Stýrivextir óbreyttir í 5,25%

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands verða óbreyttir áfram í 5,25 pró­sentum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu pen­inga­stefnu­nefndar bank­ans frá því í morgun.

Samkvæmt nýrri verð­bólgu­spá bank­ans er útlit fyrir að verð­bólga verði undir mark­miði fram á mitt næsta ár, en verði svo 2,5 til 3 pró­sent eftir það. Verð­bólgan mæld­ist 1,8% í októ­ber og hefur nú hald­ist undir mark­miði í tæp­lega þrjú ár, „þrátt fyrir miklar launa­hækk­anir og öran vöxt eft­ir­spurnar. Við­skipta­kjara­bati, lítil alþjóð­leg verð­bólga og hækkun gengis krón­unnar hafa vegið á móti áhrifum launa­hækk­ana á verð­bólgu.“

Verð­bólgu­spáin er tölu­vert breytt frá fyrri spá, en það skýrist að miklu leyti af því að gengi krón­unnar er spáð en ekki gert ráð fyrir að það hald­ist óbreytt allt tíma­bilið sem skoðað er. Verð­bólgu­horfur hafa batnað, einkum til skemmri tíma. Engu að síður er ekki eins mikið til­efni til að bregð­ast við að mati pen­inga­stefnu­nefndar eins og ætla mætti, „vegna þess að pen­inga­stefnu­nefnd hefur byggt ákvarð­anir sínar að und­an­förnu á mati sem tók til­lit til þess að tölu­verðar líkur voru á hækkun gengis krón­unnar.“

Ákvörð­unin er byggð á verð­bólgu­spánni og áhættu­mati. Pen­inga­stefnu­nefnd nefnir sér­stak­lega óvissu um stefnu í rík­is­fjár­málum, þar sem aðhald hennar hafi slaknað nokkuð und­an­farin tvö ár og óljóst sé hver efna­hags­stefna næstu rík­is­stjórnar verði. „ Þá gætir óróa á vinnu­mark­aði, ekki síst í kjöl­far nýlegs úrskurðar um hækkun launa þjóð­kjör­inna full­trúa. Að auki gætir áfram óvissu um áhrif los­unar fjár­magns­hafta, en vel hefur gengið fram til þessa. Við bæt­ist óvissa um alþjóð­legar efna­hags­horfur.“

Kröft­ugur vöxtur eft­ir­spurnar og ofan­greindir óvissu­þættir á var­kárni við ákvörðun vaxta, þótt kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga við mark­miðið virð­ist vera að styrkj­ast og aðhald pen­inga­stefn­unnar hafi að hluta auk­ist í gegnum hærra gengi krón­unnar, segir nefndin.

Þá kemur einnig fram í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar að Seðla­bank­inn hafi und­an­farna mán­uði keypt hlut­falls­lega minna af gjald­eyr­is­inn­streym­inu en hann gerði fyrr á þessu ári. Nefndin telur rétt að halda áfram á þeirri braut að óbreyttu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár