Segir Sjálfstæðisflokkinn klofinn og formanninn í vandræðum

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn ekki geta borið ábyrgð á fram­kvæmd EES-samn­ings­ins lengur vegna einna „grimm­ustu“ inn­an­flokksá­taka sem sögur fara af.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn ekki hafa nægj­an­legan stuðn­ing í bak­land­inu, ekki núna og ekki á næstu árum, til þess að geta borið á fram­kvæmd EES-samn­ings í rík­is­stjórn. Hún segir að rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins ýti undir sundr­ung í flokknum þegar kemur að þriðja orku­pakk­anum og flokk­ur­inn sé nú klof­inn. Þetta kemur fram í aðsendri grein Þor­gerðar Katrínar í Frétta­blað­inu í dag.

Spotta og hæða formanninn

Í grein­inni sem ber yfir­skrift­ina „Ræður Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki við EES?“ skrifar Þor­gerður Katrín að við Sjálf­stæð­is­flokknum blasi ein grimm­ustu inn­an­flokksá­tök sem sögur fari af í ára­tugi. Hún segir rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, Davíð Oddsson og Harald Johann­es­sen, hafa farið fyrir þeirri fylk­ingu sem and­víg er inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans og þeir stað­hæfi að þing­menn sem styðja málið eigi lít­inn sem engan stuðn­ing í röðum almennra flokks­manna og for­ystu­fólks í flokks­fé­lögum.

Þá segir Þor­gerður Katrín að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé í vand­ræðum þar sem aft­ur­halds­öflin í Sjálf­stæð­is­flokknum séu harður and­stæð­ingur. Auk þess segir hún rit­stjór­ana spotta og hæða Bjarna með því að benda í sífellu að hann hafi verið á móti mál­inu í byrjun en sé því fylgj­andi núna.

Segir þessi átök marka þáttaskil í stjórnmálasögunni

Jafn­framt segir Þor­gerður Katrín að rit­stjór­arnir hafi sér­stak­lega beitt sér gegn Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur ráð­herra og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Athygl­is­vert er að rit­stjór­arnir hafa kapp­kostað að lít­il­lækka rit­ara og vara­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem hafa verið öfl­ugir tals­menn inn­leið­ingar og alþjóða­sam­starfs,“ skrifar hún. „Þær eru sagðar svo óskýrar í hugsun, ungar og óreyndar að engum hefði á árum áður dottið í hug að fela slíku fólki trún­að­ar­störf af þessu tagi.“

Að mati Þor­gerðar Katrín hafa hins vegar for­ystu­konur Sjálf­stæð­is­flokks­ins sýnt að mál­efna­lega standi þær feti framar en margir þeir karlar sem lengst hafa gegnt æðstu for­ystu­hlut­verkum í flokknum.

Hún segir aftur á móti að þessu „mál­efna­lega og þrótt­mikla fólki“ hafi ekki tek­ist að hrekja full­yrð­ingar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins að þorri flokks­manna og for­ystu­manna flokks­fé­laga standi eins og klettur gegn þing­mönn­unum. „Að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi ekki bak­landið með sér í orku­pakka­mál­inu. En það er einmitt sá veru­leiki sem veldur því að þessi átök marka þátta­skil í stjórn­mála­sög­unni,“ segir Þor­gerður Katrín.

Munu ekki hafa nægan stuðning til að geta borið ábyrgð á framkvæmd EES-samningsins

Jafn­framt segir Þor­gerður Katrín í grein­inni að þó það sé ljóst að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni sam­þykkja inn­leið­ingu orku­pakk­ans í ágúst þá muni í kjöl­farið ný til­efni verða fundin til þess að við­halda átök­unum um EES-samn­ing­inn með til­heyr­andi þrýst­ingi. Að hennar mati er það ólík­legt að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni standa þann þrýst­ing.

„Á síð­ustu öld var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn óum­deil­an­lega kjöl­festan þegar kom að utan­rík­is­póli­tík lands­ins. Þetta eru því ein­hver mestu mál­efna­legu ham­skipti sem orðið hafa í einum stjórn­mála­flokki. Kjarni máls­ins er sá að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa ekki og munu ekki á næstu árum hafa nægj­an­legan stuðn­ing í bak­land­inu til þess að geta borið ábyrgð í rík­is­stjórn á fram­kvæmd EES-samn­ings­ins. Það sjá allir, “ segir Þor­gerður Katrín.

Að lokum segir hún að nú, líkt og fyrir þremur árum síðan þegar Viðreisn var stofnuð og allar götur síðan, standi þeir frjáls­lyndu í flokknum frammi fyrir því „að þurfa að kyngja póli­tísku erindi sínu til þess að friða bak­landið í þver­klofnum flokki – eða leita ein­fald­lega á önnur mið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár