Frumvarp um stjórn fiskveiða verður ekki lagt fram að óbreyttu

Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, mun ekki leggja fram frum­varp um breyt­ingar á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu á yfir­stand­andi þingi. RÚV greinir frá mál­inu. Í frétt RÚV segir að rík­is­stjórnin hafi enn ekki náð sam­komu­lagi um hver eigi að fara með for­ræði yfir kvót­anum.

Samkvæmt stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar segir að fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerfið eigi að byggja á afla­marks­kerfi og áfram verði unnið með til­lögu sátta­nefnd­ar­innar svoköll­uðu sem starf­aði á síð­asta kjör­tíma­bili, þar sem lagt er til að samn­ings­bundin rétt­indi um nýt­ingu afla­heim­ilda taki við af var­an­legri úthlutun.

Í sam­tali við RÚV segir sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra að ágrein­ingur stjórn­ar­flokk­anna snú­ist um hver skuli fara með for­ræði á kvót­anum. Þar hafi ekki náðst nið­ur­staða, hvorki á milli stjórna­flokk­anna né á þing­inu. Nú sé málið komið á enda­stöð nema fos­endur breyt­ist. Hann á því ekki von á að hann muni leggja fram frum­varp um breyt­ingar á stjórn fisk­veiða.

Hins vegar mun frum­varp um veiði­gjöld verða tekið fyrir á vor­þingi og seg­ist sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra ætla að leggja það fram eins fljótt og hægt verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár