Atvinnuleysi eykst

Atvinnu­leysi eykst sam­kvæmt Hag­stof­unni.

Samkvæmt árs­tíða­leið­réttum tölum vinnu­mark­aðs­rann­sóknar Hag­stof­unnar voru atvinnu­lausir 10.000 í maí síð­ast­liðnum, eða 4,7 pró­sent, sem er einu og hálfu pró­sentu­stigi hærra en í apríl. Fyrir sama tíma­bil lækk­aði leið­rétt hlut­fall starf­andi fólks um tvö og hálft pró­sentu­stig, eða í 77,2 pró­sent fyrir maí 2019.

Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar í dag.

Samkvæmt árs­tíða­leið­rétt­ingu var fjöldi fólks á vinnu­mark­aði 209.900 í maí. Árs­tíða­leið­rétt atvinnu­þátt­taka var 81,1 pró­sent, sem er 1,3 pró­sentu­stigi lægra hlut­fall en í apríl. 

Þegar horft er til síð­ustu sex mán­aða sýnir leitni að árs­tíða­leið­réttar tölur um atvinnu­þátt­töku standa í stað. Hlutfall starf­andi lækk­aði lít­il­lega eða um 0,5 pró­sentu­stig um leið og atvinnu­leysi jókst um 0,6 pró­sentu­stig.

Samkvæmt óleið­réttum mæl­ingum voru að jafn­aði 210.200 manns á aldr­inum 16 til 74 ára á vinnu­mark­aði í maí 2019. Það jafn­gildir 82,4 pró­sent atvinnu­þátt­töku. Af vinnu­afl­inu reynd­ust 197.500 vera starf­andi og 12.700 án vinnu og í atvinnu­leit. Hlutfall starf­andi af mann­fjölda var 77,4 pró­sent og hlut­fall atvinnu­lausra af vinnu­afli var 6,1 pró­sent.

Sam­an­burður mæl­inga fyrir maí 2018 og 2019 sýnir að vinnu­afli fjölg­aði um 5.700 manns, á meðan hlut­fall þess af mann­fjölda lækk­aði um 0,3 pró­sentu­stig. Starf­andi fólki fækk­aði um 800 og hlut­fallið lækk­aði um 2,3 pró­sentu­stig, frá því á sama tíma árið 2018. Atvinnu­lausir í maí 2019 voru um 6.500 manns fleiri en á sama tíma árið 2018 þegar þeir voru 6.200 eða 3 pró­sent af vinnu­afl­inu. Alls voru 44.900 utan vinnu­mark­aðar í maí 2019 en höfðu verið 42.700 í maí 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár