Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi á flótta undan rasískum ummælum sex árum eftir að hann varð forsætisráðherra

Sigurður Ingi Jóhanns­son er í vand­ræðum. Hann lét rasísk ummæli falla í síð­ustu viku, hefur beðist afsök­unar á þeim en vill ekki ræða þau við fjöl­miðla né þing­heim. Kallað er eftir afsögn hans og stjórn­ar­and­staðan segir hann hafa brotið siða­reglur.

Í dag, 6. apríl, eru nákvæm­lega sex ár síðan að greint var frá því að Sigurður Ingi Jóhanns­son, þá vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, yrði næsti for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar. Fátt hafði bent til þeirrar atburða­rásar nokkrum dögum áður.

Hinn 3. apríl 2016 var hins vegar sýndur sér­stakur Kast­ljós­þáttur þar sem greint var frá eign­ar­haldi Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, þá for­sæt­is­ráð­herra, á aflands­fé­lag­inu Wintris. Í félag­inu voru geymdar millj­arða­eignir og opin­berað var að Wintris væri kröfu­hafi í bú bank­anna. Síðar var greint frá því að Wintris hefði ekki greitt skatta í sam­ræmi við íslensk lög og reglur.

Við­tal við Sig­mund Dav­íð, sem hann gekk út úr, varð heims­frétt. Dag­inn eftir þátt­inn fóru fram fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar þar sem afsagna og nýrra kosn­inga var kraf­ist. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra 5. apríl 2016, ný rík­is­stjórn mynduð og kosn­ingum lofað þá um haustið.

Sigurður Ingi var ekki aug­ljós kandídat sem leið­togi í íslenskum stjórn­málum. Hann var fyrst kos­inn á þing árið 2009, varð vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2013 og fyrst ráð­herra þegar rík­is­stjórn þess flokks og Sjálf­stæð­is­flokks var mynduð eftir vor­kosn­ingar 2013, undir for­sæti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Hann var, til að byrja með, bæði sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, en sleppti síð­ara ráðu­neyt­inu til Sigrúnar Magn­ús­dóttir í lok árs 2014.

Skömmu eftir að Sigurður Ingi tók við völdum lét hann frá sér stór­yrtar yfir­lýs­ingar. Á meðal þeirra var sú að það væri mik­il­vægt að umhverf­is­mál væru ekki and­stæða atvinnu­mála og að hann ætl­aði að skoða hvort umhverf­is­ráðu­neytið væri ekki ein­fald­lega óþarft. Hægt væri að færa mála­flokka þess inn í önnur ráðu­neyti. Katrín Jak­obs­dóttir, nú for­sæt­is­ráð­herra, sagði á þeim tíma að til­laga Sigurðar Inga væri „tíma­skekkja“. Í nær­mynd af Sigurði Inga sem birt­ist í DV í júní 2013, undir fyr­ir­sögn­inni „Hann er gam­al­dags þurs“, var haft eftir ónafn­greindum aðila úr heimi stjórn­mál­anna að hann væri að „byrja lang­verst allra ráð­herr­anna í rík­is­stjórn­inni. Hann er búinn að valda rík­is­stjórn­inni miklu tjóni og hefur orðið þess vald­andi að það er byrjuð að mynd­ast andúð á rík­is­stjórn­inni í gras­rót­ar­hreyf­ingum og alls ekki bara flokkspóli­tísk. Hann virð­ist ekki höndla þetta nýja hlut­verk vel og segir ítrekað ranga hluti.“

Klúðurslegt kvótafrumvarp

Samkvæmt stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs átti að gera breyt­ingar á stjórn fisk­veiða á kjör­tíma­bil­inu sem hófst árið 2013. Vinna átti með til­lögu sátta­nefnd­ar­innar svoköll­uðu sem starf­aði kjör­tíma­bilið á undan, þar sem lagt var til að samn­ings­bundin rétt­indi um nýt­ingu afla­heim­ilda taki við af var­an­legri úthlut­un.

Sigurði Inga gekk hins vegar brös­ug­lega að koma frum­varpi um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu vegna ágrein­ings milli stjórn­ar­flokk­anna tveggja um hver ætti að fara með for­ræði yfir fisk­veiði­kvót­anum.

Sigurður Ingi var ráðherra í ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar en naut ekki mikilla vinsælda.
Sigurður Ingi var ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar en naut ekki mik­illa vin­sælda.

Árið 2014 sagð­ist hann ætla að leggja fram frum­varp sem fæli í sér að gerðir yrðu nýt­inga­samn­ingar til 23 ára við þáver­andi hand­hafa afla­heim­ilda. Það frum­varp komst ekki í gegnum Sjálf­stæð­is­flokk­inn sem vildi ekki að ríkið eign­að­ist veiði­heim­ild­irnar á end­anum. Stjórn­ar­and­stöð­unni á þeim tíma fannst að sama skapi útgerð­unum vera gefin allt of langur tími.

Á end­anum var frum­varpið ekki lagt fram eftir að hafa verið í vinnslu í á annað ár.

„Tals­vert flókið að eiga pen­inga á Ísland­i“

Þegar komið var fram í mars 2016 var staða Sigurðar Inga í íslenskri póli­tík nokkuð veik. Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hafði verið sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna 2013, hafði rúm­lega helm­ing­ast og mæld­ist um tólf pró­sent. Rík­is­stjórnin var gríð­ar­lega óvin­sæl, ein­ungis 35,9 pró­sent lands­manna treystu henni.

Í mjög óvin­sælli rík­is­stjórn var Sigurður Ingi einn óvin­sæl­asti ráð­herr­ann. Í könnun sem gerð var fyrir Frétta­blaðið, Stöð 2 og Vísi í mars 2016 sögð­ust ein­ungis þrjú pró­sent aðspurðra treysta honum.

Á þessum tíma var komið fram að eitt­hvað stórt myndi opin­ber­ast varð­andi aflandseignir Íslend­inga í þætti Kast­ljóss sem sýndur var 3. apríl 2016 og byggði á Panama­skjöl­unum. Nokkrum dögum áður en að hann var sýndur var tekið við­tal við Sig­urð Inga. Þar varði hann aflands­fé­laga­eign ríkra Íslend­inga og sagði að það væri „auð­vitað tals­vert flókið að eiga pen­inga á Ísland­i“. Þegar hann var spurður að því hvort í lagi væri að eiga pen­inga á Tortóla svar­aði hann því til að „ein­hvers staðar verða pen­ing­arnir að ver­a.“

Höskuldur kynnir óvart nýja ríkisstjórn

Opin­berun Panama­skjal­anna, stærstu mót­mæli Íslands­sög­unnar og afsögn Sig­mundar Davíðs sem for­sæt­is­ráð­herra settu fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins niður í 6,9 pró­sent.

Það var því ekki við sér­stak­lega eft­ir­sókn­ar­verðar aðstæður sem Sigurður Ingi tók við leið­toga­hlut­verk­inu í rík­is­stjórn. Það var við­eig­andi á end­anum að hann fékk ekki einu sinni að til­kynna það sjálfur. Hösk­uldur Þór­halls­son, þáver­andi sam­flokks­maður Sigurðar Inga, gerði það óvart skömmu áður en Sigurður Ingi og Bjarni Bene­dikts­son ætl­uðu að gera það, hald­andi að þeir væru þegar búnir að ræða við frétta­menn. Fyrir vikið varð til nýyrðið Hösk­uld­ar­við­vörun (íslenskum á enska hug­tak­inu spoiler alert) sem er notað til að vara fólk við að ljóstra eigi upp ein­hverju sem ger­ist t.d. í sjón­varps­þætti sem við­kom­andi hefur ekki séð.

Sú breyt­ing var einnig gerð á rík­is­stjórn­inni á sama tíma að Lilja Alfreðs­dóttir var gerð að utan­þings­ráð­herra, og hófst þá form­leg stjórn­mála­þátt­taka hennar.

Stjórn sem byrjaði í lífróðri

Enginn sem horfði á Sigurð Inga og Bjarna koma niður tröpp­urnar í Alþing­is­hús­inu, og mæta her­skara inn­lendra og erlendra blaða­manna, hefur upp­lifað að Sigurði Inga liði vel í nýja hlut­verk­inu. Hann var flótta­legur og gat illa svarað spurn­ingum á meðan að Bjarni brást með reiði og árás­ar­girni við þeim spurn­ingum sem hann fékk. Ljóst var öllum sem á horfðu að nýja rík­is­stjórnin myndi róa líf­róður næstu daga.

Sigurður Ingi og Bjarni þegar ný ríkisstjórn var opinberuð í kjölfar þess að Sigmundur Davíð sagði af sér sem forsætisráðherra.
Sigurður Ingi og Bjarni þegar ný rík­is­stjórn var opin­beruð í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra.

Allt stefndi í djúpa stjórn­málakreppu og hið djúpa sár sem var á þjóð­arsál­inni eftir banka­hrunið hafði rifnað upp á gátt á ný. En rík­is­stjórnin náði að tóra þessa fyrstu daga. Og í júní, byrj­aði Evr­ópu­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu þar sem íslenska karla­lands­liðið tók þátt í loka­móti í fyrsta sinn. Og vann að margra mati mótið án þess að vinna það í eig­in­legri merk­ingu.

Frammi­staða lands­liðs­ins, og athyglin sem hún fékk, bjarg­aði rík­is­stjórn­inni. Þjóðin ein­fald­lega kaus að gleyma henni stund­ar­korn. Það sást ágæt­lega þegar Sigurður Ingi flutti sína einu þjóð­há­tíð­ar­ræðu sem for­sæt­is­ráð­herra þann 17. júní þetta ár, víg­girtur frá fólk­inu sem hann átti að þjóna.

Samherjar urðu andstæðingar

Hug­myndin var alltaf sú að Sigurður Ingi myndi halda stólnum heitum fyrir Sigmund Davíð þangað til að hægj­ast færi um. Hann neit­aði því ítrekað að ætla að bjóða sig fram gegn hinum umdeilda for­manni á flokks­þingi sem til stóð að halda í aðdrag­anda kosn­inga haustið 2016. Það breytt­ist þó eftir mið­stjórn­ar­fund á Akureyri þann 10. sept­em­ber, þar sem Sig­mundur Davíð flutti rúm­lega klukku­tíma langa ræðu studdur glærum með sterku mynd­máli þar sem hann fór yfir stöðu stjórn­mála, árangur sinn og það sem hann telur vera þaul­skipu­lagða aðför að sér. Þátt­tak­endur í þeirri meintu aðför eru stórir leik­endur í alþjóða­fjár­mála­kerf­inu og fjöl­miðlar víða um heim.

Sig­urður Ingi hélt líka þar ræðu þar sem hann greindi frá því að hann treysti sér ekki til að starfa áfram sem vara­for­maður flokks­ins eftir kom­andi flokks­þing vegna sam­skipta­örð­ug­leika í for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Átta dögum fyrir flokks­þingið til­kynnti Sigurður Ingi að hann myndi bjóða sig fram til for­manns og vann á end­anum með 370 atkvæðum gegn 329 atkvæðum Sig­mundar Davíðs. Þessi atburður var upp­hafið að enda­lokum Sig­mundar Davíðs í Framsókn, en ári síðar klauf hann sig fá og stofn­aði Mið­flokk­inn.

Flokksþing Framsóknarflokksins 2016 var hádramatískt. Sigmundur Davíð gekk út úr salnum eftir að ljóst var að Sigurður hafði sigrað í formannskjöri.
Flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins 2016 var hádramat­ískt. Sig­mundur Davíð gekk út úr salnum eftir að ljóst var að Sigurður hafði sigrað í for­manns­kjöri.

Framsókn beið afhroð í kosn­ing­unum sem fylgdu á eftir og var póli­tískt geisla­virkur. Það vildi eng­inn flokkur ann­ars en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mynda með honum rík­is­stjórn vegna þess sem á undan hafði gengið.

Mýkri ásýnd og varð stjórntækur að nýju

Ári síðar var kosið aftur og nú var Sigurður Ingi búinn að mýkja ímynd flokks­ins nægj­an­lega. Eftir kosn­ing­arnar 2017 var mynduð for­dæma­laus rík­is­stjórn íhalds­samra flokka þvert yfir hið póli­tíska lit­róf og Sigurður Ingi varð sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra.

Rík­is­stjórnin náði þeim árangri að vera sú fyrsta sem sat heilt kjör­tíma­bil sem meiri­hluta­stjórn frá árinu 2007 og eftir valda­setu sem ein­kennd­ist að stóru leyti af bar­áttu við kór­ónu­veiru­far­aldur á flestum víg­stöðvum þá héldu stjórn­ar­flokk­arnir velli, og bættu meira að segja sam­eig­in­lega við sig fylgi. Í könnun sem gerð var skömmu fyrir kosn­ingar var Sigurður Ingi annar af tveimur leið­togum stjórn­mála­flokka sem fleiri lands­menn sögð­ust bera traust til en van­treysta. Hinn var Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur var mynduð eftir kosningarnar haustið 2017.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur var mynduð eftir kosn­ing­arnar haustið 2017.

Afslöppuð og loðin kosn­inga­taktík Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem var rekin með yfir­skrift­inni „Er ekki bara best að kjósa Framsókn?“, sem lagði áherslu á þá öfga- og áreynslu­lausu mála­miðlun að flokk­ur­inn væri milli­vegur milli and­stæðra fylk­inga í sam­fé­lag­inu, skot­gekk. Framsókn bætti við sig fimm þing­mönnum, fékk næstum 18 pró­sent atkvæða og varð næst stærsti flokkur lands­ins að nýju. Á sama tíma töp­uðu hinir stjórn­ar­flokk­arnir báðir fylgi frá kosn­ing­unum á undan.

Eftir að rík­is­stjórnin end­ur­nýj­aði sam­starfið sitt fékk Framsókn einn ráð­herra til og Sigurður Ingi gat farið fram á að búið yrði til ofur­ráðu­neyti utan um sig, svo­kallað inn­við­a­ráðu­neyti.

Sigurður Ingi var kom­inn langan veg frá því þegar hann stóð, sveittur og óör­uggur, í tröppum Alþing­is­húss­ins sem einn óvin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins að kynna rík­is­stjórn sem Hösk­uldur Þór­halls­son var þegar búinn að opin­bera.

Besta mæling í átta ár

Fyrstu sex mán­uðir þessa kjör­tíma­bils hafa liðið nokkuð smurt fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn. Í mars birti Gallup könnun sem sýndi fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins í 18,1 pró­senti, því mesta sem flokk­ur­inn hafði mælst með í átta ár.

Nýjasta könnun Gallup sýndi að fylgið hafði ekki hagg­ast sem neinu nemur. Og framundan voru sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar þar sem Framsókn ætl­aði að nýta með­byr­inn til að ná aftur sterkri stöðu í Reykja­vík undir for­ystu Einars Þor­steins­sonar, fyrr­ver­andi frétta­manns. Mikil bjart­sýni ríkti í her­búðum flokks­ins sem hefur, í gegnum tíð­ina, tek­ist betur en nokkrum öðrum að end­ur­upp­götva sig þegar til­veru hans hefur bein­línis verið ógnað eftir röð póli­tískra axar­skafta sem leitt hafa til ein stafa fylgis í könn­unum. Framsókn kemur alltaf aftur, í ein­hverjum nýjum bún­ingi.

Svo hélt flokk­ur­inn sam­kvæmi í tengslum við Bún­að­ar­þing Íslands, og allt einu var hann búinn að grafa sér nýja holu.

Afdrifarík mótttaka

Hefð er fyrir því að sumir stjórn­mála­flokkar haldi ein­hvers­konar sam­kvæmi í kringum Bún­að­ar­þing Bænda­sam­taka Íslands og bjóði for­ystu­mönnum þeirra, og öðrum. Þingið var sett síð­ast­lið­inn fimmtu­dag og í mót­töku sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hélt fyrir fund­ar­menn um kvöldið urðu tvö atvik sem áttu eftir að draga dilk á eftir sér.

Í fyrsta lagi spurði Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Gunnar Þor­geirs­son, for­mann Bænda­sam­tak­anna: „Gunnar, hvað ert þú að gera hér?“. Þegar Gunnar gerði til­raun til að faðma Lilju stöðv­aði hún þær aðfarir og í sam­tali við Vísi sagð­ist Gunnar hafa túlkað mót­tök­urnar þannig að Lilja hefði verið að vísa honum á dyr. Lilja sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið að hún hefði verið að grín­ast og sem kona í stjórn­málum hefði hún ekki mik­inn áhuga á faðm­lögum. Gunnar og Lilja hafa deilt á und­an­förnum árum vegna mál­efna Garð­yrkju­skól­ans á Reykjum, sem Lilja færði undir Land­bún­að­ar­há­skól­ann í tíð sinni sem mennta­mála­ráð­herra.

Atvikið þótti heilt yfir óheppi­legt, en ekki þess eðlis að það muni hafa, að minnsta kosti til skamms tíma, áhrif á stöðu Lilju sem ráð­herra í rík­is­stjórn. Og stjórn­ar­and­staðan hefur látið það vera.

Hitt atvikið var verra, og verður ekki látið ótalið. Þegar Vigdís Häsler, fram­­kvæmda­­stjóri Bænda­­sam­­taka Íslands, vildi fá for­ystu­fólk úr Fram­sókn­ar­flokknum til að taka mynd með sér þar sem hún „plank­aði“ á meðan að það hélt á henni á Sigurður Ingi að vísað til Vigdísar sem „hinnar svörtu“.

Algjört bull reyndist satt

Umfjöllun um upp­á­kom­una birt­ist fyrst í Orðinu á göt­unni á Eyjunni, slúð­ur­vett­vangi sem heyrir undir DV þar sem skrifað er nafn­laust, á sunnu­dag klukkan 15:30. Klukku­tíma og þremur mín­útum síðar birt­ist frétt á vef DV þar sem Ing­veldur Sæmunds­dóttir, póli­tískur aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga til margra ára, þvertók fyrir að yfir­maður hennar hefði við­haft rasísk ummæli. „Þetta er algjört bull,“ sagði Ing­veldur. Hún hefði verið edrú og staðið við hlið Sigurðar Inga þegar til stóð að taka umrædda mynd með Vigdísi. Ing­veldur sagði að Sigurði Inga hefði ekki lit­ist vel á hug­mynd­ina og sagt að hann vildi ekki halda á Sjálf­stæð­is­manni.

Þessi við­brögð reynd­ust ekki eld­ast vel þegar Vigdís gaf sjálf út yfir­lýs­ingu á mánu­dag þar sem hún sagði að „afar sær­andi ummæli“ hefðu verið látin falla og að hún hefði heyrt þau, sem og fleira starfs­­­fólk Bænda­­­sam­tak­anna. Hún sagði að hún hefði aldrei talið að hún þyrfti að setj­­­ast niður og skrifa yfir­­lýs­ingu af þessu tagi. „Að­stoð­ar­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­ari mynda­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­dómar eru gríð­ar­legt sam­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­linga og gjörðir niður í lit eða kyn.“

„Óviðurkvæmileg orð“

Sigurður Ingi og aðstoð­ar­menn hans höfðu ekki svarað fjöl­miðla­fólki allan sunnu­dag og mánu­dag. Eftir yfir­lýs­ingu Vigdísar brást hann þó við og birti stöðu­upp­færslu á Facebook, fjórum dögum eftir að ummælin voru látin falla og sóla­hring eftir að fjöl­miðlar fjöll­uðu fyrst um þau. Þar sagð­ist hann hafa tamið sér að koma jafnt fram við alla. „En mér verður á eins og öðr­­um. Það þykir mér mið­­ur. Í kvöld­verð­­ar­­boði Fram­­sóknar fyrir full­­trúa á Bún­­að­­ar­­þingi síð­­ast­liðið fimmt­u­­dags­­kvöld, lét ég óvið­­ur­­kvæmi­­leg orð falla í garð fram­­kvæmda­­stjóra Bænda­­sam­tak­anna. Á þeim orðum biðst ég inn­i­­legrar afsök­un­­ar. Í líf­inu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lær­­dómur bitni á til­­f­inn­ingum ann­­arra.“

Ing­veldur, aðstoð­ar­kona hans sem hafði sagt að atvikið sem Sigurður Ingi baðst afsök­unar á hefði aldrei átt sér stað, svar­aði fyr­ir­spurn RÚV á þann veg að hún hefði svarað DV að hún hefði verið að „segja frá því sem ég heyrði og varð vitni að og var það ekki borið undir ráð­herra.“

Hafi Sigurður Ingi haldið að þessi afsök­un­ar­beiðni myndi lægja öld­urnar, líkt og Evr­ópu­mótið í knatt­spyrnu gerði fyrir sex árum síðan, þá mis­reikn­aði hann stöð­una illi­lega.

Stjórn­ar­and­staðan lét for­sæt­is­ráð­herra svara fyrir ummælin í þing­inu á mánu­dag, sem hún gerði en sýni­lega án mik­illar ánægju. Þar var Katrín meðal ann­ars spurð hvort hún myndi fara fram á afsögn Sigurðar Inga, en svar­aði þeirri spurn­ingu ekki beint. Þá var á það bent að ummæli for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins væru í and­stöðu við siða­reglur þing­manna og ráð­herra og áreitni í skiln­ingi laga um jafna með­ferð óháð kyn­þætti og þjóð­ern­is­upp­runa. Því féllu þau undir bann við mis­munun sam­kvæmt lög­um.

Ung­liða­hreyf­ingar stjórn­ar­and­stöðu­flokka köll­uðu eftir afsögn Sigurðar Inga. Ung­liða­hreyf­ing Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem stundum hefur látið sig póli­tísk hneyksl­is­mál varða, líkt og hún gerði í des­em­ber 2020 þegar Bjarni Bene­dikts­son var grip­inn í sam­kvæmi í Ásmund­ar­sal á meðan að þjóðin sætti sam­komu­tak­mörk­unum, hefur hins vegar ekki gert það. Að minnsta kosti enn.

Það getur gerst að „við skítum stundum upp á bak“

Brynja Dan Gunn­ars­dóttir, vara­þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins sem er ætt­leidd frá Srí Lanka, mætti í Morg­un­út­varp Rásar 2 í gær­morgun til að ræða ummæli Sigurðar Inga. Hún sagði hann hafa hringt í sig til að ræða málið þar sem hann sagð­ist „fullur iðr­unar og svekkt­astur út í sjálfan sig.“ Sjálft hefði hún ekki orðið fyrir for­dómum í starfi sínu fyrir Framsókn, allir væru mann­legir og það gæti gerst að „við skítum stundum upp á bak.“ Þá skipti máli hvernig fólk hreinsi upp eftir sig og bæti sitt ráð.

Rík­is­stjórn­ar­fundur fór fram í gær. Eftir hann sátu frétta­menn ýmissa miðla fyrir ráð­herr­unum og á dag­skrá var ein­ungis eitt mál: ummæli Sigurðar Inga.

Ásmundur Einar Daðason, sam­flokks­maður hans, sagði við mbl.is Sigurður Ingi hefði „svarað fyrir þetta með sinni yfir­lýs­ingu og því sem þar er og ég tek undir það sem í henni er. Hann sér eftir þessu og sýnir þarna ákveðna mann­lega hlið og við gerum öll mis­tök. Maður sem ekki gerir mis­tök hann hættir að vera maður. Það er bara mann­legt og við höfum rætt þetta og ég ber fullt traust til hans.“

Erfitt mál í Sjálfstæðisflokknum

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagð­ist ekki hafa rætt málið við Sigurð Inga en að hún hafi orðið döpur þegar hún las stöðu­upp­færslu Vigdísar um málið. Ekki hafi verið til umræðu innan Vinstri grænna að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu ef Sigurður Ingi myndi ekki segja af sér. Í Frétta­blað­inu í morgun sagði hún að þegar ráð­herrar fylgja ekki siða­reglum ráð­herra þurfi „hann að meta stöðu sína, enda ábyrgð á störfum og hátt­semi hjá honum sjálfum.“

Málið er erfitt fyrir ráða­menn í Sjálf­stæð­is­flokknum, þar sem þeir þekkja Vigdísi per­sónu­lega. Hún var meðal ann­ars aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar þegar hann var ráð­herra á árinu 2017 og var starfs­maður þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins um tíma á síð­asta kjör­tíma­bili. Brynjar Níelsson sagði ummælin hafa verið „klúð­urs­leg“, Þórdís Kolbrún Reykdal Gylfa­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagði að Sigurður Ingi þyrfti að gera upp við sig hvort afsök­un­ar­beiðni hans dygði til og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra sagði ummælin vera „alvar­leg“.

Samstarfsflokkar Framsóknar í ríkisstjórninni hafa ekki farið fram á afsögn Sigurðar Inga.
Sam­starfs­flokkar Fram­sóknar í rík­is­stjórn­inni hafa ekki farið fram á afsögn Sigurðar Inga.

Bjarni Bene­dikts­son sagði ummælin „dæma sig sjálf og þetta er bara mjög óheppi­legt atvik“. Hann bætti við að það væri alfarið ákvörðun Sigurðar Inga hvort hann myndi segja af sér. Ég ætla ekki að fara að leggja neitt á mig til að hjálpa til við það.“ Ummælin hafa vakið athygli, meðal ann­ars vegna þess að Sigurður Ingi tók upp hansk­ann fyrir Bjarna þegar kröfur voru um afsögn hans fyrir að fara í sam­kvæmi í Ásmund­ar­sal í des­em­ber 2020 á sama tíma og harðar sam­komu­tak­mark­anir voru í gildi. Hann sagði við RÚV á annan í jólum það ár að málið hefði ekki áhrif á stjórn­ar­sam­starfið og kall­aði ekki á afsögn Bjarna.

Sam­an­dregið þá er uppi sú staða að eng­inn ráð­herra sam­starfs­flokka Fram­sóknar hafa tekið beint upp hansk­ann fyrir hann og sagt að hann þurfi ekki að segja af sér.

Vildi ekki svara spurningum en fann ekki bílinn

Sigurður Ingi sjálfur neit­aði að svara spurn­ingum frétta­manna fyrir utan ráð­herra­bú­stað­inn og vís­aði í yfir­lýs­ingu sína frá því á mánu­dag. Þess í stað fór hann undan í flæm­ingi, neit­aði að svara hvort hann myndi axla ábyrgð með ein­hverjum hætti en lenti í vand­ræðum, fann ekki ráð­herra­bíl­inn sinn og fram­lengdi með því afar vand­ræða­legar aðstæður. Hann mætti svo í beina útsend­ingu í kvöld­fréttum RÚV, neit­aði að end­ur­taka hvað hann hefði sagt, sagð­ist upp­lifa traust innan þings og sæi ekki til­efni til að segja af sér.

Þingmenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna ósk­uðu eftir því á þingi í gær að fá að ræða rasísk ummæli Sigurðar Inga og nokkuð skýrt að þeir munu krefja inn­við­a­ráð­herr­ann skýrra svara á þeim vett­vangi fyrr eða síðar.

Á meðan að Sigurður Ingi þegir þurfa aðrir ráð­herrar, þing­menn og flokks­menn Fram­sóknar að svara fyrir hvort flokk­ur­inn sé rasískur eða ekki.

Næstu dagar munu ráða því hvort nýjasta end­ur­reisn Fram­sóknar, sem hófst fyrir nákvæm­lega sex árum þegar Sigurður Ingi varð for­sæt­is­ráð­herra, og hefur skilað flokknum á fórnar slóðir í fylgi á meðal þjóð­ar­innar, sé nú búin að ná hápunkti sínum. Og framundan sé dýfa.

Fyrir liggur, hið minnsta, að rasísk ummæli hans um lit­ar­haft fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka Íslands hefur laskað Sigurð Inga Jóhanns­son og Framsókn, að minnsta kosti um stund­ar­sakir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár