Orkuveitan kaupir mæla af Frumherja fyrir 1,5 milljarða króna

Samn­ing­ar hafa tek­ist milli Veitna ohf., dótt­ur­fé­lags Orku­veitu Reykja­vík­ur, og Frum­herja um að Veit­ur eign­ist á ný mæla fyr­ir raf­magn og heitt og kalt vatn á þjón­ustu­svæði sínu. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá Orku­veitu Reykja­víkur.

Frum­herji keypti allt mæla­safnið eft­ir útboð árið 2001, segir í til­kynn­ing­unni. Íslands­banki er stærsti eig­andi Frum­herja, með um 80 pró­sent hlut, en fyr­ir­tækið er í sölu­ferli.

Mæl­arn­ir eru um 150 þús­und tals­ins og er kaup­verðið tæp­lega 1,6 millj­arður króna. Á ár­inu 2014 greiddi OR 395 millj­ón­ir króna fyr­ir leigu og rekst­ur rennsl­is- og orku­mæl­anna. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Orku­veitu Reykja­vík­ur.

Það var í des­em­ber 2014 að OR kynnti þá ákvörðun að taka á ný við mæl­um fyr­ir raf­magn og heitt og kalt vatn hjá við­skipta­vin­um á þjón­ustu­svæði sínu. „OR og for­ver­ar fyr­ir­tæk­is­ins sáu fyrr á árum um mæl­ana eða til 2001 þegar Frum­herji hf. keypti þá í kjöl­far útboðs og leigði OR til af­nota. Frum­herji hef­ur síðan átt og rekið mæla­safnið. Ann­ar samn­ing­ur OR og Frum­herja var gerður eft­ir útboð árið 2007. Hann rann út í maí 2014 og var þá fram­lengd­ur til eins árs eða til maíloka 2015. Ekki voru frek­ari mögu­leik­ar á fram­leng­ingu í samn­ingn­um,“ segir í til­kynn­ingu.

Með samn­ingi um kaup á þeim mæl­um sem nú eru í notk­un flyst eign­ar­haldið til Veitna, dótt­ur­fé­lags OR sem var stofnað við upp­skipt­ingu OR í árs­byrj­un 2014 og sér um all­an hefð­bund­inn veit­u­r­ekst­ur. Lög­um sam­kvæmt eru notk­un­ar­mæl­ing­ar á ábyrgð veitu­fyr­ir­tæk­is.

Á ár­inu 2014 greiddi Orku­veitan tæp­lega 400 millj­ón­ir króna fyr­ir leigu og rekst­ur rennsl­is- og orku­mæl­anna.

Ákvörð­unin um að taka við mæla­safn­inu á ný er einkum byggð á því að:

Helstu for­sendur sem nefndar eru fyrir við­skipt­unum, á vef Orku­veitu Reykja­víkur, eru eft­ir­far­andi.

· Mælarnir eru hluti af dreifi­kerf­inu sem er kjarna­starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Meg­in­inn­tak í stefnu­yf­ir­lýs­ingu OR og eig­enda hennar er einmitt að hlúa beri sem mest og best að kjarna­starf­sem­inni.

· Ör tækni­þróun er á sviði mæla­bún­aðar og fyr­ir­tækið þarf að stýra þeirri upp­bygg­ingu og þróun án milli­liða milli fyr­ir­tæk­is­ins og við­skipta­vina.

· OR hefur góða fjár­hags­lega burði til að taka mæl­ana í hús til sín, enda hefur við­snún­ingur í rekstri hennar tek­ist betur en áætlað var. Til lengri tíma stuðlar ákvörð­unin svo að hag­ræð­ingu og sparn­aði í rekstri, við­skipta­vinum til hags­bóta.

· Óheppi­legt getur verið að veit­urnar sjálfar eigi ekki mæli­tækin sem mæla grunn tekju­streymis hennar.

· Við­skipta­sam­bandið við þá sem fyr­ir­tækið þjónar verður milli­liða­laust. Jafn­framt sæta mæl­arnir óháðu eft­ir­liti sam­kvæmt lögum.

Verð á raf­magni og vatni breyt­ist ekki vegna þessa, segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár