Sex prósent ungmenna á Íslandi hvorki í námi, vinnu né starfsþjálfun

Hlutfall ung­menna sem ekki eru í námi, vinnu eða starfs­þjálfun hefur sveifl­ast á und­an­förnum árum. Ísland stendur vel að vígi sam­an­borið við önnur Evr­ópu­lönd.

Um 2400 ung­menni, þ.e. um sex pró­sent ung­menna á Íslandi, á aldr­inum 16-24 ára voru hvorki í námi, vinnu né starfs­þjálfun árið 2018. Hlut­fallið er lágt sam­an­borið við önnur Evr­ópu­ríki. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar.

Bent er á í til­kynn­ing­unni að Alþjóð­lega vinnu­mark­aðs­stofn­unin (ILO) telji hóp­inn vera í sér­stakri hættu á félags­legri ein­angrun og skorti á efn­is­legum gæðum þar sem ung­mennin hljóti ekki menntun eða þjálfum jafn­framt sem þau afli sér ekki tekna.

[adspot]Hlutfall ung­menna á Íslandi sem til­heyrir þessum hópi hefur sveifl­ast tölu­vert síð­ast­lið­inn ára­tug. Árið 2008 til­heyrðu undir fimm pró­sent ung­menna þessum áhættu­hópi en hækk­aði árið 2009 í 8,3 pró­sent ung­menna. Hlut­fallið hélst hátt næstu árin eftir hrun. Í til­kynn­ing­unni segir að hlut­fall ung­menna sem ekki eru í vinnu, námi eða starfs­þjálfun nú og fyrir hrun sé svipað.

Hlutfallið með því lægsta í Evrópu

Einungis tvö Evr­ópu­ríki hafa lægra hlut­fall ung­menna sem ekki eru í námi, vinnu eða starfs­þjálfun, þ.e. Noregur og Holland. Annað er uppi á ten­ingnum fyrir Tyrkland, Norður-Makedóníu og Ítalíu. Hlut­fallið í Tyrk­landi nær 24,4 pró­sent ung­menna, Norður-Makedóníu 24,1 pró­sent ung­menna og Ítalíu tæp 20 pró­sent ung­menna.

Frá árinu 2013 hefur bilið á milli karla og kvenna án vinnu, náms eða starfs­þjálfun á Íslandi auk­ist og stóð í 6,4 pró­sent meðal karla en 8,5 pró­sent meðal kvenna árið 2018. Munurinn á milli kynja var minnk­aði hins vegar á árunum 2003-2008. Á vef Hag­stof­unnar er mun­ur­inn skýrður á þann veg að konur á aldr­inum 20-34 ára séu frekar utan vinnu­mark­aðar en ungir karlar. Mögulega sé það vegna þess að ungar konur taki frekar fæð­ing­ar­or­lof áður en þær byrji í starfi, þær séu frekar öryrkjar, tíma­bundið ófærar til vinnu og lík­legri til að vera heima­vinn­andi. Engu að síður er kynja­mun­ur­inn minni en í öðrum ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem með­al­talið er 8,7 pró­sentu­stiga munur á milli kynja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár