KVIKA býður ykkur velkomin til Lava Land

KVIKA mun gefa út hljóm­plötu­bók­ina Welcome to Lava Land síðar á þessu ári. Hljóm­sveitin safnar nú fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

KVIKA mun gefa út hljóm­plötu­bók­ina Welcome to Lava Land seinna á þessu ári, með góðum vinum og lista­mönnum. Welcome to Lava Land prýðir glæsi­legar teikn­ingar eftir Sævar Jóhanns­son og inni­heldur hljóm­disk með 10 glæ­nýjum, frum­sömdum lögum, sem sveitin hefur safnað í sarp­inn und­an­farin 4 ár. Sena gaf út fyrri plötu KVIKU, Seasons, árið 2014. Guðni Þór Þor­steins­son, söngv­ari og laga­smiður, og Kolbeinn Tumi Har­alds­son, hljóm­borðs­leik­ari, útsetj­ari og radd­ari, sitja fyrir svörum Kjarnans.

Hvað er Lava Land?

„Nafnið, Welcome to Lava Land, kom til okkar við upp­tökur í Vest­manna­eyjum, nánar til­tekið við upp­tökur á lag­inu La La Land. Í raun varð hug­myndin að veru­leika á sama tíma. Lagið fjallar um ævin­týra­mann­inn/útrás­ar­vík­ing­inn/lista­mann­inn sem stingur sig í sam­band við íslenska orku (Lava Land) og leitar svo drauma sinna í drauma­land­inu (La La Land). Þetta small allt saman, líkt og flís við rass! Auðvitað hefur nafnið KVIKA beina teng­ingu við lava landið og mót­sagn­irnar í text­unum ríma vel við mót­sagnir í la la land­inu.“

Hvaða lista­menn standa að verk­efn­inu Lava Land?

„Sævar Jóhanns­son mynd­skreytti bók­ina eftir leið­bein­ingum, en nýverið gaf hann sjálfur út teikn­inga­bók­ina Brjál­æð­is­lega Róandi. Ásmundur Jóhanns­son, trommari KVIKU, fram­leiddi plöt­una og pabbi hans Jóhann Ásmunds­son, bassa­leik­ari Mezzoforte, master­aði hana. Þeir feðgar sáu um hljóð­blöndun. Roland Hartwell, fiðlu­leik­ari, sá um alla strengi á plöt­unni. Snorri Snorra­son, jafnan þekktur sem Snorri í Idol átti stóran þátt í útsetn­ingu tveggja lag­anna. Steinþór Guð­jóns­son, gít­ar­leik­ari Jóns Jóns­sonar, og Einar Valur Sig­ur­jóns­son, söngv­ari og laga­smiður Tildru, voru KVIKU til halds og trausts með raddir o.fl. Kolbeinn Tumi Har­alds­son hélt utan um strengja­út­setn­ingar.“

Trausti Har­alds­son er með­höf­undur þriggja lag­anna. Trausti hefur samið mikið fyrir Pál Óskar, þar á meðal lögin „Minn hinsti dans“ og „La Dolce Vita“ svo fátt eitt sé nefnt.

Daníel Stef­áns­son sá um hönnun á bók­inni sjálfri. En hug­mynda­vinna, verk­efna­stýr­ing og gæða­stjórnun var í höndum Guðna Þórs Þor­steins­sonar, laga­smiðs og söngv­ara KVIKU, og Gísla Jóns Gísla­sonar.

Verk­efnið Lava Land er svo að segja þver­fag­legt innan lista­geirans, er þetta ein­stakt dæmi eða sjáið þið þessa þróun víðar?

„Hljóm­plötu­bók eins og Lava Land er eitt­hvað, sem að okkar viti, hefur ekki verið gerð áður. Sér í lagi fyrir þær sakir að við bjóðum kaup­endum upp í dans með því að hvetja þá til að taka þátt í list­sköp­un­inni. Við sjáum fyrir okkur að bókin verði í senn lita­bók og jafn­vel glósu­bók. En í bók­inni förum við í hring­ferð um landið með teikn­ingum frá hverjum lands­hluta, í teikn­ing­unum eru per­sónur og stað­hættir sem ein­kenna lands­hlut­ana. Hægt er að styðja verk­efnið Welcome to Lava Land í gegnum hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund, þar er hægt að kaupa verk­efnið fyrir fram á góðum kjörum. Öllum þeim sem heita á verk­efnið mega búast við að fá eitt­hvað óvænt og skemmti­legt frá hljóm­sveit­inni.“

Verk­efnið er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár