Ragnar Þór fór fram á að launin sín yrðu lækkuð

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að honum hafi þótt laun fyrir for­mennsku í LÍV of há og fór hann því fram á launa­lækkun þegar hann tók við for­mennsku sam­bands­ins. Mán­að­ar­laun hans eru nú 1,5 millj­ónir.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Hringbraut

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, fór fram að laun sín fyrir for­mennsku í Lands­sam­bandi íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) yrðu lækkuð um 25 pró­sent þar sem honum þóttu þau of há. Heild­ar­laun Ragnars Þórs eru nú í heild sinni 1.482.213 krónur á mán­uði. Þetta kemur fram í Facebook- færslu Ragnars Þórs.

Þótti launin of há

Ragnar Þór var sjálf­kjör­inn for­maður LÍV á þingi sam­bands­ins sem haldið var á Akureyri þann 19. októ­ber síð­ast­lið­inn. Hann tók tíma­bundið við sem for­maður LÍV í miðjum kjara­við­ræðum síð­asta vor eftir að Guð­brandur Ein­ars­son, þáver­andi for­maður, ákvað að stíga til hliðar.

Fyrir for­mennsku í LÍV hafa áður verið greiddar 398.136 krónur á mán­uði en í færslu sinni segir Ragnar að honum hafi fund­ist þessi laun of há. Sér­stak­lega í ljósi þess að for­menn versl­un­ar­manna­fé­laga hafa gengt stöð­unni und­an­farin ár og um ein­hverja skörun starfa er að ræða.

Hann lagði því til við stjórn LÍV að launin yrðu lækkuð og var sam­þykkt að leggja fyrir nýaf­staðið þing Lands­sam­bands­ins að lækka launin um 25 pró­sent eða í 298.602 krónur.

1,5 milljónir á mánuði

Ragnar segir að hann hafi ávallt talið að upp­lýs­ingar um laun og aðrar greiðslur til for­ystu­fólks í verka­lýðs­hreyf­ing­unni þurfi að liggja fyrir opin­ber­lega til að tryggja gegn­sæi og koma í veg fyrir mögu­lega hags­muna­á­rekstra. Því ákvað hann að greina frá núver­andi heild­ar­launum sínum á Facebook.

Laun hans fyrir for­mennsku í VR eru 1.183.611 krónur á mán­uði og laun hans fyrir for­mennsku í LÍV eru 298.602 krónur á mán­uði. Samtals eru heild­ar­launin hans 1.482.213 krónur á mán­uði. Þá tók hann sér­stak­lega fram hann fái ekki aðrar greiðslur fyrir trún­að­ar­störf á vegum verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar né ann­ars staðar frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verkalýðsfélög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár