Halldór Benjamín: Virðist vera keppikefli Eflingar að láta reyna á mörk löglegra verkfalla

Samtök atvinnu­lífs­ins gera athuga­semdir við til­högun fyr­ir­hug­aðra verk­falla Eflingar og ætla sam­tökin að bera lög­mæti þeirra undir Félags­dóm. Félags­menn Efl­ingar sam­þykktu í gær verk­föll meðal starfs­fólks á hót­el­um og hóp­bif­reiða­fyr­ir­tækjum.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Mynd: Hringbraut

Samtök atvinnulífsins munu höfða mál fyrir Félagsdómi til að fá úr því skorið hvort boðuð verkföll Eflingar sem samþykkt voru í gær séu lögleg. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það virðast vera sérstakt keppikefli Eflingar að láta reyna á mörk löglegra verkfalla og því sé eðlilegt að leita úrskurðar Félagsdóms.

Efast um lögmæti örverkfalla

[links]Í fréttatilkynningu á vef Samtaka atvinnulífsins segir að samtökin efist um lögmæti svokallaðra örverkfalla og vinnutruflana sem Efling hefur skipulagt. Þar sem markmiðið sé að fólk mæti til vinnu en sinni ekki tilteknum starfsskyldum. Dæmi um það sé vinnustöðvun sem felur í sér að starfsmaður á hóteli þrífi ekki tiltekin svæði eða hópbifreiðastjóri skoði ekki farmiða farþega. Ekki verði skilið á milli aksturs og þess að hleypa farþegum inn í hópbifreið.

Samtökin telja það jafnframt óheimilt að boða verkföll sem hafi í för með sér að félagsmaður gerist brotlegur við lög, til dæmis umferðarlög. Dæmi um það sé að bifreiðarstjóri stöðvi bifreið kl. 16.00 eða dæli ekki eldsneyti á bifreið, sem getur haft í för með sér að bifreið stöðvist og leiði hugsanlega til ábyrgðar bifreiðarstjóra. Sama eigi við ef bifreiðarstjóri leggur ekki bifreið í stæði og stöðvar þannig umferð.[adspot]

Í tilkynningunni segir jafnframt að það sé lagt til af hálfu Eflingar að starfsmenn hliðri til reglubundnum störfum sínum eftir því sem þörf krefur til að þeim sé unnt að dreifa kynningarefni frá Eflingu. „Það er ekki hlutverk stéttarfélaga að fela verkfallsmönnum verkefni á vinnudegi og önnur falli niður á sama tíma,“ segir í tilkynningunni.

„Með þessu er Efl­ing að marka skörp og ill­verj­andi skil í þróun verk­falls­rétt­ar og beit­ing­ar hans. Það virðist vera sér­stakt keppikefli Efl­ing­ar að láta reyna á mörk lög­legra verk­falla og eðli­legt því að leita úr­sk­urðar Fé­lags­dóms,“ er haft eftir Halldóri Benjamín í fréttatilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár