Allt að 529 milljarðar gætu komið í ríkiskassann með stöðugleikaskatti

„Yfir­lýs­ingar fjár­mála­ráð­herra og seðla­banka­stjóra á árs­fundi Seðla­bank­ans, sem og orð for­sæt­is­ráð­herra á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins, gefa til kynna að það stytt­ist í að lagt verði fram frum­varp þar sem leiðin fram á við í átt að afnámi gjald­eyr­is­hafta verði kunn­gjörð,“ segir í upp­hafs­orðum í umfjöllun Grein­ing­ar­deildar Arion banka, þar sem fjallað er um fjár­magns­höftin og hvenær dregið getur til tíð­inda þegar kemur að losun þeirra. Enn fremur segir að allt að 529 millj­arðar króna gætu inn­heimst í gegnum svo­nefndan stöð­ug­leika­skatt, miðað við að hann verði 30 pró­sent. Líklegra sé þó að upp­hæðin verði lægri, og horft verði sér­stak­lega til stöð­ug­leika­skatts á inn­lendar eignir slita­búa hinna föllnu banka.

Í umfjöll­un­inni kemur fram að í meg­in­dráttum hafi áætlun Seðla­banka Íslands, frá árinu 2011, verið fylgt.

Þá segir að „sterk rök“ hnígi að því að inn­heimta ein­ungis skatt af inn­lendum eignum þar sem erlendar eignir búanna ógni í reynd ekki greiðslu­jöfn­uði þjóð­ar­bús­ins. „En vissu­lega gæti tölu­verður þrýst­ingur mynd­ast á krón­una ef erlendir aðilar kysu að inn­leysa íslensku eignir búanna og skipta krón­unum yfir í annan gjald­miðil sam­tímis. Þó má telja það ólík­lega atburða­rás þar sem af þeim 500ma.kr. sem erlendir aðilar eiga í krónum í þrota­bú­unum er tals­verður hluti bund­inn í fasta­fjár­munum sem mun taka tíma að breyta í lausafé, þ.m.t. eign­ar­hlutur þrota­bú­anna í Arion banka og Íslands­banka. Þar fyrir utan má nefna lang­tíma­skuld nýja Lands­bank­ans við þann gamla,“ segir í umfjöllun grein­ing­ar­deildar Arion banka.

[caption id="attachment_27768" align="alignnone" width="629"] Hér má sjá skýr­ing­ar­mynd sem birt­ist í áætlun Seðla­bank­ans um afnám fjár­magns­hafta. Ekki hafa verið stigin skref ennþá í átt að áfanga II.[/caption]

Í umfjöllun grein­ing­ar­deildar Arion banka er sér­stak­lega horft til þess hversu miklum fjár­hæðum svo­nefndur stöð­ug­leika­skattur, eða útgöngu­skattur, gæti skilað í rík­is­kass­ann. Samkvæmt umfjöll­un­inni nemur sú upp­hæð allt að 529 millj­örðum króna, ef horft er til 30 pró­sents skatts á heild­ar­eignir þrota­bú­anna.

„Skoðum þá þrotabú Glitnis og Kaup­þings. Ef 25-75% skattur yrði lagður á inn­lendar eignir búanna gætu inn­heimst á bil­inu 144-431 ma.kr. þaðan. Ef aftur á móti skatt­ur­inn yrði lagður á heild­ar­eignir mætti áætla að pró­sentan yrði tölu­vert lægri. Í okkar sviðs­mynd gerum við ráð fyrir 10-30% skatti á heild­ar­eignir, sem myndi þá skila 176-529 ma.kr. úr búum Glitnis og Kaup­þings,“ segir í umfjöllun grein­ing­ar­deildar Arion banka.

[caption id="attachment_27772" align="alignnone" width="325"] Hér má sjá hversu miklu stöð­ug­leika­skattur á heild­ar­eignir þrota­bú­anna myndi skila.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár