ASÍ vill að stjórnvöld stöðvi starfsemi Primera

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) hefur skorað á íslensk stjórn­völd að taka starf­semi Primera Air og Primera Air Nordic til „ræki­legrar skoð­unar og stöðva starf­semi þeirra.“ Sam­bandið segir að félögin brjóti lög og kjara­samn­inga á því starfs­fólki sem sinnir flugi fyrir þau hér á landi. Primera Air hefur hafnað þessu. ASÍ seg­ist hafa gögn undir höndum sem sýni fram á brot Primera, og hefur afhent Vinnu­mála­stofnun gögnin.

Í bréfi Magnúsar M. Norðdahl, lög­manns ASÍ, segir að íslensk lög gildi um rétt­ar­stöðu áhafna hjá flug­fé­lag­inu, hvort sem þær hafi verið ráðnar beint til félags­ins eða í gegnum starfs­manna­leigur. Því eigi að fara eftir íslenskum kjara­samn­ingum og íslenskum lögum þegar kemur að lág­marks­launum og kjörum. Flug­liðar hjá Primera fái hins vegar að jafn­aði 206.580 krónur í verk­taka­laun þegar lág­marks­laun Flug­freyju­fé­lags Íslands sam­kvæmt kjara­samn­ingum eru á milli 230 og 250 þús­und. Þá eigi eftir að taka til­lit til ýmissa ann­arra greiðslna.

Þá segir ASÍ einnig að sam­kvæmt lögum hafi fyr­ir­tæki eins og Primera Air Nordic, sem hafi starfs­menn á Íslandi í 10 daga eða meira á 12 mán­aða tíma­bili, upp­lýs­inga­skyldu gagn­vart hinu opin­bera. Vinnu­mála­stofnun kann að óska eftir ýmsum upp­lýs­ingum eins og ráðn­ing­ar­samn­ingum. Ef fyr­ir­tæki sinna ekki skyldum sínum eða brjóta gegn ákvæðum um lág­marks­kjör og rétt­indi má Vinnu­mála­stofnun krefj­ast þess að lög­regla stöðvi vinnu tíma­bundið eða loki starf­semi þar til úrbætur hafa verið gerðar.

„Vonandi bregst fyr­ir­tækið hratt og vel við athugun Vinnu­mála­stofn­unar og kemur starf­semi sinni í lög­mætt horf. Ef ekki, standa ýmis þving­unar­úr­ræði verka­lýðs­hreyf­ing­unni til boða sem beina má gegn hlut­að­eig­andi fyr­ir­tækjum til þess að koma í veg fyrir ólög­mæt félags­leg und­ir­boð því fyr­ir­tæki sem gera slíkt eru frið­laus hér á landi og erlendis.“

Grískar flug­freyjur voru ráðnar sem verk­takar til félags­ins frá ára­mótum í gegnum starfs­manna­leigu á Guernsey, að því er fram kom í umfjöllun mbl.is um málið á dög­unum. Þar kom fram að grunn­launin væru 60 þús­und krónur auk pró­sentu af sölu um borð í vél­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár