þingi að ekki væri unnt að fall­ast á áætl­anir Reykja­vík­ur­borgar um byggð­ina í Skerja­firði að óbreyttu.

Í svar­inu sagði að óásætt­an­legt væri að farið yrði í upp­bygg­ingu hverf­is­ins án þess að full­kannað væri hvort og þá með hvaða hætti tryggt yrði að þær myndu ekki hafa nei­kvæð áhrif á rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vall­ar.

„Ráð­herra mun því hvorki geta fall­ist á að farið verði í umræddar fram­kvæmdir í Skerja­firði né aðrar slíkar fram­kvæmdir í næsta nágrenni við flug­völl­inn nema sýnt hafi verið með óyggj­andi hætti fram á að flug­ör­yggi og rekstr­ar­ör­yggi sé ekki stefnt í hætt­u,“ sagði í svari ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arkitektúr

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár