Heildartekjur hæstar í Garðabæ og á Seltjarnarnesi á síðasta ári

Heild­ar­tekjur ein­stak­linga á Íslandi voru um 6,6 millj­ónir króna að með­al­tali á síð­asta ári eða að jafn­aði um 553 þús­und krónur á mán­uði. Með­al­tal heild­ar­tekna var hæst 8,5 millj­ónir króna á Sel­tjarn­ar­nesi og 8,4 millj­ónir króna í Garðabæ.

Árið 2018 voru heild­ar­tekjur ein­stak­linga á Íslandi um 6,6 millj­ónir króna að með­al­tali eða að jafn­aði um 553 þús­und krónur á mán­uði. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hag­stof­unnar.

Miðgildi heild­ar­tekna var 441 þús­und króna á mán­uði og því var helm­ingur ein­stak­linga með heild­ar­tekjur undir þeirri upp­hæð og helm­ingur yfir. Atvinnu­tekjur voru um 505 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali sé horft til þeirra ein­stak­linga sem voru með atvinnu­tekjur árið 2018. Það er 5,5 pró­sent hækkun frá fyrra ári.

Tekjur ein­stak­linga byggja á skatt­fram­tölum ein­stak­linga frá 16 ára aldri. Atvinnu­tekjur inni­halda launa­tekjur og aðrar starfstengdar greiðslur en heild­ar­tekjur eru sam­tala atvinnu­tekna, fjár­magnstekna og ann­arra tekna sem til dæmis geta verið líf­eyris- eða bóta­greiðslur.

Miðgildi atvinnu­tekna var 447 þús­und krónur. Atvinnu­tekjur ein­stak­linga á aldr­inum 25 til 74 ára voru að með­al­tali 571 þús­und krónur á mán­uði árið 2018 og var eitt pró­sent ein­stak­linga á þeim aldri með að jafn­aði tæp­lega tvær millj­ónir króna eða meira í atvinnu­tekjur á mán­uði.

Lægstar heildartekjur í Akrahreppi

Meðaltal heild­ar­tekna árið 2018 var hæst 8,5 millj­ónir króna á Sel­tjarn­ar­nesi og 8,4 millj­ónir króna í Garðabæ, en það voru einu sveit­ar­fé­lögin þar sem heild­ar­tekjur ein­stak­linga voru að með­al­tali yfir 8 millj­ónir króna.

Sé hins vegar horft til mið­gildis voru heild­ar­tekjur nokkuð lægri eða rúm­lega 6,2 millj­ónir króna í báðum sveit­ar­fé­lög­unum. Heild­ar­tekjur í Bol­ung­ar­vík voru 7,6 millj­ónir króna að með­al­tali árið 2018, 7,3 millj­ónir króna í Kjósa­hreppi og 7,2 millj­ónir króna í Kópavogi. Í sjö sveit­ar­fé­lögum var með­al­tal heild­ar­tekna undir 5 millj­ónum króna árið 2018. Lægstar voru heild­ar­tekjur í Akra­hreppi 4,3 millj­ónir króna og 4,4 millj­ónir króna í Húna­vatns­hreppi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár