Gildi greiðir atkvæði gegn kaupum HB Granda á eignum stærsta eigandans

Gildi ætlar að greiða atkvæði gegn 4,4 millj­arða króna kaupum HB Granda á sölu­fé­lögum sem í dag eru í eigu stærsta hlut­hafa félags­ins, Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur.

Gildi líf­eyr­is­sjóður ætlar að greiða atkvæði gegn því á kom­andi hlut­hafa­fundi HB Granda að ákvörðun stjórnar félags­ins um kaup á öllu hlutafé í sölu­fé­lögum í Japan, Hong Kong og á meg­in­landi Kína, sem og þjón­ustu­fé­lagi á Íslandi, frá Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur á 4,4 millj­arða króna verði stað­fest. Selj­and­inn, Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, er jafn­framt er stærsti hlut­hafi HB Granda.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá Gildi. Lagt hefur verið til að kaup­verðið verði greitt með 7,3 pró­sent aukn­ingu á hlutafé HB Granda. Verði kaupin sam­þykkt mun Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur eiga sam­tals 42,31 pró­sent í HB Granda.

Í til­kynn­ing­unni segir að „stjórn félags­ins hefur þannig í hyggju að hefja sölu­starf­semi í Asíu með þeim hætti að verja á veru­legum fjár­munum til þess að fjár­festa í félögum í eigu Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur sem sinna sölu­starf­semi á þessum mörk­uðum. Við­skiptin virð­ast eiga sér afar skamman aðdrag­anda hjá stjórn félags­ins. Að mati Gildis eru þessar fyr­ir­ætl­anir ekki trú­verð­ugar og ekki hefur verið sýnt fram á að aðrar leiðir séu ekki færar til þess að ná fram sömu mark­miðum, mögu­lega með minni til­kostn­aði. Við­skipti milli tengdra aðila verða að vera hafin yfir vafa og að mati sjóðs­ins hefur ekki tek­ist að sýna fram á að þessi við­skipti séu hag­felld og nauð­syn­leg fyrir HB Granda. Gildi hyggst af þessum sökum greiða atkvæði gegn fram­an­greindri til­lögu á hlut­hafa­fundi HB Granda hinn 15. ágúst næst­kom­andi.“

Stjórn HB Granda sam­þykkti kaupin á sölu­fé­lög­unum á fundi sínum 18. júlí og að þau yrðu lögð fyrir hlut­hafa­fund til sam­þykktar. Guð­mundur Krist­jáns­son er for­stjóri HB Granda, og jafn­framt stærsti eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur. Útgerða­fé­lag Reykja­víkur er einnig stærsti eig­andi HB Granda. ­

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár