Kynferðisleg áreitni og ofbeldi í álverunum og verklag þeirra

Alls hafa 27 til­kynn­ingar borist álfyr­ir­tækj­unum þremur, Fjarða­áli, Norð­ur­áli og Rio Tinto á síð­ustu fjórum árum. Kjarninn kann­aði þá verk­ferla sem málin fara í innan fyr­ir­tækj­anna.

Frá fyrstu metoo-bylgj­unni hefur mikið vatn runnið til sjávar varð­andi umræðu um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum. Í lok árs skrif­uðu tæp­­­lega 5.650 kon­ur úr hinum ýmsu starfs­­­stéttum sem lifa við margs konar aðstæður undir áskorun þar sem þær settu fram kröfur sínar og deildu með þjóð­inni 815 frá­sögn­um.

Kjarn­inn hefur und­an­farið kannað hvernig verk­lagi í íþrótta­sam­bönd­um, opin­berum fyr­ir­tækjum og stofn­unum, stærstu bönk­unum og leik­hús­unum sé háttað og hversu margar til­kynn­ingar hafi borist síðan fyrsta bylgja metoo hófst.

Hér koma svör þriggja stærstu fyr­ir­tækj­anna sem reka álver á Íslandi, Fjarða­áls, Rio Tinto og Norð­ur­áls.

Tvö mál enduðu með uppsögn

Síðustu fjögur ár hafa alls 11 form­legar til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­lega áreitni borist mannauð­steymi Fjarða­áls sem rekur álverið á Reyð­ar­firði. Í 10 til­fellum voru ger­endur eða meintir ger­endur karl­menn og í einu kona.

Þetta kemur fram í svari Fjarða­áls við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Tvö mál end­uðu með upp­sögn, tvö mál end­uðu með áminn­ingu og til­færslu í starfi, fjögur mál end­uðu með sátt og lauk þremur málum án frek­ari aðgerða þar sem rann­sókn sem fram fór skil­aði ekki nið­ur­stöðu sem var grund­völlur neinna aðgerða.

Í svar­inu segir að hjá Fjarða­áli sé unnið sam­kvæmt skýrum verk­ferlum þegar upp koma mál af þessum toga sem sé vel skil­greindur í verk­lags­reglum. Sér­fræð­ingar mannauð­steymis, hjúkr­un­ar­fræð­ingur á heilsu­gæslu og sér­fræð­ingar vel­ferð­ar­þjón­ustu komi einnig að mál­unum.

„Fyr­ir­tækið er í sam­starfi við Empower um inn­leið­ingu á Jafn­rétt­is­vísi og í því ferli verða allir núver­andi verk­ferlar rýndir með til­liti til þess hvort eitt­hvað megi bæta við okkar ferla eða hvort þeir séu full­nægj­andi,“ segir í svar­inu.

Fram kemur hjá Fjarða­áli að starfs­menn geti fyllt út eyðu­blað sem aðgengi­legt er að innri vef Fjarða­áls og sent inn til mannauð­steymis þar sem þeir til­kynna um áreitni eða ein­elti.

Sú til­kynn­ing virki þær verk­lags­reglur sem til eru hjá fyr­ir­tæk­inu yfir slík mál. Til­gang­ur­inn með ferlunum sé að tryggja fag­lega með­höndlun vegna ein­eltis, kyn­ferð­is­legs eða kyn­bund­ins áreitis á vinnu­stað.

Talað um forvarnir í verklagsreglunum

Í verk­lags­regl­unum er skil­grein­ingar á ein­elti, kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi og dæmi tekin um slíka hegðun.

Einnig eru upp­lýs­ingar um boð­leiðir í verk­lags­regl­unni þannig að starfs­menn átti sig á hvert þeir geti leitað, hver sé hjálp­ar­keðjan. Þar er tekið fram að sér­fræð­ingur í mannauð­steymi haldi utan um skrán­ingar á þessum til­kynn­ingum sem koma inn.

Þá er farið yfir ferlið eða fram­kvæmd­ina þegar starfs­maður sem orðið hefur fyrir ein­hverju til­kynnir brotið. Fram kemur hjá Fjarða­áli að næsti yfir­maður og mannauð­steymið, vinnu­vernd­ar­full­trúi, hjúkr­un­ar­fræð­ingur þurfi að koma að mál­inu. Stundum sé utan­að­kom­andi aðili feng­inn í verkið – en fyr­ir­tækið vinnur einnig með heilsu­vernd.

Þá er talað um for­varnir í verk­lags­reglum, það er hvað hægt sé að gera til að koma í veg fyrir að alvar­leg mál komi upp. Samkvæmt Fjarða­áli eru starfs­manna­sam­töl nýtt í slíkar for­varnir og vill fyr­ir­tækið þar af leið­andi tryggja fræðslu og þjálfun í þessum mála­flokki.

Eins sé mik­il­vægt að starfs­menn þekki þær leiðir sem koma til greina ef upp koma atvik er varða kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi.

Afleiðingar af því að haga sér ósæmilega

Að hámarki mega líða sjö dagar frá því að kvörtun kemur inn á borð fyr­ir­tæk­is­ins þangað til málið fer í ferli. Þá er tekið fram í verk­lags­regl­unum að öll mál séu tekin mjög alvar­lega.

Verk­lags­lýs­ing­arnar eru utan um form­legu ferl­ana en einnig koma upp óform­leg mál, sam­kvæmt fyr­ir­tæk­inu. Sumir vilja ekki að mál þeirra fari í form­legt ferli en fram kemur hjá Fjarða­áli það geti verið flókið. Þá komi til kasta næstu yfir­manna og mannauðteymis að takast á við þau mál.

Fjarðaál er með sér­staka stefnu gegn hefnd­ar­að­gerðum en starfs­menn geta hringt í svo­kall­aða heil­ind­ar­línu og til­kynnt um hvers kyns atvik sem teng­ist ekki endi­lega þessum málum heldur öllu sem við­kemur fyr­ir­tæk­inu.

Ef starfs­maður hringir í þessa línu og til­kynnir eitt­hvað atvik þá má ekki beita hefnd­ar­að­gerðum gegn þeim ein­stak­lingi, sam­kvæmt reglum fyr­ir­tæk­is­ins. Bæði sé hægt að koma með nafn­lausar ábend­ingar og undir nafni.

Fyr­ir­tækið má ekki greina opin­ber­lega frá nið­ur­stöðu mála þar sem nöfn ein­stak­ling­anna sem um ræðir koma fram. En það hefur verið rætt innan Fjarða­áls að segja frá til að mynda fjölda til­fella á inn­an­hús­fundum. „Það er mik­il­vægt að fólk viti að það séu afleið­ingar af því að haga sér ósæmi­lega.“

Málin eru alltaf unnin og lokið með ein­hverjum hætti, kemur fram hjá Fjarða­áli.

Mynd: Aðsend mynd
Mynd: Aðsend mynd

Tveimur málum lauk með áminningu

Á árunum 2017 til 2021 hafa fimmtán mál komið á borð stjórn­enda Norð­ur­áls, sem rekur álverið á Grund­ar­tanga, er varða kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi, að því er fram kemur í svari fyr­ir­tæk­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fimm mál komu upp fyrstu 10 mán­uði árs­ins 2021 en tveimur mál­anna lauk með áminn­ingu og eitt með til­færslu í starfi. Í einu til­felli skorti þjálfun og bætt sam­skipti og í öðru til­viki reynd­ist ekki fótur fyrir ásök­unum.

Þá komu upp fjögur máli árið 2020, tvö árið 2019, ekk­ert árið 2018 og fjögur árið 2017.

„Norðurál er með ítar­lega verk­ferla um við­brögð við ein­elti, kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni og öðru ofbeldi. Þessir ferlar eru aðgengi­legir öllu starfs­fólki, þeir eru kynntir þegar fólk hefur störf hjá fyr­ir­tæk­inu og reglu­lega eftir það. Jafn­framt er spurt um þessa þætti í vinnu­staða­grein­ingum,“ segir í svar­inu.

Talað er um for­varnir gegn ein­eltis-, áreitis- og ofbeld­is­málum í mann­rétt­inda- og jafn­rétt­is­stefnu og í jafn­rétt­is­á­ætlun segir: „Undir engum kring­um­stæðum er ein­elti, kyn­ferð­is­leg áreitni, kyn­bundin áreitni eða annað ofbeldi liðið á vinnu­staðnum. Einelti, kyn­ferð­is­leg áreitni, kyn­bundin áreitni og annað ofbeldi er brot á starfs­skyldum og óásætt­an­leg hegðun á vinnu­stað.“

Allar kvartanir skoðaðar

Í svar­inu kemur jafn­framt fram að farið hafi verið í ítar­lega end­ur­skoðun á verk­ferlum eftir að spurt var um þessi mál í vinnu­staða­grein­ingu fyrir um 10 árum síðan, en „alla tíð virð­ast þau þó hafa verið litin alvar­legum augum“.

Allar kvart­anir um ein­elti, kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni og annað ofbeldi sem ber­ast eru skoð­aðar ofan í kjöl­inn, sam­kvæmt fyr­ir­tæk­inu.

„Rætt er við meinta þolendur og meinta ger­endur og rit­aðar eru greina­gerðir sem máls­að­ilar stað­festa. Ef við á er rætt við vitni og þeirra frá­sögn skrá­sett.

Þegar atvik hafa verið upp­lýst og nið­ur­staðan talin sú að brotið hafi verið á starfs­manni er það fram­kvæmda­stjóra mannauðs­mála, fram­kvæmda­stjóra Norð­ur­áls og/eða for­stjóra að ákveða hvort ger­andi fær áminn­ingu, er færður til í starfi eða er vikið úr starfi. Ef atvik flokk­ast ekki undir ein­elti, áreitni eða annað ofbeldi eru máls­að­ilar upp­lýstir um þá nið­ur­stöðu, en áfram er fylgst með sam­skiptum hlut­að­eig­andi ef við á,“ segir í svar­inu.

Að end­ingu kemur fram hjá Norð­ur­áli að eðli máls­ins sam­kvæmt sé um við­kvæman mála­flokk að ræða og fyllsta trún­aðar gætt.

Mynd: Úr safni
Mynd: Úr safni

Eitt mál komið upp hjá ISAL

Á síð­ustu fjórum árum hefur komið upp eitt til­vik þar sem kvartað var vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni eða ofbeldis hjá ISAL, álver­inu í Straums­vík sem rekið er af Rio Tinto á Íslandi.

Þetta kemur fram í svari fyr­ir­tæk­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Tilvikið var rann­sakað af hlut­lausum fag­að­ila í sam­ræmi við verk­ferla hjá fyr­ir­tæk­inu. Málinu lauk með því að einn starfs­maður var lát­inn hætta hjá fyr­ir­tæk­inu. Starfs­fólk sem kvart­aði fékk við­eig­andi fag­lega aðstoð, sam­kvæmt Rio Tinto.

„Tekið er á þessum málum í sam­ræmi við stefnu og verk­ferla ISAL um við­brögð gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi. Hjá ISAL er starf­andi sér­stakt ein­eltisteymi og fagráð sem vinnur að fram­gangi þess­ara mála,“ segir í svar­inu.

Enn fremur kemur fram að kyn­ferð­is­legt- og kyn­bundið áreiti og ofbeldi sé ekki undir neinum kring­um­stæðum umborið hjá fyr­ir­tæk­inu.

Í verk­lagi fyr­ir­tæk­is­ins kemur fram að starfs­maður sem hefur vit­neskju um ein­elti, áreitni eða ofbeldi á vinnu­stað skuli upp­lýsa næsta yfir­mann, sinn fram­kvæmda­stjóra eða fram­kvæmda­stjóra starfs­manna­sviðs. Starfs­maður sem orðið hefur fyrir áreiti er hvattur til að hafa sam­band við næsta yfir­mann, sinn fram­kvæmda­stjóra, fóstra, trún­að­ar­mann, lækni, hjúkr­un­ar­fræð­ing, starfs­manna­þjón­ustu eða leið­toga heil­brigð­is­mála sem aðstoðar við­kom­andi að kom­ast í sam­band við ein­eltisteymið eða fram­kvæmda­stjóra starfs­manna­sviðs. Einnig er hægt að hafa beint sam­band við full­trúa ein­eltisteymis.

Í sam­ráði við þol­anda er ákveðið hvort bregð­ast skuli við með óform­legri máls­með­ferð eða hvort lög og reglur á sviði vinnu­verndar krefj­ist form­legrar máls­með­ferðar. Fram kemur í verk­lag­inu að í öllum til­vikum muni fyr­ir­tækið huga að líðan meints þol­anda og ger­anda. Mögulegt sé að máls­að­ilar þurfi á sér­fræði­að­stoð að halda, til að mynda aðstoð trún­að­ar­læknis eða sál­fræð­ings, og muni slík aðstoð standa þeim til boða.

Óformleg máls­með­ferð felst í því að við­kom­andi fram­kvæmda­stjóri og fram­kvæmda­stjóri starfs­manna­sviðs fara yfir málið með meintum þol­anda og grípa til við­eig­andi aðgerða í sam­ráði við mein­tan þol­anda. Við með­ferð máls verði sýnt var­færni og nær­gætni með virð­ingu og einka­hagi hlut­að­eig­andi starfs­manns í huga og fyllsta trún­aðar gætt.

Eineltisteymi metur stöðu málsins að þremur mánuðum liðnum

Einnig getur meintur þol­andi óskað eftir form­legri máls­með­ferð. Málið er kannað með því að ræða við mein­tan þol­anda, mein­tan ger­anda og aðra sem gætu varpað ljósi á málið. Leitast er við að athugun máls taki sem skemmstan tíma, segir í verk­lags­regl­unum. Sérstakt ein­eltisteymi sér um að koma mál­inu í far­veg hjá utan­að­kom­andi fag­að­ila sem sér um athugun máls­ins.

Þegar athugun er lokið er hald­inn skila­fundur með við­kom­andi fram­kvæmda­stjórum og fram­kvæmda­stjóra starfs­manna­sviðs þar sem fag­að­ili kynnir nið­ur­stöður og leggur fram til­lögur um aðgerðir. Við­kom­andi fram­kvæmda­stjóri og fram­kvæmda­stjóri starfs­manna­sviðs kynna nið­ur­stöðu máls­ins fyrir máls­að­ilum í sitt­hvoru lagi og kynna þær aðgerðir sem gripið verður til.

Ein­eltisteymið fær upp­lýs­ingar um aðgerð­ar­á­ætlun og að þremur mán­uðum liðnum skal það kanna stöðu máls­ins. Ef teymið metur að aðgerðir hafi skilað til­settum árangri er mál­inu lokað. Annars er mál­inu vísað til fram­kvæmda­stjóra starfs­manna­sviðs sem ákveður næstu skref.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár