657. spurningaþraut: Hver er ávöxturinn Solanum lycopersicum?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn sem lyftir hér hendi á loft?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Hrafninn flýgur árið 1984?

2.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Santiago?

3.  Santiago er spænsk útgáfa af nafni dýr­lings. Hvað kall­ast sá dýr­lingur á íslensku?

4.  Kona ein gekk út á svalir á húsi sínu fyrir rúmum 40 árum. Hún var klædd ljósum prjóna­kjól og veif­aði til fólks á göt­unni. Hvaða kona var þetta?

5.  Hraði ljóss­ins er um það bil 300.000 kíló­metrar á ... sek­úndu ... mín­útu ... klukku­stund ... sól­ar­hring?

6.  Hvað kall­ast það fyr­ir­brigði í geimnum sem hefur svo ógn­ar­legt aðdrátt­ar­afl að það dregur meira að segja að sér ljósið?

7.  Guderian, Manstein, Model, Patton, Paulus og Rommel. Þetta eru allt þýskir hers­höfð­ingjar í seinni heims­styrj­öld — nema reyndar einn þeirra. Hver á ekki heima í þessum hópi?

8.  Hvað kallar hann sig, einn þekkt­asti og umtal­að­asti mynd­list­ar­maður heims­ins um þessar mundir — lista­maður sem eng­inn veit í raun­inni hver er?

9.  Hvaða for­seti Banda­ríkj­anna hefur setið lengst allra í emb­ætti?

10.  Ávöxtur einn heitir á lat­ínu Solanum lycopersicum. Hann er ávöxtur, þótt við lítum yfir­leitt á hann sem græn­meti, og hann er upp­runn­inn í Suður-Ameríku. Við köllum Solanum lycopersicum ... hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar er þennan mynd­ar­lega bíl að finna?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hrafn Gunn­laugs­son.

2.  Tjíle.

3.  Jakob.

4.  Vigdís Finn­boga­dóttir.

5.  Sekúndu.

6.  Svarthol.

7.  Patton.

8.  Banksy.

9.  Franklin Roosevelt. Franklin verður að fylgja.

10.  Tómat.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á eftir mynd­inni má sjá fót­bolta­kapp­ann Pelé.

Á neðri mynd­inni er hluti plötu­umslags Stuð­manna, Sumar á Sýrlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár