Megin þemað persónuleg tjáning

Hulda Vil­hjálms­dóttir mynd­lista­maður safnar fyrir útgáfu bók­ar­innar Valbrá á Karolina fund.

Hulda Vil­hjálms­dóttir er fædd 6. júní 1971, á Sjó­manna­dag­inn. Hún ólst upp í Reykja­vík og kláraði stúd­ents­próf frá Fjöl­brauta­skól­anum við Ármúla. Eftir stúd­ents­próf fór hún í Iðn­skól­ann í Reykja­vík og lærði tækni­teikn­unn. Hana lang­aði að fara í arki­tekta­nám en á þeim tíma var það ekki kennt í Reykja­vík.

Hulda taldi strax frá unga aldri að list­nám, verk­legt nám, teikn­ing, mótun eða málun væri eitt­hvað sem hefði hæfi­leika til að nota, mennta sig og sér­hæfa sig í að gera. Hulda sótti um að kom­ast í for­nám Mynd­lista- og hand­íða­skóla Íslands vorið 1994. Strax kom í ljós í for­námi að litir, form og línur heill­uðu hana og eftir for­nám sótti hún um í mál­ara­deild í Mynd­lista- og hand­íða­skóla Íslands. Hún komst inn í mál­ara­deild þrátt fyrir að aðeins 7 nem­endur hafi verið teknir inn um vet­ur­inn. Hulda stund­aði mál­ara­deild­ina frá 1995-2000 og útskrif­að­ist með B.A gráðu úr Lista­há­skóla Íslands vorið 2000.

Hulda Vil­hjálms­dóttir er ein af fremstu mynd­list­ar­mönnum af sinni kyn­slóð á Íslandi. Hefur mynd­list hennar verið birt í ýmsum lista­verka­bókum um mynd­list á Íslandi. Mynd­lista­verk hennar eru í eigu lista­safna, fyr­ir­tækja, ein­stak­linga og hefur hún selt mörg verk til útlanda þar að auki. Kjarninn hitti Huldu og tók hana tali.

Hvernig myndir þú lýsa list­inni þinni?

„Ég er þakk­lát að hafa getað sér­hæft mig í málun, getað stundað námið á þessu tíma­bili. Á þessum tíma er mikil rann­sóknar- og til­rauna­vinna med notkun pens­ils­ins. Strax eftir námið og til dags­ins í dag hef ég rekið vinnu­stofur og haldið 4-6 sýn­ingar á ári. Ég kláradi hálft nám í ker­am­ik­deild, mótun, við Mynd­lista­skóla Reykja­víkur. Ég mála stundum á kermik, striga, plötur, pappír, og mála ég stundum a fundna hluti, það er ekk­ert sem stoppar mig að mála. Ég er for­vitin og leit­andi mynd­lista­kona og kem mér stundum á óvart með sköpun verks­ins. Med til­finn­inga­ríkum verkum, tel ég verk mín verkin expressionísk í kúbískum anda.“

Hvað er að finna í bók­inni Valbrá?

„Ég er að safna fyrir bók ljóða og lista­verka í gegnum Karolina fund. Mig langar að gera fal­lega bók með góðum ljós­myndum af lista­verk­unum og láta prenta hana í góðum gæðum.“

Hvernig varð bókin Valbrá til?

„Hug­myndin að bók­inni vakn­aði sum­arið 2015. Ég sat við elds­hús­borðið í litla hús­inu mínu og teikn­aði og mál­aði. Gróð­ur­inn, sum­ar­birtan og skæru litir sum­ars­ins gáfu mér inn­blástur að verk­unum sem ég var að skapa.

Verkin í bók­inni, ljóðin og mynd­lista­verkin hafa verið að þró­ast síðan þetta sumar til dags­ins í dag, þannig að megin þema bók­ar­innar er per­sónu­leg tján­ing mín og ljóðin í bók­inni er um mitt líf, hvernig ég upp­lifi dag­legt líf og sé feg­urð­ina, lit­ina, börnin, dýrin leika um hendur mínar inn á pappír og striga, ein­faldar og flóknar myndir í bland. Ljóðin lýsa mínum til­finn­ingum og feg­urð lífs­ins í dag­legum ferðum mínum um bæinn og ferðum mínum um landið. Vona ég að bókin muni hafi góð áhrif á fólk, að upp­lifunin sé þægi­leg, til­finn­inga­rík, lit­rík, gleði­rík og ljóð­ræn. Einnig má finna hvernig ein­falt verk getur verið heill­andi.

Bókin ber nafnið Valbrá. Valbrá er fæð­ing­ar­blettur minn sem ég fædd­ist með og er á vinstri hendi. Blett­irnir hafa fylgt mér alla tíð, eins og lítið titr­andi blóm í hendi. Valbrá táknar minn per­sónu­lega heim eða eitt­hvað sem er ein­stakt. Góður vinur minn sagði við mig að ég væri ein­læg, naive en á akademískan hátt.

Mig langar að bókin lýsi þessu ein­læga en með fág­uðum vinnu­brögðum. Ég vona að það kveiki hjá les­and­and­anum for­vitni eins og lítið hissa barn þegar bókin er skoðuð, barnið sem leitar í fal­lega liti, þetta frelsi vil ég túlka og gefa gildi í mynd­list og rit­list.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár