Hvert fara tilkynningar um kynferðislega áreitni eða ofbeldi í íþróttum?

Kjarninn sendi fyr­ir­spurnir á stærstu íþrótta­hreyf­ing­arnar á Íslandi til að kanna hvort ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi hefðu borist á borð stjórn­enda á síð­ustu fjórum til tíu árum. Svörin létu ekki á sér standa.

Konur í íþróttum kröfð­ust þess í byrjun árs 2018 að umhverfi íþrótt­anna breytt­ist, að konum væri gert kleift að segja frá ofbeldi án þess að það kæmi niður á fram­tíð­ar­mögu­leikum þeirra innan íþrótt­ar­inn­ar, að á þær væri hlust­að, að með þeim væri staðið og að þeim væri trú­að.

Þremur og hálfu ári síðar lék allt á reiði­skjálfi innan Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) þegar Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir skrif­aði grein í Vísi í sumar þar sem hún sak­aði KSÍ um þöggun varð­andi kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lands­liðs­manna. Vís­aði hún til frá­sagnar ungrar konu af kyn­ferð­is­legu ofbeldi sem hún varð fyrir árið 2010 sem hún birti á sam­fé­lags­miðlum í byrjun maí en ger­end­urnir voru sagðir hafa verið lands­liðs­menn Íslands í fót­bolta.

Kjarninn óskaði ítrekað eftir svörum hjá KSÍ varð­andi það hvort sam­bandið hefði ein­hvern tím­ann haft vit­neskju um ásak­anir um kyn­ferð­is­brot eða ofbeldi á hendur lands­liðs­manna í fót­bolta, sér í lagi áður en verk­ferlar voru end­ur­bættir en sam­kvæmt yfir­lýs­ingu KSÍ þann 17. ágúst voru all­ir verk­ferl­ar slíkra mála end­ur­bætt­ir og hafði fyrsta bylgja #Met­oo meðal ann­ars áhrif þar á. „Jafn­rétt­isá­ætl­un og jafn­rétt­is­stefna sam­bands­ins hafa verið upp­færðar og er þar fjallað sér­stak­lega um kyn­ferðis­legt of­beldi. Þá hef­ur KSÍ staðið fyr­ir vinnu­stofu um kyn­ferð­isof­beldi fyr­ir aðild­ar­fé­lög sín og bætt fræðslu um kyn­ferð­isof­beldi inn í náms­efni þjálf­ara­mennt­un­ar,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

KSÍ vildi ekki tjá sig um ein­stök mál en í svari frá sam­band­inu til Kjarnans kom fram að þann 20. ágúst kvart­anir um meint brot ein­stakra leik­manna hefðu ekki borist inn á borð KSÍ. Rúmum mán­uði seinna var annað hljóð í skrokknum og stað­festi KSÍ við Kjarnann að ábend­ing hefði borist sam­band­inu „snemm­sum­ars“ um fyrr­nefnt 10 ára gam­alt mál. Deild­ar­stjóra sam­skipta­deildar vissi ekki nákvæm­lega í hvaða formi sú ábend­ing hefði komið inn á borð sam­bands­ins.

„Seinnipart sum­ars barst svo aftur skrif­leg ábend­ing. Frá KSÍ séð var for­mað­ur­inn með það mál á sínu borði. Við höfum ekki upp­lýs­ingar um það hvort KSÍ hafi haft ein­hverja sér­staka vit­neskju um það mál fyrir þann tíma.“ Sú ábend­ing kom með tölvu­pósti þann 27. ágúst, að því er fram kemur í svar­inu, eða degi eftir umtalað við­tal við for­mann sam­bands­ins, Guðna Bergs­son, þar sem hann sagði að engar kvart­anir eða til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot hefðu komið inn á borð KSÍ.

KSÍ svarar ekki hvort málið hafi farið í sér­stakan verk­feril þegar ábend­ingin barst í byrjun júní.

Kjarninn sendi í kjöl­farið á KSÍ-mál­inu fyr­ir­spurnir á stærstu íþrótta­hreyf­ing­arnar á Íslandi til að kanna hversu margar til­kynn­ingar hefðu borist þeim er varðar kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi á síð­ustu árum. Svörin létu ekki á sér standa og svör­uðu allar hreyf­ing­arnar þegar eftir því var leitað. Einnig spurði Kjarninn hvort sér­stakt verk­lag væri til staðar fyrir slíkar til­kynn­ingar innan hreyf­ing­anna.

Mynd: Pexels/Christian Fregnan
Mynd: Pexels/Christian Fregnan

Þurfa að virða óskir þolenda ef þær eru aðrar en að kalla til lög­reglu eða sam­skipta­ráð­gjafa

Eitt mál er varðar kyn­ferð­is­legt áreiti hefur komið form­lega inn á borð Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands (KKÍ) á síð­ustu 10 árum. Málið var „tekið föstum tök­um“, að því er fram kemur í svar­inu.

„Mál koma form­lega inn á borð til okkar með því að þol­andi eða ein­stak­lingur tengdur þolenda með beina vit­neskju til­kynnir okkur um mál. Hvort sem er í beinu sam­tali, gegnum síma eða tölvu­póst­i,“ segir í svar­inu.

Sam­kvæmt KKÍ er sam­bandið með verk­ferla fyrir slík mál.

„Í stuttu máli er það þannig að ef upp kemur mál þá eru for­maður og vara­for­maður fyrstu snertiflet­ir. Málið er yfir­farið og tekin ákvörðun um hvort þurfi að til­kynna til lög­reglu sem við teljum þann far­veg sem svona alvar­leg mál eigi að fara.

Í dag höfum við einnig sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta-og æsku­lýðs­hreyf­ing­ar­innar sem á að fá öll mál til sín. En samt sem áður þurfum við að virða óskir þolenda ef þær eru aðrar en að kalla til lög­reglu eða sam­skipta­ráð­gjafa. Þegar búið er að ná utan um málið er stjórn KKÍ upp­lýst og ítrek­aður trún­aður sem ríkir um svona alvar­leg mál. KKÍ hvetur þá sem telja á sér brotið að til­kynna um slík mál, öðru­vísi er ekki hægt að taka á þeim,“ segir í svar­inu.

HSÍ hefur ekki beina aðkomu að málum sem koma upp innan félag­anna

Hand­knatt­leiks­sam­bandi Íslands (HSÍ) hefur borist eitt erindi er varðar ótil­hlýði­lega hátt­semi starfs­manns sem var skoðað og er lok­ið á síð­ustu fjórum árum, að því er fram kemur í svari HSÍ við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Sam­kvæmt HSÍ kom eitt mál óbeint á þeirra borð fyrir þann tíma en það varð­aði sjálf­boða­liða hjá þeim „sem varð sekur um ótil­hlýði­lega fram­komu vegna starfa hans í félag­i“.

Í svari HSÍ við fyr­ir­spurn Kjarn­ans vill sam­bandið benda á að mál sem koma upp innan félaga fari í ferli hjá félög­unum sjálfum sam­kvæmt leið­bein­ingum ÍBR og ÍSÍ eða sam­kvæmt reglu­gerð um aðgerðir gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni, kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi á vinnu­stöðum ef það á við og hafi HSÍ enga beina aðkomu að þeim.

Ef upp koma mál er tengj­ast starf­semi HSÍ þá sé þeim beint til sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta – og æsku­lýðs­starfs eins og kveðið er á um íþrótta­lög­um.

Ítar­leg­asta svarið barst frá Fim­leika­sam­bandi Íslands (FSÍ) en það hefur fengið til­kynn­ingar um fimm til­felli er varða kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi inn á borð til sín á síð­ustu fjórum til fimm árum. Á vef sam­bands­ins er sér­stakur til­kynn­ing­ar­hnappur þar sem hægt er að til­kynna mál til sér­staks fagráðs.

„Stjórn FSÍ hefur á síð­ustu miss­erum lagt mikla áherslu að búa til þannig umhverfi að ef iðk­endur hafa upp­lifað erf­iða lífs­reynslu geti þeir leitað til sam­bands­ins og við stutt þá og brugð­ist við,“ segir í svar­inu.

Þjálf­ara sagt upp störfum eftir til­kynn­ingar

Fram kemur hjá FSÍ að í lok árs 2016 hafi sam­bandið fengið ábend­ingu frá fagteymi þeirra um ósæmi­lega hegðun þjálf­ara í lands­liðs­verk­efni á vegum sam­bands­ins. Í kjöl­farið hafi málið verið til­kynnt til Íþrótta-og Ólymp­íu­sam­bands Íslands (ÍSÍ) en þjálf­ar­inn var þá að störfum við þjálfun í félagi innan þeirra raða.

Sam­kvæmt FSÍ var stjórn við­kom­andi félags upp­lýst um málið og þjálf­ar­inn boð­aður á fund hjá FSÍ þar sem honum hafi verið til­kynnt að málið hefði borist á borð stjórnar og að hann kæmi ekki til greina sem þjálf­ari í verk­efnum á vegum sam­bands­ins aft­ur. Málið hafi sömu­leiðis verið til­kynnt til barna­vernd­ar.

Í lok árs 2017 hafði félagið sjálft fengið fleiri til­kynn­ingar um þjálf­ar­ann og var honum í fram­hald­inu sagt upp störf­um, að því er fram kemur í svar­inu. FSÍ hafi þá aftur komið inn í málið til að styðja við félag­ið, safnað upp­lýs­ingum og til­kynnt hann aftur til barna­vernd­ar, sem hafi leitt til rann­sóknar hjá lög­reglu. Þjálf­ar­inn sem um ræðir er af erlendu bergi brot­inn og flutt­ist af landi brott í fram­hald­inu, að því er fram kemur hjá FSÍ.

End­ur­skoð­uðu siða­reglur sam­bands­ins í kjöl­farið

Eftir reynslu sam­bands­ins af þessu máli ákvað stjórn FSÍ að stofna óháða aga- og siða­nefnd sem starfar sem leið­bein­andi nefnd fyrir iðk­endur og félög­in. Í henni sitja lög­mað­ur, læknir og sál­fræð­ing­ur. Hægt er að til­kynna mál til nefnd­ar­innar og fá ráð nafn­laust, kjósi við­kom­andi það.

Sam­hliða stofnun aga- og siða­nefndar FSÍ, voru siða­reglur sam­bands­ins end­ur­skoð­aðar og í kjöl­farið sendar til félag­anna, þeim til leið­sagn­ar.

Fleiri mál áttu eftir að koma inn á borð sam­bands­ins. Fram kemur hjá FSÍ að í byrjun árs 2018 hafi lands­liðs­kona leitað til þeirra með mjög erf­iða lífs­reynslu í keppn­is­ferð á vegum FSÍ, þar sem henni hafi verið nauðgað af kepp­anda frá öðru landi.

Sam­kvæmt FSÍ voru við­brögð stjórnar við þeim fréttum þau „að allt kapp var lagt á að standa við bakið á kon­unni, henni veittur sá stuðn­ingur sem hana vant­aði og við hvöttum hana ein­dregið til að segja sína sögu og vorum til staðar fyrir hana og hjálp­uðum henni við und­ir­bún­ing og fram­setn­ing­u“.

Eitt mál til með­ferðar hjá aga- og siða­nefnd FSÍ

Í fyrra leit­uðu síðan konur til FSÍ vegna erf­iðrar reynslu á árunum 2008 til 2013 þar sem félags­þjálf­ari þeirra áreitti þær kyn­ferð­is­lega um ára­bil. „Þegar að svo langt var liðið frá þessum erf­iðu atburðum var þjálf­ar­inn, sem var af erlendu bergi brot­inn, fluttur af landi brott og var því ákveð­ið, í sam­ráði og sam­vinnu við félag­ið, að til­kynna málið til sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta­hreyf­ing­ar­inn­ar, sem hafði nýlega hafið störf. Þar fengu kon­urnar ráð­gjöf og sál­fræði­þjón­ustu. Félagið sem um ræðir hafði á sínum tíma brugð­ist við til­kynn­ingu þeirra með því að segja þjálf­ar­anum upp störf­um,“ segir í svari FSÍ.

Nýjasta til­kynn­ingin barst á borð stjórnar fyrir stuttu. Sam­kvæmt FSÍ á félags­þjálf­ari að hafa nýtt sér yfir­burða­stöðu sína gagn­vart iðkanda. Málið hafi verið til­kynnt til aga- og siða­nefndar sam­bands­ins og sé þar til með­ferð­ar.

Krefj­ast nú sér­stakt þjálf­ara­leyfis

FSÍ seg­ist hafa farið í mikla vinnu til að bregð­ast við málum sem þessum – bæði sem komið hafi upp hér á landi sem og í fim­leika­hreyf­ing­unni erlend­is.

„Tekið var inn í samn­inga við lands­liðs­þjálf­ara FSÍ að óskað er eftir leyfi til upp­flett­ingar í saka­skrá og slíkt er gert áður en samn­ingur er klár­að­ur.

Árið 2017 var tekin ákvörðun um að fræða þjálf­ara í fim­leikum enn frekar og ákveðið að setja upp kerfi þar sem kraf­ist er sér­staks þjálf­ara­leyfis til að þjálfa ólíka iðk­enda­hópa. Eitt af skil­yrð­unum til að fá þjálf­ara­leyfi er að þjálf­arar mæta á fræðslu­dag FSÍ sem hald­inn er á hverju hausti, þar sem tekin eru fyrir mál­efni líð­andi stundar í sam­fé­lag­inu hverju sinn­i,“ segir í svari FSÍ. Í fyrra, á fræðslu­degi árs­ins 2020, voru sam­skipti við iðk­end­ur, siða­reglur FSÍ og trans­börn í íþróttum í brennid­epli.

Vilja setja auk­inn kraft í for­varnir og grein­ingu á stöðu mála

Þing Fim­leika­sam­bands Íslands árið 2020 fagn­aði því að opin umræða hefði átt sér stað um það ofbeldi sem hefur lið­ist í fim­leika­hreyf­ingum víðs vegar um heim­inn, því aðeins með hisp­urs­lausri umræðu væri hægt að sporna við því að slíkt ofbeldi lið­ist í fram­tíð­inni.

„Iðk­endur eiga rétt á öruggu umhverfi án alls ofbeld­is. Við ætlum öll að taka höndum saman um að ofbeldi í hvaða formi sem er innan fim­leika­hreyf­ing­ar­innar verði ekki lið­ið. Við erum öll sam­mála um að standa sam­eig­in­lega vörð um fag­lega með­höndlun á þeim málum sem upp kunna að koma og við hvetjum jafn­framt alla iðk­endur og aðra innan hreyf­ing­ar­innar til að til­kynna til aga­nefndar Fim­leika­sam­bands­ins ef þeir upp­lifa ofbeldi af ein­hverju tagi við fim­leika­iðk­un. Til að fyr­ir­byggja að iðk­endur og aðrir innan hreyf­ing­ar­innar verði fyrir ofbeldi og áreitni ætlum við að stuðla að menn­ingu virð­ingar og jafn­ingja­sam­skipta og setja auk­inn kraft í for­varnir og grein­ingu á stöðu þess­ara mála hér á land­i,“ segir í ályktun þings­ins síðan í fyrra.

Þá felur sam­þykkt aðgerð­ar­á­ætlun sam­bands­ins meðal ann­ars í sér að farið verði í rann­sókn á and­legri líðan iðk­enda innan sam­bands­ins til að hægt sé að meta næstu skref á þess­ari veg­ferð og standa við­ræður yfir við háskóla­sam­fé­lagið um sam­starf.

Á nýaf­stöðnu Fim­leika­þingi þann 4. sept­em­ber síð­ast­lið­inn fékk stjórn FSÍ sam­skipta­ráð­gjafa Íþrótta­hreyf­ing­ar­innar til að halda erindi með það að mark­miði að kynna vel fyrir félög­unum hvernig þjón­usta hennar virkar í þeim til­gangi að auð­velda félögum að til­kynna mál af þessu tagi til hennar núna og síðar meir, ef ein­hver væru.

Gamalt mál kemur upp hjá GSÍ

Þrjú mál er varða kyn­ferð­is­lega áreitni eða ofbeldi hafa borist á borð stjórn­enda Golf­sam­bands Íslands (GSÍ) á síð­ustu tíu árum. Fyrsta málið varðar gam­alt brot en GSÍ hefur í tveimur málum hvatt aðila til þess að fara með sín mál til sér­staks sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­starfs sem tók til starfa árið 2020.

Í svar­inu segir að fyrir 10 árum hafi verið óskað eftir fundi með for­svars­fólki GSÍ vegna kyn­ferð­is­of­beld­is. „Um var að ræða ein­stak­ling sem hafði verið mis­not­aður um 40 árum áður af manni sem starf­aði innan golf­hreyf­ing­ar­inn­ar. Með fund­inum vildi þol­and­inn upp­lýsa Golf­sam­bandið um brotið og þau áhrif sem atburð­ur­inn hafði haft á líf hans. Þol­and­inn hafði þá þegar leitað aðstoðar fag­að­ila.“

Fram kemur hjá GSÍ að á sama fundi hafi einnig verið upp­lýst um annað fórn­ar­lamb sama ger­anda. „Brota­mað­ur­inn hafði þá verið ákærður og hlaut síðar dóm fyrir kyn­ferð­is­brot gegn þriðja ein­stak­lingn­um. Stjórn Golf­sam­bands­ins ákvað í fram­haldi af mál­inu að setja verk­lags­reglur um mál af þessum toga. Þar sagði meðal ann­ars að ef til­kynn­ingar eða erindi bær­ust á borð sam­bands­ins er vörð­uðu hverslags ofbeldi innan golf­hreyf­ing­ar­innar væri við­kom­andi þol­anda bent á að hafa sam­band við fag­að­ila og/eða lög­reglu.“

Úrbóta­vinna er hafin – GSÍ for­dæmir allt ofbeldi og stendur með þolendum

Sam­kvæmt svari GSÍ tók sér­stakur sam­skipta­ráð­gjafi íþrótta- og æsku­lýðs­starfs til starfa árið 2020 og nú skal öllum málum sem ber­ast Golf­sam­band­inu vísað til hans.

GSÍ hefur í tveimur málum hvatt aðila til þess að fara með sín mál til sam­skipta­ráð­gjafans, eins og áður seg­ir, en þau snúa bæði að sam­skiptum ein­stak­linga við golf­klúbba. Einnig hefur Golf­sam­band Íslands not­ast við for­varn­ar­efni frá ÍSÍ, að því er fram kemur í svar­inu.

„At­burðir síð­ustu vikna hafa leitt það í ljós að bæta má enn frekar ferla, við­brögð og fræðslu innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar bæði hvað varðar for­varnir gegn ofbeldi sem og við­brögð við til­kynn­ingum um atvik og með­höndlun þeirra. Hafin er ýmis úrbóta­vinna til að tryggja að allir innan vébanda hreyf­ing­ar­innar hafi þau tól og tæki sem þarf til að bregð­ast rétt við atvikum er upp koma í starfi hreyf­ing­ar­innar og auka öryggi allra innan henn­ar,“ segir í svari GSÍ og vísar þarna í umfjöllun um ásak­anir um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi innan KSÍ.

Golf­sam­band Íslands seg­ist að end­ingu for­dæma allt ofbeldi og standa með þolend­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár