Vöru- og þjónustuviðskipti skila halla á ársfjórðungi í fyrsta skipti í 10 ár

Vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 var nei­kvæður um 3,5 millj­arða króna en hann var jákvæður um 14,2 millj­arða á sama tíma árið 2017. Þetta er í fyrsta skipti síðan 2008 sem vöru- og þjón­ustu­við­skipti skila halla á árs­fjórð­ungi.

Vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður á fjórða árs­fjórð­ungi 2018, eins og hann birt­ist í þjóð­hags­reikn­ingum og greiðslu­jöfn­uði, var nei­kvæður um 3,5 millj­arða króna, sam­kvæmt bráða­brigða­tölum Hagstofu Íslands. Hann var aftur á móti jákvæður um 14,2 millj­arða á sama tíma árið 2017, á gengi hvort árs.

Í grein­ingu Arion banka á tölum hag­stof­unnar segir að vöru- þjón­ustu­jöfn­uð­ur­inn á fjórða árs­fjórð­ungi hafi verið nokkur lak­ari en grein­gar­deild bank­ans hafði spáð en bank­inn gerði ráð fyrir afgangi upp á tæpa tvo millj­arða króna. Samkvæmt bank­anum er þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2008 sem vöru- og þjón­ustu­við­skipti skila halla á árs­fjórð­ungi.

42,4 prósent samdráttur á milli ára í þjónustuviðskiptum

Umreikn­aður vöru­skipta­jöfn­uður var óhag­stæður um 37 millj­arða króna en þjón­ustu­jöfn­uður var hag­stæður um 33,4 millj­arða á fjóra árs­fjórð­ungi, sam­kvæmt bráða­brigða­tölum Hag­stof­unnar. Heild­ar­út­flutn­ings­tekjur á fjórða árs­fjórð­ungi 2018, vegna vöru- og þjón­ustu­við­skipta, námu tæpum 329,5 millj­örðum króna en heild­ar­inn­flutn­ingur á vörum og þjón­ustu nam rúmum 333 millj­örðum króna. 

Í grein­ingu Arion banka segir að það hafi verið við­búið að afgangur af þjón­ustu­við­skiptum myndi minnka á milli ára enda hafi „óveð­ur­skýin hrann­ast upp hjá ferða­þjón­ust­unni síð­ustu mán­uði.“ Það reynd­ist rétt en afgangur af þjón­ustu­við­skiptum nam 33,4 millj­arða króna á fjórða árs­fjórð­ungi, sem svarar 42,4 pró­sent sam­drætti á milli ára á föstu gegni, sam­kvæmt grein­ingu bank­ans. Í grein­ingu bank­ans segir að það sé hins vegar ekki ferða­þjón­ustan en tekjur af erlendum ferða­mönnum, ferða­lög og far­þega­flutn­ingar, námu 103 millj­örðum á fjórða árs­fjórð­ung.

Í grein­ing­unni segir að það hafi hins vegar verið annar útflutn­ingur, óferða­þjón­ustu­tengdur útflutn­ingur, sem olli mis­mun­inum. Þar vegar þyngst gjöld fyrir notkun hug­verka, sem á rætur sínar að rekja til útflutn­ings á hug­verkum fyr­ir­tækja í lyfja­iðn­aði. Þessi liður hefur und­an­farin ár verið mjög stór á síð­ari hluta árs­ins, en þá virð­ist sem greiðslur séu færðar til bókar. Árið 2017 komu nær allar greiðsl­urnar inn á fjórða árs­fjórð­ung, þá 25,5 millj­arðar en árið 2018 dreifð­ust þær yfir seinni helm­ing árs­ins, 25 millj­arða sam­tals en aðeins 10 millj­arðar voru bók­færðir á fjórða árs­fjórð­ung. Samkvæmt bank­anum útskýrir þetta að miklu leyti þann 42,3 pró­sent sam­drátt þjón­ustu­af­gangs á milli ára,

Mun minni afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum í fyrra

Ef skoð­aðar eru bráða­birgða­tölur Hag­stof­unnar fyrir árið 2018 í heild, var vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður 2018 jákvæður um 86,5 millj­arða sam­an­borið við 106,8 millj­arða fyrir 2017. Það sam­svarar um 20 pró­sent sam­drætti á milli ára. Heild­ar­út­flutn­ings­tekjur árið 2018 vegna vöru- og þjón­ustu­við­skipta námu 1.323,4 millj­örðum króna en heild­ar­inn­flutn­ingur nam 1.236,8 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár