Samþykktu að fresta Brexit til 31. október

Th­eresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, féllst í nótt á boð Evr­ópu­sam­bands­ins um sex mán­aða við­bótar­frest fyr­ir Breta til að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Th­eresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sam­þykkti í nótt boð Evr­ópu­sam­bands­ins um að fresta Brexit til 31 októ­ber næst­kom­andi. Donald Tusk, for­seti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, stað­festi þetta á Twitter í nótt. Frest­unin er sveigj­an­leg og því geta Bretar yfir­gefið sam­bandið fyrr náist sam­komu­lag um útgöng­una fyrir þann tíma. Frá þessu er greint á vef BBC.

Stendur til boða að yfirgefa sambandið fyrr

Leið­togar aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins fund­uðu í Brussel í gær til að ákveða mögu­lega fram­leng­ingu á frestun Brexit. Til stóð að Bretar yfir­gæfu Evr­ópu­sam­band­inu á föstu­dag­inn næst­kom­andi og þá án samn­ings. Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, fund­aði með leið­tog­unum síð­degis en hennar til­laga var að fresta útgöng­unni til 30 júní. Margir leið­tog­anna töldu þann frest ekki nægan og var talað um að frest­ur­inn yrði allt að ár. Donald Tusk til­kynnti síðan seint í gær­kvöld Bretum væri boðið sex mán­aða við­bótar­frestur.

Th­eresa May sam­þykk­ti ­frest­inn en sagði í kjöl­farið á blaða­manna­fundi að Bretland myndi stefna að því að yfir­gefa sam­bandið sem allra fyrst. Sveigj­an­leiki frest­un­ar­innar býður upp á þann mögu­leika að Bretar geti gengið úr sam­band­inu fyrir 1. júní ef breska þingið sam­þykkir útgöngu­leið á fyrstu þremur vikum maí­mán­aðar.

Bretland verður að taka þátt í kosningum til Evrópuþings eða yfirgefa sambandið fyrir 1. júní

Donald Tusk sagði á blaða­manna­fundi í Brussel í nótt að fram­haldið væri nú í höndum Breta. Bretar gætu enn stað­fest samn­ing­inn sem þingið hefur nú þegar hafnað þrisvar og þannig yfir­gefið sam­bandið. Hann sagði Breta jafn­framt geta fundið aðrar leiðir eða dregið ákvörðun sína um útgöng­una til baka. Bretar geta þó ekki breytt samn­ingnum um úrgöng­una.

Tusk sagði jafn­framt fram­leng­ingin væri eins sveigj­an­leg og hann hafði átt von á en þó styttri en hann bjóst við. Að hans mati ætti hún þó að duga til að kom­ast að bestu mögu­legu lausn. Hann beindi að lokum þeim orðum til bresku þjóð­ar­innar að „vin­sam­leg­ast ekki láta þennan tíma fara til spillis.“

Samkvæmt umfjöllun BBC verður Bretland að taka þátt í kosn­ingum til Evr­ópu­þings eða að öðrum kosti yfir­gefa sam­bandið þann 1. júní næst­kom­andi. Jean Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði að þó það gæti þótt undra­legt að Bretar taki þátt í kosn­ingum þá yrði að virða evr­ópsk lög.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár