Þjóðin klofin í afstöðu sinni til veggjalda

Ný könnun sýnir ólík við­horf Íslend­inga til veggjalda.

Hartnær 30 pró­sent Íslend­inga eru hlynnt auknum einka­fram­kvæmdum í sam­göngu­málum en næstum þriðj­ungur er and­vígur þeim. Stærsti hóp­ur­inn, eða ríf­lega 38 pró­sent, er beggja blands.

Þetta má lesa út úr nýrri könnun frá Maskínu.

Þá eru um 40 pró­sent hlynnt veggjöldum ef þau flýta fyrir vega­fram­kvæmdum og önnur 40% and­víg þeim (20% liggja þar á milli), sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Maskínu.

„Líkt og með einka­fram­kvæmd í sam­göngum eru elstu Íslend­ingar hlynnt­ari veggjöldum sem myndu flýta fyrir vega­fram­kvæmdum en þeir yngri, eða um helm­ingur þeirra. Þá eykst stuðn­ingur við veggjöld með lengri skóla­göngu og hærri tekjum. Skoðun á veggjöldum sem flýttu fyrir vega­fram­kvæmdum skipt­ist eftir flokkspóli­tík svipað og skoðun á einka­fram­kvæmd í sam­göngum. Meiri­hluti kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins (56,7%) og Við­reisnar (57,0%) er hlynntur slíkum veggjöldum, en aðeins sjö­undi partur kjós­enda Flokks fólks­ins (26,8%),“ segir í til­kynn­ingu frá Maskínu.

Svar­endur voru 817 tals­ins og komu úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru af báðum kynjum, alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri.

Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu. Könnunin fór fram dag­ana 14.-28. des­em­ber 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár