„Okkar hlutverk er að greina hvað er okkur til góðs“

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, tal­aði fyrir aðild að Evr­ópu­sam­band­inu í ræðu sinni í eld­hús­dags­um­ræðum.

„Vissu­lega náðu popúl­ískir flokkar nokkrum árangri en eftir sem áður er krist­al­tært að þeir sem styðja vöxt og við­gang ESB eru í yfir­gnæf­andi meiri­hluta. Upp­gangur popúl­isma víð­vegar í heim­inum er veru­legt áhyggju­efni og þess vegna er gleði­legt og mik­il­vægt að frjáls­lyndir flokkar unnu mest á í þessum kosn­ingum. Frjáls­lyndi er nauð­syn­legt mót­vægi gegn ríkjum þar sem aft­ur­hald og popúl­ismi grefur um sig,“ sagði Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, í eld­hús­dags­um­ræðum í kvöld.

Hann gerði meðal ann­ars nýaf­staðnar evr­ópu­þing­kosn­ingar að umtals­efni. Þá sagði hann að Viðreisn horfði til þess, að það væri best fyrir Ísland að treysta enn frekar tengsl sín við Evrópu og mark­aðs­svæðið í álf­unni. „Við teljum happa­drýgst fyrir Íslend­inga að treysta enn frekar tengsl sín við önnur ríki Evrópu með aðild að ESB og nýta þannig full­veldið til hins ýtrasta til að bæta hag þjóð­ar­innar,“ sagði Jón Steindór.

Þá sagði hann að Ísland legði mest að mörkum með því að taka þátt í alþjóð­legu sam­starfi, þar sem stærstu málin væru þvert á landa­mæri og gerðu ráð fyrir miklum og nánu sam­starfi ríkja. Sagði hann þetta meðal ann­ars eiga við um umhverf­is­málin og aðgerðir til að sporn við mengun.

Þá sagði hann að stjórn­mála­menn þyrftu að horfa til þess, hvað væri rétt­ast fyrir heild­ar­hag lands­ins, til lengdar litið.

„Okkar hlut­verk er að greina hvað er okkur til góðs og sækj­ast eftir því en ekki síður að átta okkur á hvað er okkur til ills og forð­ast það. Pop­u­l­ismi, öfgar, þjóð­ern­is­hyggja, afneitun vís­inda, stjórn­mál sem byggja á ótta, til­bú­inni hættu og óvinum hafa aldrei í ver­ald­ar­sög­unni leitt til góðs. Það mun ekki heldur ger­ast nú, ekki á Íslandi, ekki í Evrópu og hvergi ann­ars staðar í heim­inum.“

Átta okkur á hvað er okkur til ills

„Okkar hlut­verk er að greina hvað er okkur til góðs og sækj­ast eftir því en ekki síður að átta okkur á hvað er okkur til ills og forð­ast það,“ sagði Jón Steindór og hélt svo áfram: „Pop­u­l­ismi, öfgar, þjóð­ern­is­hyggja, afneitun vís­inda, stjórn­mál sem byggja á ótta, til­bú­inni hættu og óvinum hafa aldrei í ver­ald­ar­sög­unni leitt til góðs. Það mun ekki heldur ger­ast nú, ekki á Íslandi, ekki í Evrópu og hvergi ann­ars staðar í heim­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár