71 tilkynning um kynferðislega áreitni og ofbeldi hjá 9 opinberum stofnunum og fyrirtækjum

Á síð­ustu fjórum árum hafa borist yfir sjö­tíu til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi til stjórn­enda níu opin­berra fyr­ir­tækja og stofn­ana. Lang­flestar voru þær hjá Háskóla Íslands.

Metoo er ekki lokið ef marka má frétta­flutn­ing síð­ustu mán­aða en all­mörg slík mál hafa ratað á ver­ald­ar­vef­inn að und­an­förnu. Sam­fé­lags­miðlar hafa logað – sér­stak­lega Twitter – þar sem konur á öllum aldri hafa greint frá reynslu sinni af kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi og nú síð­ast byrlun.

Í fyrstu metoo-bylgj­unni í lok árs 2017 skrif­uðu tæp­lega 5.650 kon­ur úr hinum ýmsu starfs­stéttum sem lifa við margs konar aðstæður undir áskorun þar sem þær settu fram kröfur sínar og deildu með þjóð­inni 815 sög­um. Hver og ein frá­sögn lýsti reynslu konu sem þurft hefur að takast á við áreiti, ofbeldi eða mis­munun vegna kyns síns. Mikið ákall var í sam­fé­lag­inu að verk­ferlum yrði breytt varð­andi þessi mál í öllum kimum sam­fé­lags­ins og var víða brugð­ist við því ákalli.

Kjarninn kann­aði málið og sendi fyr­ir­spurnir meðal ann­ars á opin­berar stofn­anir og fyr­ir­tæki til að kanna hversu margar til­kynn­ingar hefðu borist síðan lok árs 2017 og hverjir verk­ferl­arnir væru í við­kom­andi stofnun eða fyr­ir­tæki. Hér koma svörin.

Sex málum lauk með starfslokum geranda

Til­kynnt hefur verið um sjö til­vik kyn­ferð­is­legrar áreitni eða ofbeldis innan Orku­veitu Reykja­víkur (OR) síð­ustu fjögur ár. Í tveimur til­vikum var ger­and­inn starfs­maður verk­taka. Til­vikin eru á tíma­bil­inu apríl 2018 til apríl 2021 en síðan þá hefur ekk­ert atvik verið til­kynnt.

Í einu til­viki lauk mál­inu með skrif­legri áminn­ingu og sátt þol­anda og ger­anda. Í hinum til­vik­unum öllum lauk mál­inu með starfs­lokum ger­anda, hvort sem um var að ræða verk­taka eða starfs­mann, að því er fram kemur í svar­inu.

Gera vinnu­staða­grein­ingu árlega

„Hjá OR sam­stæð­unni er í gildi við­bragðs­á­ætlun við ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni. Hún fylgir hér með svar­inu. Við­bragðs­á­ætl­unin var unnin í sam­starfi við Líf og sál sál­fræði­þjón­ustu og í sam­ráði við Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins. Hún er end­ur­skoðuð reglu­lega, síð­ast á yfir­stand­andi ári,“ segir enn fremur í svar­inu.

Orku­veitan bendir á í svar­inu að fyr­ir­tækið geri ítar­lega vinnu­stað­ar­grein­ingu árlega meðal allra starfs­manna fyr­ir­tækj­anna í sam­stæð­unni. Þátt­taka sé jafnan meiri en 95 pró­sent. Meðal ann­ars er spurt hvort starfs­maður hafi orðið fyrir ein­elti eða kyn­ferð­is­legri áreitni. Nið­ur­stöð­urnar eru birtar opin­ber­lega í árs­skýrslu Orku­veitu Reykja­víkur. Fram kemur í nið­ur­stöð­unum að 1 pró­sent starfs­fólks sagð­ist hafa orðið fyrir ein­elti eða kyn­ferð­is­legri áreitni árið 2019 og 0,2 pró­sent í fyrra.

Átta málum lokið og eitt í ferli

Níu mál sem skil­greina má sem kyn­ferð­is­lega áreitni eða áreiti hafa farið í form­legt ferli á Land­spít­ala á und­an­förnum fjórum árum. Þeim úrræðum sem almennt er hægt að beita á spít­al­anum í svona málum eru til dæmis form­leg við­vör­un, til­flutn­ing­ur/breyt­ing á starfi, áminn­ing eða upp­sögn.

Átta málum hefur verið lokið og er eitt mál enn í form­legu ferli og ólok­ið. „Við höfum ekki leyfi til að tala um hvernig ein­stökum málum er lokað eftir því sem ég best veit. Þetta eru 8 mál – fólk innan spít­al­ans veit af þeim, og þau eru það fá að þau gætu verið per­sónu­grein­an­leg,“ segir í svari upp­lýs­inga­full­trúa spít­al­ans.

„Ferlið sem heldur utan um slík til­vik er skil­greint sem verk­lags­regla í gæða­hand­bók spít­al­ans, fjallað er um það á innri vef spít­al­ans og það kynnt fyrir starfs­mönnum í tengslum við sam­skipta­sátt­mála,“ segir jafn­framt í svar­inu.

Sam­kvæmt skil­greindum verk­ferlum fyrir mál af þessu tagi er starfs­maður sem upp­lifir áreitni hvattur til að til­kynna það til næsta stjórn­anda og/eða mannauðs­stjóra, að því er fram kemur hjá spít­al­an­um.

„Í ákveðnum til­fellum tekur stuðn­ings- og ráð­gjafateymi á skrif­stofu mannauðs­mála erindið til skoð­un­ar. Til­gangur þeirrar skoð­unar er að leggja sam­eig­in­lega mat á það hvort umkvörtun falli undir skil­grein­ingu á ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni eða ofbeldi. Til­gang­ur­inn er einnig að kanna hvaða lausnir séu mögu­legar og styðja þol­anda vilji hann leggja fram form­lega kvörtun. Í öllum til­vikum er lögð áhersla á að trúnað og virð­ingu gagn­vart öllum hlut­að­eig­and­i.“

Ellefu tilvik hjá Landsvirkjun

Alls hafa 11 til­vik er varða ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni, áreiti eða ofbeldi borist á borð stjórn­enda Lands­virkj­unar á síð­ustu fjórum árum.

Fram kemur hjá fyr­ir­tæk­inu að Lands­virkjun sé með skil­greinda við­bragðs­á­ætlun fyrir grein­ingu og úrvinnslu mála af þessu tagi í sam­ræmi við reglu­gerð um aðgerðir gegn kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni eða ofbeldi. Við­bragðs­á­ætl­unin sé hluti af stjórn­un­ar­kerfi fyr­ir­tæk­is­ins og end­ur­skoðuð með reglu­bundnum hætti. Í starfs­manna­könn­unum komi enn fremur fram að starfs­fólk þekki vel til við­bragðs­á­ætl­un­ar­inn­ar.

Þremur málum lauk með starfs­lokum

„Á síð­ustu fjórum árum hefur komið til þess að stuðst hefur verið við fram­an­greint verk­lag við úrlausn mála. Lands­virkjun er enn fremur í sam­starfi við ytri sér­fræð­inga um mála­flokk­inn við úrvinnslu mála sem falla undir við­bragðs­á­ætl­un­ina. Stöðugt er unnið að fræðslu og for­vörnum innan fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi þennan mála­flokk, m.a. með vinnu á áhættu­mati, reglu­legri fræðslu um mála­flokk­inn og öruggri óháðri veit­u/­leið fyrir starfs­fólk að leita til ef upp koma mál,“ segir í svar­inu.

Enn fremur kemur fram að á síð­ast­liðnum fjórum árum hafi verið stuðst við við­bragðs­á­ætl­un­ina í 11 til­vik­um. „Málin sem um ræðir eru af ýmsu tagi og snúa bæði að starfs­fólki, verk­tökum og sam­skiptum starfs­fólks við ytri aðila. Tveimur málum lauk með sátt, tveimur með munn­legri áminn­ingu, tveimur með skrif­legri áminn­ingu, þremur málum lauk með starfs­lokum og tvö mál sem sneru að ytri aðilum voru leyst með öðrum hætt­i.“

Átta málum lauk með starfslokum geranda

Ell­efu mál sem snúa að kyn­ferð­is­legu áreiti eða kyn­bundnu ofbeldi komu á borð stjórn­enda Isa­vi­a-­sam­stæð­unnar á árunum 2017 til 2020. Þremur málum lauk með sátt og átta málum með starfs­lokum ger­anda.

Isa­via ohf. ann­ast upp­bygg­ingu og rekstur Kefla­vík­ur­flug­vall­ar. Dótt­ur­fé­lög þess Isa­via ANS og Isa­via Inn­a­lands reka ann­ars vegar flug­leið­sögu­þjón­ustu á einu stærsta flug­stjórn­ar­svæði heims og hins vegar net inn­an­lands­flug­valla á Íslandi. Þessu til við­bótar rekur dótt­ur­fé­lagið Frí­höfnin ehf. fimm versl­anir í Flug­stöð Leifs Eiríks­sonar á Kefla­vík­ur­flug­velli. Hjá Isa­via og dótt­ur­fé­lögum vinnur hópur sem telur um 1.000 manns.

„Of­beldi, ein­elti eða önnur sál­fé­lags­leg áreitni, þar með talið kyn­bundin og kyn­ferð­is­leg áreitni, er ekki undir neinum kring­um­stæðum umborin hjá Isa­vi­a,“ segir í svar­inu.

Þegar upp koma mál af þessu tagi er við­bragðs­á­ætlun Isa­via virkj­uð. Sam­kvæmt fyr­ir­tæk­inu er við­bragðs­á­ætlun sem þessi tekin reglu­bundið til end­ur­skoð­unar eins og allar áætl­anir hjá Isa­via. „Ein slík end­ur­skoðun er í gangi þessar vik­urnar og er ekki lok­ið,“ segir í svari Isa­via.

Með­virkni starfs­manna for­dæmd

Fram kemur í við­bragðs­á­ætl­un­inni að í starfs­manna­stefnu Isa­via sé lögð rík áhersla á að bæði lík­am­legt og and­legt heilsu­far starfs­manna, gagn­kvæma virð­ingu, umburð­ar­lyndi og stuðn­ing þeirra á með­al. Við­bragðs­á­ætlun við ein­elti og annarri sál­fé­lags­legri áreitni sé frek­ari útfærsla á því mark­miði og gildir fyrir allar starfs­stöðvar Isa­via. Það sé stefna Isa­via að starfs­menn vinni í anda sam­starfs og sýni þannig sam­starfs­fólki sínu alltaf kurt­eisi og virð­ingu í sam­skipt­um. Ein­elti og önnur sál­fé­lags­leg áreitni, svo sem kyn­bundin og kyn­ferð­is­leg áreitni, verður undir engum kring­um­stæðum umbor­in. Með­virkni starfs­manna í slíkum til­vikum sé jafn­framt for­dæmd.

„Við­bragðs­á­ætlun þessi á við um allar starfs­stöðvar Isa­via og jafnt um starfs­menn, stjórn­endur og verk­taka sem starfa á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. Mun Isa­via bregð­ast við ábend­ingum um ein­elti, áreitni eða ótil­hlýði­lega hátt­semi í sam­ræmi við við­bragðs­á­ætlun þessa og í sam­starfi við atvinnu­rek­anda utan­að­kom­andi ein­stak­lings sem á í sam­skiptum við starfs­menn Isa­via. Við mat á því hvort við­bragðs­á­ætlun sé virkjuð skiptir ekki máli hvort ger­andi sé starfs­maður eða til dæmis við­skipta­vin­ur,“ segir meðal ann­ars í áætl­un­inni.

Þegar mál telst nægj­an­lega upp­lýst skuli mannauðs­stjóri taka ákvörð­un, í sam­ráði við aðra stjórn­endur eða vinnu­vernd­ar­full­trúa vinnu­stað­ar­ins, til hvaða aðgerða verði gripið í sam­ræmi við alvar­leika máls hverju sinni.

„Þegar atvik eða hegðun telst vera ein­elti, kyn­ferð­is­leg áreitni, kyn­bundin áreitni, ofbeldi eða önnur ótil­hlýði­lega hegðun verður brugð­ist við eftir eðli máls með því að veita ger­anda til­tal, áminn­ingu, til­færslu í starfi eða honum sagt upp störf­um. Þol­anda og ger­anda verður veitt við­hlít­andi aðstoð. Haldi þol­andi og ger­andi áfram störfum er lögð áhersla á að breyt­ingar verði gerðar á vinnu­staðnum eins og kostur er, svo sem breyt­ingar á vinnu­skipu­lagi, verk­ferlum, stað­setn­ingu innan starfs­stöðva og svo fram­veg­is,“ segir enn fremur í við­bragðs­á­ætl­un­inni.

Tuttugu og fimm tilkynningar til HÍ

Fagráði Háskóla Íslands (HÍ) bár­ust alls 25 til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi á árunum 2017 til 2020, að því er fram kemur í svari frá skól­anum við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

„Mál geta ýmist varðað starfs­fólk, nem­endur eða sam­skipti milli starfs­fólks og nem­enda, en meiri­hluti þess­ara mála hefur varðað sam­skipti milli nem­enda. Í sumum til­vikum lýkur máli með sátt milli aðila en sum mál hafa rektor eða eftir atvikum aðrir stjórn­endur tekið til með­ferðar í kjöl­far nið­ur­stöðu fagráðs­ins,“ segir í svar­inu.

Sam­kvæmt HÍ er skól­inn með skýra verk­ferla í málum er varða kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni og ofbeldi.

„Há­skól­inn setti sér verk­lags­reglur um þennan mála­flokk árið 2014. Þær voru end­ur­skoð­aðar árið 2018, þar á meðal ákvæði um með­ferð kvart­ana. Árið 2014 var jafn­framt sett á fót fagráð Háskóla Íslands sem hefur það hlut­verk að fjalla um mál er varða brot starfs­fólks og nem­enda Háskóla Íslands. Fagráðið er skipað þremur aðilum og er í verk­lags­reglum kveðið skýrt á um að for­maður þess sé aðili með fag­þekk­ingu og reynslu af með­ferð mála af þessu tagi og sé ekki í föstu starfi við HÍ.“

Fram kemur í svar­inu að áhersla sé lögð á fræðslu til stjórn­enda, starfs­fólks og nem­enda við HÍ um kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni og ofbeldi og ekki síst að kynna verk­lags­regl­urnar og fagráð HÍ svo fólk viti hvert það eigi að leita, komi slík mál upp. Enn fremur sé lögð áhersla á þennan mála­flokk í jafn­rétt­is­á­ætlun HÍ.

Eitt mál í skoðun

Þrjú mál er varða kyn­ferð­is­lega áreitni hafa borist á borð stjórn­enda Land­helg­is­gæsl­unnar síð­ast­liðin 4 ár. Tveimur málum hefur verið lokið með sátt milli aðila og er eitt mál nú í skoð­un.

Unnið er eftir stefnu og við­bragðs­á­ætlun Land­helg­is­gæslu Íslands gegn ein­elti, ofbeldi og áreitni á vinnu­stað, að því er fram kemur í svar­inu.

Í svar­inu kemur jafn­framt fram að einn af skip­herrum Land­helg­is­gæsl­unnar sé kom­inn í leyfi á meðan frum­rann­sókn á sam­skiptum um borð í varð­skip­inu Tý fer fram. Ástæða rann­sókn­ar­innar séu ábend­ingar sem bár­ust stjórn­endum Land­helg­is­gæsl­unnar helg­ina 18. til 19. sept­em­ber vegna gruns um kyn­ferð­is­lega áreitni.

Tveir óháðir aðilar rann­saka málið

Kyn­ferð­is­leg áreitni er sam­kvæmt við­bragðs­á­ætl­un­inni hvers kyns kyn­ferð­is­leg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann til­gang eða þau áhrif að mis­bjóða virð­ingu við­kom­andi einkum þegar hegð­unin leiðir til ógn­andi, fjand­sam­legra, nið­ur­lægj­andi, auð­mýkj­andi eða móðg­andi aðstæðna. Hegð­unin getur verið orð­bund­in, tákn­ræn og/eða lík­am­leg.

„Land­helg­is­gæslan lítur málið alvar­legum augum og brást strax við með því að fá tvo óháða aðila til að ann­ast rann­sókn á umræddum atrið­um. Sú rann­sókn stendur yfir,“ segir í svar­inu til Kjarn­ans.

Meintir þolendur tvær ungar konur

RÚV greindi frá mál­inu þann 21. sept­em­ber síð­ast­lið­inn en í frétt RÚV kemur fram að skip­herra á varð­skipi Land­helg­is­gæsl­unnar hefði verið settur í leyfi vegna gruns um kyn­ferð­is­lega áreitni. Þá herma heim­ildir frétta­stofu RÚV að þolend­urnir í mál­inu sem nú er til rann­sóknar séu tvær ungar konur í áhöfn varð­skips­ins.

Mann­líf fjall­aði einnig um málið 18. sept­em­ber en í frétt mið­ils­ins var því haldið fram að innan sjó­deildar Land­helg­is­gæsl­unnar hefði við­geng­ist ein­elti og kyn­ferð­is­leg áreitni gagn­vart kven­kyns starfs­mönn­um. Margar hefðu „hrökkl­ast frá“ Land­helg­is­gæsl­unni í gegnum tíð­ina eða verið sagt upp.

Fjórar tilkynningar hjá RÚV

Sam­kvæmt skrán­ingum RÚV hafa fjórar til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­lega áreitni borist á síð­ast­liðnum fjórum árum. Þetta kemur fram í svari útvarps­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

„Brugð­ist hefur verið við þeim í sam­ræmi við við­bragðs­á­ætlun og leyst úr málum á grunni henn­ar. Við­bragðs­á­ætl­unin er end­ur­skoðuð reglu­lega, síð­ast í ágúst síð­ast­liðn­um,“ segir í svar­inu. Kyn­ferð­is­leg áreitni er skil­greind í við­bragðs­á­ætl­un­inni sem hvers kyns hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann til­gang eða þau áhrif að mis­bjóða virð­ingu við­kom­andi einkum þegar hegð­unin leiðir til ógn­andi, fjand­sam­legra, nið­ur­lægj­andi, auð­mýkj­andi eða móðg­andi aðstæðna. Hegð­unin getur verið orð­bund­in, tákn­ræn og/eða lík­am­leg.

Fram kemur hjá RÚV að spurt sé um þessi mál í árlegri vinnu­staða­grein­ingu og fræðsla um þau, við­bragðs­á­ætlun og verk­ferla sé hluti af fræðslu til starfs­fólks RÚV. Við­bragðs­á­ætlun RÚV gegn ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni er aðgengi­leg á innri og ytri vef RÚV.

Í við­bragðs­á­ætl­un­inni segir að hver sem telur sig hafa orðið fyrir ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­legri eða kyn­bund­inni áreitni á vinnu­stað, eða hafa rök­studdan grun eða vit­neskju um slíka hegð­un, skuli upp­lýsa næsta yfir­mann, annan stjórn­anda, mannauðs­stjóra eða annan sem við­kom­andi treyst­ir. Fyllsta trún­aðar skuli gætt við með­ferð slíkra mála og vinnsla þeirra vera í sam­ráði við þann sem til­kynn­ir. Gagn­legt sé að skrá þau atvik sem til­kynn­ingin bygg­ist á og einnig hverjir séu mögu­lega til vitn­is. Ef við­kom­andi vill fá ráð­gjöf utan vinnu­stað­ar­ins sé hægt að leita beint til Áfalla- og sál­fræði­m­ið­stöðv­ar­innar (ÁSM) og fá tíma hjá sál­fræð­ingi.

Þegar til­kynnt er um ein­elti, ofbeldi, kyn­ferð­is­lega eða kyn­bundna áreitni eru tvær leiðir fær­ar. Sá sem fer með úrlausn máls­ins ákveður við­brögðin í sam­ráði við þann er til­kynn­ir. Far­vegur máls getur verið form­legur eða óform­legur og eru þessir kostir kynntir starfs­manni er til­kynn­ir.

Mynd: Vegagerðin/Bára Huld Beck
Mynd: Vega­gerðin/Bára Huld Beck

Eitt mál er varðar kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi hefur borist til stjórn­enda Vega­gerð­ar­innar á síð­ustu fjórum árum en engar ásak­anir um slíkt hafa komið fram hjá Sam­göngu­stofu.

Sam­kvæmt svari Vega­gerð­ar­innar var málið tekið mjög alvar­lega og var feng­inn utan­að­kom­andi ráð­gjafi til að vinna úr mál­inu fyrir þau. „Það er fer­ill um við­brögð sem verið að end­ur­skoða hann núna, líkt og alla aðra ferla mannauðs- og örygg­is­deild­ar,“ segir jafn­framt í svari Vega­gerð­ar­inn­ar.

Verk­lagið í end­ur­skoðun hjá Sam­göngu­stofu

Ekk­ert mál hefur hins vegar borist á borð stjórn­enda Sam­göngu­stofu, eins og áður seg­ir. „Hjá Sam­göngu­stofu er fyrir hendi skýrt verk­lag um með­ferð mála sem upp kunna að koma, svo sem um ein­elti eða áreitn­i,“ segir í svar­inu. Áætlun Sam­göngu­stofu gegn ein­elti og áreitni hefur verið í gildi frá árinu 2014. End­ur­skoðun verk­lags­ins er í ferli „eins og eðli­legt er að gera með reglu­bundnum hætt­i“, segir í svar­i Sam­göngu­stofu.

Í ein­eltis­á­ætlun Sam­göngu­stofu kemur fram að mark­mið hennar sé að stuðla að for­vörnum og aðgerðum gegn ein­elti hjá stofn­un­inni og leggi stofn­unin áherslu á að starfs­menn sýni sam­starfs­fólki sínu alltaf kurt­eisi og að komið sé fram við sér­hvern starfs­mann af virð­ingu.

„Ein­elti og kyn­ferð­is­leg áreitni verður undir engum kring­um­stæðum umborin á vinnu­staðnum og er með­virkni starfs­manna í ein­elti for­dæmd,“ segir meðal ann­ars í áætl­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár