Minni aukning í umferðinni á síðasta ári

Mun minni aukn­ing var í umferð­inni árið 2018 en árin þar á undan. Þó að heild­ar­aukn­ing yfir árið sé tals­verð þarf að fara aftur til árs­ins 2013 til að finna minni aukn­ingu á milli ára.

Umferðin árið 2018 jókst í heild um 4,6 pró­sent á Hring­veg­inum. Fara þarf aftur til árs­ins 2013, þegar hún var 3,4 pró­sent, til að finna minni aukn­ingu á milli ára en aukn­ing var mun meiri árin 2016 og 2017. Árið 2017 var hún 10 pró­sent, árið þar á undan 14,3 pró­sent, árið 2015 5,9 pró­sent og árið 2014 5,4 pró­sent.

Þetta kemur fram í frétt Vega­gerð­ar­innar.

Umferðin í des­em­ber­mán­uði árið 2018 jókst um 3,4 pró­sent miðað við sama mánuð árið 2017. Í frétt Vega­gerð­ar­innar segir að ljóst sé að umferðin hafi auk­ist í öllum mán­uðum árs­ins fyrir utan febr­úar en þá varð 2,6 pró­sent sam­dráttur.

Umferðin jókst mest um Suðurland á síðasta ári

Mest jókst umferðin um Vest­ur­land í des­em­ber eða um 6,4 pró­sent en minnst varð aukn­ingin um Norð­ur­land eða um 1,3 pró­sent. Vega­gerðin telur mögu­lega skýr­ingu vera þá að nið­ur­fell­ing gjald­skyldu í Hval­fjarð­ar­göngum hafi orðið til þess að umferðin hafi auk­ist þetta mikið á Vest­ur­landi – umfram aðra lands­hluta en næst mest jókst umferðin um Suð­ur­land eða um 5,1 pró­sent.

Nú liggur það fyrir að umferðin á síð­asta ári hafi auk­ist um 4,6 pró­sent yfir 16 lyk­il­telj­ara á Hring­vegi miðað við árið 2017. Mest jókst umferðin um Suð­ur­land eða um 7,4 pró­sent en minnst um Norð­ur­land eða um 2,5 pró­sent. 

Umferðin jókst á öllum viku­dögum og hlut­falls­lega mest á mánu­dögum eða 4,8 pró­sent en minnst jókst umferðin á sunnu­dögum eða um 1,5 pró­sent. Mest var ekið á föstu­dögum en minnst á þriðju­dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár