Ríkisstjórnin kolfallin, níu flokkar á þingi og Framsókn með pálmann í höndunum

Tveir stjórn­ar­flokkar, Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn, eru að mæl­ast með sitt lægsta fylgi í kosn­inga­spánni frá því að hún var keyrð fyrst í vor. Sá þriðji, Framsókn, er hins vegar vel yfir kjör­fylgi .

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast nú með 45 pró­sent sam­an­lagt fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar. Sam­an­lagða fylgið hefur ekki mælst lægra nú í aðdrag­anda kosn­inga, sem fara fram á laug­ar­dag, en Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur fengu sam­tals 7,9 pró­sentu­stigum meira í kosn­ing­unum 2017 en þeir mæl­ast með nú.

Líkurnar á að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur haldi velli voru yfir 60 pró­sent í lok síð­asta mán­aðar. Nú eru þær líkur komnar niður í 31 pró­sent og hafa lækkað nokkuð hratt með hverri keyrðri kosn­inga­spá.

Sú rík­is­stjórn sem er senni­leg­ust eins og er, að teknu til­liti til úti­lok­unar sumra flokka á sam­starfi með öðrum og raun­sæju mati á að ekki sé ger­legur sam­starfs­grund­völlur vegna per­sónu­legra aðstæðna hjá ákveðnum flokkum, er rík­is­stjórn Vinstri grænna, Pírata, Sam­fylk­ingar og Fram­sókn­ar­flokks, en þær eru 55 pró­sent. Skammt á eftir kemur rík­is­stjórn fjög­urra miðju­flokka: Sam­fylk­ingar, Fram­sókn­ar­flokks, Pírata og Við­reisnar. Líkurnar á því að þeir flokkar nái meiri­hluta, eru nú 52 pró­sent og hafa auk­ist í mán­uð­inum. Reykja­vík­ur­mód­elið svo­kall­aða mælist svo með 41 pró­sent líkur á því að verða að veru­leika.

Fimm flokka stjórn áður­nefndra flokka allra flokka sem nefndir eru hér að ofan á 98 pró­sent mögu­leika á því að ná meiri­hluta og gæti verið einn skýr­asti val­kost­ur­inn sem í boði verður, nái níu flokkar inn á þing og ógjörn­ingur verður að mynda fjög­urra flokka stjórn án aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks.

Líkurnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Flokkur fólksins tekur stökk

Líkt og rakið hefur verið í grein­ingum Kjarnans á kosn­inga­spánni und­an­farna daga og vikur hefur staða rík­is­stjórn­ar­innar versnað nokkuð skarpt, og hefur aldrei verið verri nú þegar fjórir dagar eru í kosn­ingar. Fram undan eru leið­toga­kapp­ræður á þremur mis­mun­andi miðlum: á mbl.is á mið­viku­dag, hjá miðlum Sýn á fimmtu­dag og á RÚV á föstu­dag. Slíkar kapp­ræður hafa áður getað reynst dýr­mætar til að snúa töp­uðu tafli upp í að minnsta kosti varn­ar­sigra.

Sá flokkur sem hefur tapað mestu fylgi á því tíma­bili er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, en fylgi hans hefur lækkað um 2,8 pró­sentu­stig og stendur nú í 21,5 pró­sentum. Það er eitt minnsta fylgi sem hann hefur nokkru sinni mælst með í kosn­inga­spá Kjarnans í aðdrag­anda kosn­inga, en þetta eru þriðju þing­kosn­ing­arnar sem Kjarninn keyrir spánna. Fimm dögum fyrir kosn­ing­arnar 2017 mæld­ist fylgi hans til að mynda 23,6 pró­sent. Flokk­ur­inn hresstist á loka­metr­unum og dag­inn fyrir kosn­ing­arnar í októ­ber 2017 mæld­ist fylgi hans 24,2 pró­sent og hann fékk svo 25,3 pró­sent þegar búið var að telja upp úr kjör­köss­unum. Þá byrj­aði upp­sveiflan hins vegar rúmum tíu dögum fyrir kosn­ing­arnar, í kosn­inga­bar­áttu sem var afar snörp vegna eðlis þeirra kosn­inga, sem voru boð­aðar með nokk­urra vikna fyr­ir­vara um miðjan sept­em­ber sama ár eftir að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk. Brynjar Níelsson, þing­maður flokks­ins sem situr í bar­áttu­sæti hans í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, sagði í sjón­varps­þætti á Hring­braut í gær að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi ekki taka sæti í rík­is­stjórn nema hann myndi fá yfir 25 pró­sent atkvæða. Flokk­ur­inn þarf að bæta við sig 3,5 pró­sentu­stigum á fjórum dögum til að ná því marki.

Verður Sigurður Ingi næsti forsætisráðherra?

Vinstri græn hafa aldrei mælst lægri í keyrðum kosn­inga­spám í ár en flokk­ur­inn gerir nú, en 11,2 pró­sent segj­ast ætla að kjósa hann.

Líkur á sam­steypu­stjórnum mis­mun­andi flokka
Fjöldi þing­sætaDVBPCSBDVVPSBVPSCDBMF
>=410.000.000.000.000.000.00
>=420.000.000.000.000.000.00
>=410.000.010.000.010.000.00
>=400.000.020.000.020.010.00
>=390.010.030.000.030.020.00
>=380.020.050.000.060.030.01
>=370.030.090.000.100.060.01
>=360.050.140.000.160.090.02
>=350.090.210.000.240.150.05
>=340.150.300.000.330.220.08
>=330.220.400.000.440.310.13
>=320.310.520.000.550.410.19
>=310.420.620.000.650.520.27
>=300.540.720.010.750.630.37
>=290.650.810.020.830.730.48
>=280.750.880.040.890.820.59
>=270.840.930.070.940.880.69
>=260.900.960.120.960.930.78
>=250.940.980.190.980.960.85
>=240.970.990.290.990.980.91
>=230.980.990.401.000.990.95
>=220.991.000.531.000.990.97

Til að ná minnsta mögu­lega meiri­hluta á Alþingi þarf 32 þing­menn.

Verði það nið­ur­staða kosn­inga munu Vinstri græn tapa þriðj­ungi fylgis síns. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, sagði í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær eftir að nýjasta könnun Gallup, sem vigtar mest í nýj­ustu kosn­inga­spánni, sýndi Vinstri græn með 10,2 pró­sent fylgi að hún teldi ein­sýnt, yrði það nið­ur­staða kosn­inga, að „Vinstri græn verði utan rík­is­stjórnar. Skila­boðin eru skýr.“ Bjarkey eyddi síðar færsl­unni.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist stefna í að verða sig­ur­veg­ari þessa rík­is­stjórn­ar­sam­starfs. Hann siglir lygnan sjó með 12,3 pró­sent fylgi, sem er 1,6 pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum, og virð­ist eiga nokkuð greiða leið inn í flest, ef ekki öll, ger­leg rík­is­stjórn­ar­mynstur. Sú staða er orðin afar raun­veru­leg að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gæti orðið næsti for­sæt­is­ráð­herra Íslands.

Katrín með einstaka stöðu hjá kjósendum annarra flokka

Ástæða þess er sú að ósenni­legt er að krafa um for­sæt­is­ráð­herra­stól komi frá Sam­fylk­ingu, Pírötum eða Viðreisn.

Líklegt er til að mynda að Sam­fylk­ingin myndi fal­ast eftir fjár­mála­ráðu­neyt­inu fyrir Kristrúnu Frosta­dóttur ef flokk­ur­inn kemst í rík­is­stjórn. Miðað við sam­ræður við stjórn­mála­menn und­an­farin miss­eri er ekki gert ráð fyrir því að Píratar sæk­ist eftir því að leiða rík­is­stjórn, standi þeim til boða að taka þátt í að mynda slíka. Í ljósi þess að Viðreisn hefur mælst minnst þeirra fimm flokka á miðj­unni og til vinstri sem lík­leg­astir eru til að mynda rík­is­stjórn miðað við stöðu mála í dag, og að ein­ungis 6,6 pró­sent nefndu Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur sem þann stjórn­ar­mála­menn sem þeir vildu að tæki við lyklunum í stjórn­ar­ráð­inu í nýlegri könnun Íslensku kosn­ingar­rann­sókn­ar­innar, (ÍSKOS) þá er ósenni­legt að sá ráða­hagur verði ofan á.

Þrátt fyrir mikið yfir­vof­andi fylgis­tap gætu Vinstri græn þó einnig gert til­kall til þess að fá for­sæt­is­ráð­herra­emb­ættið í ljósi mik­illa vin­sælda Katrínar Jak­obs­dóttur út fyrir raðir flokks­ins og á grunni þess að áður­nefnd könnun ÍSKOS sýndi að rúm­lega 40 pró­sent kjós­enda vildi hana sem næsta for­sæt­is­ráð­herra. Hún er eini flokks­for­ing­inn sem nýtur stuðn­ings í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra umfram fylgi þess flokks sem hún leiðir.

Í könn­un­inni sögð­ust til að mynda 16 pró­sent vilja Bjarna Bene­dikts­son og 9,5 pró­sent Sigurð Inga.

Líkur á fjölda þing­sæta hjá hverjum flokki fyrir sig
Fjöldi þing­sætaDVPSBCMJF
>=220.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=210.010.000.000.000.000.000.000.000.00
>=200.020.000.000.000.000.000.000.000.00
>=190.040.000.000.000.000.000.000.000.00
>=180.060.000.000.000.000.000.000.000.00
>=170.090.000.000.000.000.000.000.000.00
>=160.120.000.000.000.000.000.000.000.00
>=150.150.000.000.000.000.000.000.000.00
>=140.150.000.010.010.010.000.000.000.00
>=130.130.010.010.030.020.000.000.000.00
>=120.100.020.030.060.040.010.000.000.00
>=110.060.040.070.100.070.020.000.000.00
>=100.030.080.120.140.120.060.000.000.00
>=90.010.130.160.180.160.110.000.010.00
>=80.010.170.180.170.170.170.010.030.01
>=70.000.180.170.140.160.210.030.070.02
>=60.000.160.120.090.120.190.080.140.07
>=50.000.110.070.050.070.130.150.200.13
>=40.000.060.040.020.030.060.200.210.19
>=30.000.020.010.010.010.020.140.120.14
>=20.000.000.000.000.000.000.030.010.02
>=10.000.010.010.000.000.010.120.070.11
>=00.000.010.000.000.000.000.230.140.31

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 8 – 13. sept­em­ber (11,4 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 13– 16. sept­em­ber (16,5 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 15 – 17. sept­em­ber (vægi 18,2 pró­sent)
  • Net­pan­ell ÍSKOS/Félags­vís­inda­stofn­unnar 10 – 19. sept­em­ber (20,2 pró­sent)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 13 -19. sept­em­ber (vægi 26,7 pró­sent)

Sýnd­ar­kosn­ing­arn­arnar sýna að nær engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa nið­ur­stöðu. Einungis eitt mynstur nær eitt pró­sent líkum, tveggja flokka stjórn Sam­fylk­ingar og Sjálf­stæð­is­flokks.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár