Kim Kardashian borgar sig út úr auglýsingarklandri

Þegar Kim Kar­dashian sagði fylgj­endum sínum á Instagram að það væri snið­ugt að fjár­festa með raf­mynt braut hún lög og reglur.

Kim Kardashian er gangandi auglýsing fyrir allt milli himins og jarðar. Líka rafmynt.
Kim Kar­dashian er gang­andi aug­lýs­ing fyrir allt milli him­ins og jarðar. Líka raf­mynt. Mynd: EPA

Stærstu svoköll­uðu áhrifa­valdar heims fá greitt fyrir flest það sem þeir klæð­ast, borða og bera á sig og á sér. Kim Kar­dashian, ein allra stærsta stjarnan í þessum bransa, er þar engin und­an­tekn­ing en með því að aug­lýsa fjár­fest­ingar með raf­mynt kom hún sér hins vegar í klandur. En þó ekki meira en svo að hún gat ekki borgað sig út því.

Klandrið er til­komið vegna þess að það gilda alveg sér­stakar reglur vest­an­hafs um hvernig má aug­lýsa fjár­fest­ingar. Og þegar Kar­dashian ýtti að fylgj­endum sínum á sam­fé­lags­miðlum „við­skipta­tæki­færum“ tengdum raf­mynt braut hún gegn þessum reglum – fyrst og fremst vegna þess að ekki fylgdi sög­unni að hún fengi greitt fyrir aug­lýs­ing­una.

Málið end­aði á borði öryggis- og við­skipta­nefndar, The Securities and Exchange Commission (SEC), nefndar á vegum hins opin­bera sem fylgist grannt með við­skipta­háttum hvers­konar. Kar­dashian og nefndin hafa nú náð sáttum sem fela í sér að stjarnan greiðir 1,26 millj­ónir dala, 182 millj­ónir króna, í sekt.

[adspot]

Þegar Ether­eumMax kom á markað í maí í fyrra hóf fjöldi þekktra ein­stak­linga að vekja athygli á fjár­fest­ing­ar­tæki­færum tengdum raf­mynt­inni. Í júní sama ár birti Kim Kar­dashian færslu á Instagram um hversu góð fjár­fest­ing fælist í Ether­eumMax. Nú hefur komið á dag­inn að hún fékk 250 þús­und doll­ara, um 36 millj­ónir króna, fyrir. Upplýst hefur verið að greiðslan hafi borist henni í gegnum „milli­göngu­mann“.

„Þetta er ekki fjár­mála­ráð­gjöf,“ sagði Kar­dashian á Instagram, „en ég er að deila því sem vinir mínir hafa sagt mér um Ether­eumMax!“

Öryggis- og við­skipta­nefndin hefur ítrekað varað fólk við slíkum aug­lýs­ingum og einnig um hríð varað þekkt fólk við að taka þátt í að aug­lýsa fjár­fest­ing­ar­tæki­færi tengd raf­mynt. Slíkt þurfi að gera að vand­lega athug­uðu máli og með ýmsa fyr­ir­vara fyrir neyt­endur í fartesk­inu.

„Mál Kar­dashian ætti að vera öðru þekktu fólki víti til varn­aðar og minna það á að sam­kvæmt lögum verður það að gefa almenn­ingi upp­lýs­ingar um hvenær og hversu mikið það fær greitt þegar það kynnir fjár­fest­inga­boð sem þessi,“ segir í til­kynn­ingu frá nefnd­inni.

Sátt­ar­greiðslan sem Kar­dashian þarf að greiða þykir ekki há en for­maður öryggis- og við­skipta­nefnd­ar­innar segir að hún hafi verið sam­starfs­fús og sýnt í verki að hún vildi aðstoða við rann­sókn máls­ins.

Frétt New York Times um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafmynt

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár