Mynd: Skjáskot/Samherji

Tíu stærstu útgerðirnar halda á 56 prósent af öllum kvóta

Fjórar blokkir eru orðnar ráð­andi í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Þær hverf­ast í kringum Samherja, Brim, Kaup­fé­lag Skag­firð­inga og Ísfé­lagið. Sam­an­lagt halda þessar blokkir á 58,6 pró­sent af öllum kvóta.

Sam­an­lögð kvóta­staða tíu stærstu útgerða lands­ins innan afla­marks­kerf­is­ins dregst saman milli ára. Í nóv­em­ber 2021, þegar Fiski­stofa, sem hefur eft­ir­lit með því að yfir­ráð tengdra aðila yfir afla­hlut­deildum fari ekki umfram lög­bundið tólf pró­sent hámark, birti upp­lýs­ingar um sam­þjöppun afla­heim­ilda, héldu þær alls á 67,45 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Í nýjum tölum, sem Fiski­stofa birti á mið­viku­dag, er það hlut­fall komið niður í 56 pró­sent.

Það þýðir þó ekki að sam­þjöppun í grein­inni hafi dreg­ist saman. Það hefur hún alls ekki gert, líkt og margar stórar sam­ein­ingar eða yfir­tökur á und­an­förnu ári sýna. Breyt­ing­una má að nán­ast öllu leyti rekja til þess að loðnu­kvóti skrapp mikið saman milli ára. Síðla árs 2021 var úthlutað 904 þús­und tonnum, en þá hafði ekki verið úthlutað kvóta í loðnu í tvö ár. Úthlut­unin var sú stærsta í tvo ára­tugi. Hún reynd­ist á end­anum allt of umfangs­mik­il, var skert og íslensku útgerð­irnar veiddu 76 pró­sent af því sem þeim var úthlut­að. Ráð­gjöf Haf­rann­­sókna­­stofn­un­ar vegna yfir­stand­andi loðnu­ver­tíðar nem­ur 218.400 tonn­um en tæp­­lega 80 þús­und tonn­um af þessu renn­a til norskra, fær­eyskra og græn­­lenskra skipa. Í hlut íslenskra útgerða féllu því tæp­lega 132 þús­und tonn í stað þeirra 686 þús­und tonna í fyrra sem íslenskar útgerðir máttu veiða á fyrra fisk­veiði­ári eftir skerð­ing­ar.

Tvö fyr­ir­tæki fengu 38,4 pró­­­sent af þeim loðn­­u­kvóta sem var úthlut­að 2021. Ísfé­lag Vest­­­manna­eyja fékk mest, 19,99 pró­­­sent. Síld­­­ar­vinnslan og tengd félög komu þar á eftir með 18,5 pró­­­sent. Sam­dráttur beinum afla­hlut­deildum þess­arra tveggja útgerða milli ára nam næstum átta pró­sentu­stigum.

Stóru að stækka

Síld­ar­vinnslan, sem Samherji hf. á 30,06 pró­sent í, gekk frá kaupum á Vísi í Grinda­vík í byrjun síð­asta mán­aðar. Auk þess á Síld­ar­vinnslan tvö dótt­ur­fé­lög í útgerð, Berg-Huginn og Berg ehf. Sam­an­lögð afla­hlut­deild þess­ara fjög­urra útgerða er 12,11 pró­sent og því rétt yfir lög­bundnu tólf pró­sent hámarki.

Brim, sem skráð er á markað og metið á 174,3 millj­arða króna, er sú ein­staka útgerð sem er með mesta afla­hlut­deild, eða 11,34 pró­sent. Fyr­ir­tækið er því rétt undir lög­bundnu hámarki og aðeins minni hlut­deild en Síld­ar­vinnslu­sam­stæðan. Brim keypti kvóta og tog­ara af Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­vík­ur í nóv­em­ber á 12,4 millj­arða króna.

Samherji Ísland og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga, sem bæði eru að fullu í eigu Samherja hf., koma þar næst með 8,77 pró­sent. kemur þar næst með 6,87 pró­sent.

Ísfélag Vest­manna og Rammi, sem til­kynntu um sam­ein­ingu milli jóla og nýárs, koma þar næst með 8,14 pró­sent og FISK Seafood, sjáv­ar­út­vegs­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga er í fimmta sæti með 5,17 pró­sent.

Til að veiða fisk í íslenskri lög­­­sögu þarf að kom­­ast yfir úthlut­aðan kvóta sem úthlutað er í sam­ræmi við lög um stjórn fisk­veiða. Um­rædd lög eru skýr. Þau segja að eng­inn hópur tengdra aðila megi halda á meira en tólf pró­­sent af heild­­ar­afla. Þau mörk eiga að koma í veg fyrir of mikla sam­­þjöppun í sjá­v­­­ar­út­­­vegi á meðal þeirra fyr­ir­tæki sem fá að vera vörslu­að­ili fiski­mið­anna, sem eru sam­­kvæmt lögum þó ekki eign þeirra heldur þjóð­­ar­inn­­ar. Til að telj­ast tengdur aðili er þó gerð krafa um meiri­hluta­­eign eða raun­veru­­leg yfir­­ráð. Í því felst að aðili þurfi að eiga meira en 50 pró­­sent í öðrum aðila eða ráða yfir honum með öðrum hætti til að þeir séu taldir tengdir aðil­­ar. Þau mörk hafa verið harð­lega gagn­rýnd, enda mjög há í öllum sam­an­burð­i.

Í þessu sam­­bandi hefur meðal ann­ars verið bent á lög um skrán­ingu raun­veru­­legra eig­enda. Í þeim er miðað við 25 pró­­sent beinan eða óbeinan eign­­ar­hlut til að aðilar telj­ist tengdir eða aðili telj­ist raun­veru­­legur eig­and­i.

Raun­veru­leg yfir­ráð ekki könnuð

Í jan­úar árið 2019 skil­aði Rík­­is­end­­ur­­skoðun svartri stjórn­­­sýslu­út­­­tekt um Fiski­­stofu, sem á að hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd laga um úthlutun hans. Eitt þeirra atriða sem veru­­legar athuga­­semdir voru gerðar við, og vakti mikla athygli, var að Fiski­­stofa kann­aði ekki hvort yfir­­ráð tengdra aðila í sjá­v­­­ar­út­­­vegi yfir afla­hlut­­deild­um, eða kvóta, væru í sam­ræmi við lög.

Skiptar skoð­­anir hafa verið uppi um hvort það tak­­mark hafi náðst. En skýrsla Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar ýtti málum aðeins áfram. Í henni var meðal ann­­ars lagt til að ráð­­ast í end­­ur­­skoðun á lögum um stjórn fisk­veiða sem snúa að yfir­­ráðum yfir afla­heim­ildum og ákvæðum sem fjalla um tengsl aðila „svo tryggja megi mark­visst eft­ir­lit með sam­­­­þjöppun afla­heim­ilda“.

Fjórar blokkir gnæfa yfir aðrar í íslenskum sjávarútvegi. Mynd: Skjáskot/Samherji
Fjórar blokkir gnæfa yfir aðrar í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Mynd: Skjáskot/Samherji

Í mars 2019 var skipuð verk­efna­­stjórn sem falið var þetta verk­efni. Hún skil­að­i ­skrif­­­lega af sér drögum 30. des­em­ber 2019 þar sem lagðar voru fram ýmsar til­lögur til úrbóta.

Risanefnd skoðar áskoranir og tækifæri

Í maí í fyrra skip­aði Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra ein­a fjöl­­­menn­­­ustu nefnd Íslands­­­­­sög­unnar til að „greina áskor­­­anir og tæki­­­færi í sjá­v­­­­ar­út­­­­­veg­i“. Í starfs­hóp­um, verk­efna­­­stjórn og sam­ráðs­­­nefnd sitja á fimmta tug ein­stak­linga. Nefndin á að starfa út næsta ár. Vinna við kort­lagn­ingu á stjórn­un­ar- og eigna­tengslum í sjáv­ar­út­vegi er hluti af þeirri vinnu.

Fyr­ir­hug­aðar loka­af­­urðir þessa starfs eru meðal ann­­ars ný heild­­ar­lög um stjórn fisk­veiða eða ný lög um auð­lindir hafs­ins og aðrar laga­breyt­ing­­ar, verk­efni á sviði orku­­skipta, nýsköp­un­­ar, haf­rann­­sókna og gagn­­sæi og kort­lagn­ing eigna­­tengsla í sjá­v­­­ar­út­­­veg­i.

Þegar til­kynnt var um skipun hóps­ins var haft eftir Svandísi að í sjá­v­­­ar­út­­­vegi ríki djúp­­stæð til­­f­inn­ing meðal almenn­ings um órétt­­læti. „Sú til­­f­inn­ing tel ég að stafi aðal­­­lega af tvennu; sam­­þjöppun veið­i­­heim­ilda og þeirri til­­f­inn­ingu að ágóð­­anum af sam­eig­in­­legri auð­lind lands­­manna sé ekki skipt á rétt­látan hátt. Mark­miðið með þess­­ari vinnu er því hag­­kvæm og sjálf­­bær nýt­ing sjá­v­­­ar­auð­linda í sátt við umhverfi og sam­­fé­lag.“

Samkeppniseftirlitið kannar eignatengsl

Í októ­ber 2022 gerði mat­væla­ráðu­neytið samn­ing við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um að tryggja því fjár­hags­legt svig­rúm til að stofn­unin geti ráð­ist í athugun á stjórn­un­ar- og eigna­tengslum í sjáv­ar­út­vegi. Sam­hliða er stefnt að auknu sam­starfi stofn­ana á þessu sviði. Auk eft­ir­lits­ins er þar um að ræða Fiski­stofu, Skatt­inn og Seðla­banka Íslands.

Í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins vegna máls­ins segir að mark­mið kort­lagn­ing­ar­innar sé að stuðla að gagn­sæi í eign­ar­haldi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja ásamt upp­lýstri stefnu­mótun stjórn­valda um reglu­um­gjörð sjáv­ar­út­vegs og breyt­ingar á henni. Einnig á vinnan að stuðla að því að farið sé að lögum og reglum á þessu sviði og eft­ir­lits­stofn­anir geti sinnt hlut­verki sínu.

Kort­lagn­ingin verður sett fram í sér­stakri skýrslu sem á að afhenda Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra í síð­asta lagi á 31. des­em­ber 2023, eða eftir tæpt ár. Skýrslan á því að nýt­ast ráðu­neyt­inu í þeirri umfangs­mik­lu stefnu­mót­un­ar­vinnu um sjáv­ar­út­veg sem nú stendur yfir.

Í athug­un­inni felst upp­lýs­inga­söfnun og kort­lagn­ing eigna­tengsla sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja sem hafa fengið úthlutað ákveðnu umfangi afla­heim­ilda og áhrifa­valdi eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í gegnum beit­ingu atkvæð­is­réttar og stjórn­ar­setu í fyr­ir­tækj­um.

Frummat sýndi tengsl

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur áður kannað mögu­leg sam­eig­in­leg yfir­ráð aðila sem hafa ekki verið skil­greindir sem tengdir í sjáv­ar­út­veg­i.

Í lok febr­­úar 2021 birti ­eft­ir­litið ákvörðun vegna sam­runa dótt­­ur­­fé­lags Síld­­ar­vinnsl­unnar og útgerð­­ar­­fé­lags­ins Bergs. Þótt eft­ir­litið hafi ekki gert athuga­­semd við þann sam­runa eftir skoðun sína á honum var þar birt það frum­mat Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins „að til staðar séu vís­bend­ingar um yfir­­ráð Sam­herja eða sam­eig­in­­leg yfir­­ráð Sam­herja og tengdra félaga yfir Síld­­ar­vinnsl­unni og að þær vís­bend­ingar hafi styrkst frá því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið fjall­aði um slík mög­u­­leg yfir­­ráð í ákvörðun nr. 10/2013.“

Í kjöl­farið var kallað eftir frek­­ari upp­­lýs­ingum og sjón­­­ar­miðum frá aðilum og fylgst með eign­­ar­halds­­breyt­ingum sem urðu í tengslum við skrán­ingu Síld­­ar­vinnsl­unnar á mark­að 2021. Enn sem komið er hefur hins vegar hefur ekki verið tekin ákvörðun um frek­­ari for­m­­lega rann­­sókn.

Að mati eft­ir­lits­ins voru veru­­­­leg tengsl milli stórra hlut­hafa í Síld­­­­ar­vinnsl­unni og þrír af fimm stjórn­­­­­­­ar­­­­mönnum í Síld­­­­ar­vinnsl­unni á þeim tíma voru skip­aðir af eða tengdir Sam­herja og Kjálka­­­­nesi. Einn þeirra er Þor­­­­steinn Már Bald­vins­­­­son, for­­­­stjóri Sam­herja, sem er stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður Síld­­­­ar­vinnsl­unn­­­­ar.

Samherji stærsta blokkin

Þótt ýmsar stórar útgerðir séu ekki skil­greindar sem tengdir aðilar sam­kvæmt gild­andi lögum og túlkun eft­ir­lits­að­ila á þeim þá eru ýmis tengsl þeirra á milli.

Stærstu eig­endur Síld­­­­ar­vinnsl­unnar eru, líkt og áður sagði, Sam­herji og félagið Kjálka­­­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­­son, sem var um tíma annar for­­­­stjóri Sam­herja, og fólks sem teng­ist honum fjöl­­­skyld­u­­­bönd­um, meðal ann­­ars syst­k­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­­ar­halds­­­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­­ur.

Þegar talin er saman afla­hlut­deild Samherja Ísland, Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga, Síld­ar­vinnsl­unnar, Vísis, Gjögurs og Bergs-Huginn og Bergs (sem eru báðar dótt­ur­fé­lög Síld­ar­vinnsl­unnar) þá heldur sú blokk á 23,39 pró­sent úthlut­aðra afla­heim­ilda.

Útgerð­­­ar­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­ur, sem á 44,72 pró­­­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­­­ur­­­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 2,23 pró­­­sent af öllum afla­heim­ild­­­um. Útgerð­­­ar­­­fé­lag Reykja­víkur er að upp­­i­­­­stöðu í eigu Guð­­­mundar Krist­jáns­­­son­­­ar, for­­­stjóra Brims. Brim inn­lim­aði útgerð­ina Ögurvík í fyrra.

Þá eiga félögin KG Fisk­verkun og Stekkja­salir, í eigu Hjálmars Krist­jáns­sonar, bróður Guð­mundar, og sona hans, saman á 5,86 pró­sent hlut í Brimi. KG Fisk­verkun heldur einnig á eitt pró­sent af úthlut­uðum afla­heim­ildum. Þess blokk er því með 15,65 pró­sent af öllum kvóta.

Tvær aðrar stórar blokkir

Fisk Seafood á á 32,9 pró­­­­­­sent í Vinnslu­­­­­­stöð­inni í Vest­­­­­­manna­eyjum. Þá á Vinnslu­­­stöðin allt hlutafé í útgerð­­­ar­­­fé­lag­inu Hug­inn í Vest­­­manna­eyj­um. FISK á til við­­­bótar allt hlutafé í útgerð­inni Soff­an­­­­­­ías Cecils­­­­­­son. Saman heldur þessi blokk á 11,45 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Þann 30. des­em­ber til­kynntu Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum og Rammi, sem er með höf­uð­stöðvar sínar í Fjalla­byggð en landar einnig í Þor­láks­höfn, um sam­ein­ingu. Nýja félagið mun heita Ísfé­lagið hf. Stefán Frið­riks­son, núver­andi fram­kvæmda­stjóri Ísfé­lags Vest­manna­eyja hf., mun stýra því með aðsetur í Vest­manna­eyjum og Ólafur H. Mart­eins­son, núver­andi fram­kvæmda­stjóri Ramma hf., verður aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri með aðsetur í Fjalla­byggð. Til stendur að skrá sam­einað fyr­ir­tæki á markað. Sam­eig­in­leg afla­hlut­deild þeirra er 8,14 pró­sent sam­kvæmt tölum Fiski­stofu.

Því halda þessar fjórar blokkir, sem eru þó ekki að öllu leyti tengdar sam­kvæmt gild­andi lögum, á sam­tals á 58,63 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta innan afla­marks­kerf­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár