Baráttan um tryggingafélögin og milljarðana þeirra

VÍS leikur á reiði­skjálfi vegna þess að ásak­anir eru uppi um að hópur einka­fjár­festa vilji stýra fjár­fest­inga­á­kvörð­unum félags­ins í krafti um fimmt­ungs eign­ar­hlutar. VÍS er þegar búið að kaupa stóran hlut í banka sem hluti hóps­ins á sjálfur í.

Fyrir rúmu ári síðan, í mars 2016, nötr­aði íslenskt sam­fé­lag vegna fyr­ir­hug­aðra arð­greiðslna þriggja stærstu trygg­inga­fé­laga lands­ins, VÍS, Trygg­ing­ar­mið­stöðv­ar­innar (TM) og Sjó­vá. Stjórnir félag­anna höfðu ákveðið að greiða eig­endum sínum sam­an­lagt 9,6 millj­arða króna í arð og kaupa af þeim hluta­bréf upp á 3,5 millj­arða króna. Þetta mæld­ist veru­lega illa fyrir, sér­stak­lega þar sem hagn­aður tveggja þeirra, VÍS og Sjóvár, er mun lægri en fyr­ir­huguð arð­greiðsla. VÍS hagn­að­ist ­nefni­lega um 2,1 millj­arð króna á árinu 2015 en ætl­aði samt að greiða hlut­höfum sínum út fimm millj­arða króna í arð. Sjóvá hagn­að­ist um 657 millj­ónir króna en ætl­aði að greiða út 3,1 millj­arð króna í arð. TM hagn­að­ist hins vegar um 2,5 millj­arða króna og ætl­aði að greiða hlut­höfum sínum út 1,5 millj­arð króna.

Ástæða hinna miklu ætl­uðu arð­greiðslna var að finna í breytt­u­m ­reikniskila­regl­um, sem lækk­uðu vátrygg­ing­ar­skuld félag­anna, sem oft er kölluð ­bóta­sjóður í almennu tali, en jók eigið fé þeirra. Það fé sem „verður til“ vegna þess er því ekki raun­veru­legur hagn­aður heldur til­komið vegna talnakúnstna sem færa fé úr ­vátrygg­inga­skuld­inni í eigið fé trygg­inga­fé­lag­anna, og þar af leið­andi til hlut­haf­anna. Í til­felli VÍS var vátrygg­inga­skuld­in/­bóta­sjóð­ur­inn til að mynda lækk­aður um fimm millj­arða króna en eigið féð aukið um 3,7 millj­arða króna vegna þess­ara breyttu reikniskila­að­ferða.

Á end­anum virk­aði þrýst­ing­ur­inn. VÍS og Sjóvá drógu bæði úr ætl­uðum arð­greiðslum. En fjár­festar, sem komið höfðu inn í hlut­hafa­hóp VÍS skömmu áður í skuld­settum hluta­bréfa­kaupum, voru ekki ánægðir.

Kerfislega mikilvæg fyrirtæki

Ástæða þess að fylgst er afar vel með íslenskum trygg­inga­fé­lögum eru fjór­þætt. Í fyrsta lagi eru flestir lands­menn bundnir sam­kvæmt lögum til að vera með ein­hvers konar trygg­ingar hjá þeim, t.d. bif­reiða­trygg­ingar. Það er því ekki hægt að kom­ast hjá því að vera í við­skiptum við trygg­inga­fé­lög með góðu móti og því skiptir máli hvernig ágóð­anum af starf­sem­inni er skipt milli fjár­magns­eig­end­anna sem fjár­festa í þeim og við­skipta­vin­anna, í formi lægri iðgjalda.

Í öðru lagi eru líf­eyr­is­sjóðir lands­ins saman stórir eig­endur í öllum þremur skráðu trygg­inga­fé­lög­unum. Í þeim eru pen­ingar lands­manna sem not­ast eiga til að greiða fyrir fram­færslu á efri árum og því skiptir máli að þeir séu fjár­festir af ábyrgð.

Í þriðja lagi eru trygg­inga­fé­lög troð­full af pen­ingum. Eignir þeirra hlaupa á tugum millj­arða króna og þau hafa mikið svig­rúm til að stunda umfangs­mikla fjár­fest­inga­starf­semi með það fé sem við­skipta­vinir þeirra greiða inn til þeirra. Slíku svig­rúmi fylgja mikil völd og það er eft­ir­sókn­ar­vert í huga margra einka­fjár­festa að kom­ast í þessa sjóði.

Í fjórða lagi er lands­mönnum, og stjórn­völdum, í fersku minni að það er ekki lið­inn ára­tugur síðan að íslenska ríkið þurfti að grípa trygg­inga­fé­lag sem glæfra­legir fjár­festir höfðu blóð­mjólkað svo það myndi ekki fara í þrot með til­heyr­andi flækju­stigi fyrir alla sem voru með trygg­ingar hjá því. Þá var um að ræða Sjóvá. Og eig­endur þess höfðu greitt sér út 19,4 millj­arða króna í arð ­síð­ustu þrjú árin áður en það féll.

Hópur kaupir í VÍS

Átök innan VÍS hafa vart farið fram hjá mörgum. Upphaf þeirra má rekja til þess að á árinu 2015 fór hópur einka­fjár­festa að gera sig mjög gild­andi innan félags­ins og sækj­ast eftir áhrifum. Í for­grunni hóps­ins eru hjónin Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir og Guð­mundur Örn Þórð­ar­son. Þau eru vel þekkt í íslensku við­skipta­lífi fyrir djörf­ung og áhættu­sækni. Hjónin högn­uð­ust til að mynda gíf­ur­lega á hinni svoköll­uðu Skelj­ungs­fléttu, sem margir við­mæl­endur Kjarnans hafa kallað eina þá svæsn­ustu sem ráð­ist hefur verið í eftir banka­hrunið. Um hana má lesa hér. Hluta þess hagn­aðar sem þau fóru með út úr þeim við­skiptum not­uðu þau til að kaupa hluti í VÍS, en upp­kaup þeirra hófust í októ­ber 2014.

Aðrir sem tengj­ast þessum hópi eru félag Sigurðar Bolla­sonar og Don McCharthy, Grandier ehf., félagið Óskabein, sem er m.a. í eigu Andra Gunn­ars­sonar og Fannars Ólafs­sonar, og svo sjóð­stýr­inga­fyr­ir­tækið Stefnir, sem er í eigu Arion banka. Saman á þessi hópur rúm­lega 20 pró­sent hlut í VÍS. Grandier á stærsta ein­staka hlut­inn, 8,01 pró­sent.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir va rekin sem forstjóri VÍS í fyrrasumar. Eftirmaður hennar entist einungis nokkra mánuði í starfi.
Sigrún Ragna Ólafs­dóttir va rekin sem for­stjóri VÍS í fyrra­sumar. Eft­ir­maður hennar ent­ist ein­ungis nokkra mán­uði í starfi.

Þau Svan­hildur Nanna og Guð­mundur Örn lýstu því strax yfir þegar þau hófu að kaupa hluti í VÍS að þau myndu sækj­ast eftir stjórn­ar­setu. Boðað var til hlut­hafa­fundar þar sem þeim var að ósk sinni.

Grandier og Óskabein keyptu svo sína hluti á árinu 2015. Og opin­berar yfir­lýs­ingar um kröfu um breyt­ingar á VÍS urðu algengar. Einka­fjár­fest­arnir vildu að trygg­inga­hluti starf­sem­innar yrði arð­sam­ari, annað hvort með hag­ræð­ingu í rekstri eða með því að hækka ein­fald­lega iðgjöld. Í lok nóv­em­ber 2015 var við­skipta­vinum VÍS sent bréf þar sem til­kynnt var um hækkun iðgjalda vegna slakrar afkomu félags­ins.

Reynt að greiða arð umfram hagnað út úr VÍS

Í aðdrag­anda aðal­fundar VÍS snemma árs 2016 lagði stjórn félags­ins til að greiddir yrðu fimm millj­arðar króna út í arð, þrátt fyrir að hagn­aður hefði ein­ungis verið 2,1 millj­arður króna. Auk þess voru lagðar fram til­lögur um end­ur­kaup VÍS á bréfum hlut­hafa. Þetta átti að gera á grunni nýrra reikniskila­reglna sem lækk­uðu vá­trygg­inga­skuld félags­ins, sem oft er nefnd bóta­sjóð­ur, um fimm millj­arða króna en jók eigið fé um 3,7 millarða króna. Allt varð vit­laust vegna þessa og mikil þrýst­ingur var á stjórn VÍS að draga til­lög­una til baka.

Þegar leið að aðal­fund­inum, sem haldin var 17. mars, fóru að birt­ast fréttir af því í fjöl­miðlum að nokkrir af stærstu hlut­höfum VÍS myndu ekki styðja arð­greiðsl­una. Var gengið út frá því að þar væri um að ræða stærstu líf­eyr­is­sjóði lands­ins, en saman áttu líf­eyr­is­sjóð­irnir um 36 pró­sent hlut í VÍS á þessum tíma.

Þessi þrýst­ingur hlut­hafa, stjórn­mála­manna, hags­muna­sam­taka og almenn­ings virk­aði. Stjórn VÍS ákvað að lækka arð­greiðsl­una úr fimm millj­örðum króna í tæp­lega 2,1 millj­arð króna. Þetta var gert þrátt fyrir að stjórnin teldi að arð­greiðslu­til­kynn­ingar hennar hafi verið vel innan þess ramman sem mark­mið um fjár­­­magns­­skipan félags­­ins gerir ráð fyr­­ir.

Í til­­kynn­ing­u sem send var út í kjöl­farið sagði að við­­skipta­vinir og starfs­­menn VÍS skipti félagið miklu. „Stjórnin getur ekki horft fram hjá þeirri stað­­reynd að fylgi hún núver­andi arð­greiðslu­­stefnu, þá geti það skaðað orð­­spor fyr­ir­tæk­is­ins. Í því ljósi hefur stjórn ákveðið að leggja til að greiðsla sé miðuð við hagnað síð­­asta árs. Stjórn VÍS telur mik­il­vægt að fram fari umræða innan félags­­ins, meðal hlut­hafa og út í sam­­fé­lag­inu um lang­­tíma­­stefnu varð­andi ráð­­stöfun fjár­­muna sem ekki nýt­­ast rekstri skráðra félaga á mark­að­i.“

Í lok ágúst dró svo aftur til tíð­inda hjá VÍS. Þá var Sigrún Ragna Ólafs­dóttir, for­stjóri félags­ins og eina konan sem stýrði skráðu félagi á Íslandi, rekin. Engin sér­stök ástæða var gefin fyrir brott­rekstri hennar. Í for­stjóra­stól­inn sett­ist Jakob Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Promens.

Í aðdrag­anda aðal­fundar VÍS í mars 2017 varð svo enn ein vend­ingin. Svan­hildur Nanna Vig­fús­dóttir, sótt­ist eftir því að velta Herdísi Dröfn Fjelsted úr sæti stjórn­ar­for­manns. Herdís Dröfn sat þar meðal ann­ars með stuðn­ingi stærstu líf­eyr­is­sjóð­anna í eig­enda­hópnum en hún hefur starfað fyrir þá á und­an­förnum árum sem fram­kvæmda­stjóri Fram­taks­sjóðs Íslands.

Fram­boðið var að und­ir­lagi stærstu einka­fjár­fest­ana í eig­enda­hópi VÍS sem vildu ná fram breyt­ingum í stjórn og stefnu félags­ins. Og það tókst þeim.

Stjórnarmaður segir af sér

Þessi breyt­ing varð til þess að Herdís Dröfn sagði af sér stjórn­ar­mennsku í VÍS. Við það varð ljóst að alls 15 manns höfðu setið í stjórn VÍS frá byrjun árs 2015 og Svan­hildur Nanna varð fjórði stjórn­ar­for­mað­ur­inn á því tíma­bili. Svo tíð skipti á stjórn­ar­mönnum hafa ekki átt sér stað í neinu öðru skráðu félagi hér­lendis eftir hrun.

Jakob Sig­urðs­son, sem hafði verið for­stjóri VÍS frá því í ágúst 2016, hætti svo skyndi­lega í apríl. Opinbera ástæðan sem gefin var er sú að hann hafi fengið starfstil­boð frá bresku félagi sem hafi ekki verið hægt að hafna. Enginn við­mæl­enda Kjarnans sem starfa á og í kringum íslenskan hluta­bréfa­markað leggur þó trúnað á að það hafi verið eina ástæðan fyrir brott­hvarfi Jakobs. Breyttar áherslur í stefnu VÍS, sem fylgdu nýjum stjórn­ar­for­manni og hópnum sem hún veitti for­stöðu, hljóti að hafa spilað þar inn í. Helgi Bjarna­son mun taka við starfi Jakobs 1. júlí næst­kom­andi.

VÍS keypti stóran hlut í Kviku banka snemma á þessu ári og er nú langstærsti eigandi bankans. Aðrir stórir eigendur eru meðal annars félög í eigu stórra eigenda í VÍS. Ármann Þorvaldsson var ráðinn forstjóri Kviku fyrir skemmstu.
VÍS keypti stóran hlut í Kviku banka snemma á þessu ári og er nú langstærsti eig­andi bank­ans. Aðrir stórir eig­endur eru meðal ann­ars félög í eigu stórra eig­enda í VÍS. Ármann Þor­valds­son var ráð­inn for­stjóri Kviku fyrir skemmstu.

Í lið­inni viku greindi Morg­un­blaðið svo frá því að þrír stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Gildi og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR), hafi ákveðið að selja bréf í VÍS og minnka þar með sterka stöðu sína í félag­inu. Ástæðan var sú að þeir væru óánægðir með stjórn­ar­hætti í VÍS. Bæði LSR og Gildi eru byrj­aðir að selja sig niður en stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna hefur ein­ungis tekið ákvörðun um að gera það. Salan er ekki hafin. Sjóð­ur­inn hefur verið harð­lega gagn­rýndur fyrir að láta slíkt spyrj­ast út áður en að bréfin voru seld, enda hafði ákvörðun sjóð­anna þriggja um að selja sig niður víð­tæk áhrif á virði bréfa í VÍS, og þar af leið­andi eign þeirra sjálfra, þar sem bréf í VÍS lækk­uðu í síð­ustu viku.

Jón Gunn­ars­son, ráð­herra sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­mála, gagn­rýndi sjóð­ina líka harð­lega í Facebook-færslu. Hann sagði: „Má skilja þetta svo að fjár­fest­ingar þess­ara líf­eyr­is­sjóða snú­ist um að ná völdum en ekki að ávaxta, með sem bestum hætti, fé okkar lands­manna sem þeim er treyst fyr­ir.“

Lífeyrissjóðir þurfa að setja fordæmi

Það er þó dýpra á afstöðu líf­eyr­is­sjóð­anna þriggja en svo að þar haldi bara valda­sjúkt fólk um stjórn­ar­taumanna. Raunar er það svo að líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa haft það að meg­in­stefnu að vera að mestu óvirkir eig­endur í þeim skráðu félögum sem þeir hafa keypt hluti í eftir hrunið, þótt þeir hafi stutt ýmsa stjórn­ar­menn til setu fram yfir aðra. Ástæðan er sú að sjóð­irnir eiga sam­an­lagt, beint og óbeint, rúm­lega helm­ing allra skráðra hluta­bréfa. Þeir hafa leikið lyk­il­hlut­verk í end­ur­reisn íslensks hluta­bréfa­mark­aðar með því að kaupa upp gríð­ar­legt magn bréfa eftir skrán­ingar og eru þar af leið­andi á meðal stærstu eig­enda í nær öllum skráðum félögum hér­lendis. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er til að mynda annað hvort stærsti eða næst stærsti eig­andi í 14 af þeim 17 félögum sem skráð eru í Kauphöll Íslands.

Þessari miklu eign gætu fylgt mikil völd og aug­ljós freistni­vandi hefur skap­ast fyrir stjórn­endur líf­eyr­is­sjóð­anna að nýta sér þessa stöðu með ein­hverjum hætti. Sú skoðun er þó nokkuð almenn að þeir hafi stað­ist þessa freistni og farið ágæt­lega með þessi miklu völd hingað til. Á síð­ustu árum koma eig­in­lega bara tvö dæmi upp í hug­ann þar sem þeir hafa beitt sér mjög hart innan félaga. Bæði þau dæmi tengj­ast VÍS. Það fyrra var þegar sjóð­irnir settu sig upp á móti arð­greiðsl­unum í fyrra og það síð­ara þegar þeir ákváðu að selja sig niður í félag­inu á síð­ustu dögum.

Það ber að hafa í huga að sú ákvörðun líf­eyr­is­sjóð­anna, að selja sig niður með þessum hætti þegar þeir eru óánægðir með stefnu sem félag er að taka, snýst ekki bara um VÍS. Hún snýst um for­dæmi. Það hefur lengi legið fyrir að vegna fyr­ir­ferðar íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna á inn­lendum fjár­fest­ing­ar­mark­aði, og þeirrar afstöðu að vera „hands off“ í stjórnun þeirra félaga sem þeir kaupa stóra hluti í, þá skap­ist sú hætta að einka­fjár­festar með til­tölu­lega lít­inn eign­ar­hlut geti náð yfir­ráðum í félögum treystandi á það að líf­eyr­is­sjóð­irnir bregð­ist ekki við því. Og í kjöl­farið breytt um kúrs í starf­semi þeirra, t.d. í átt að mun áhættu­sam­ari við­skiptum.

Þetta hefur ekki gerst hingað til eftir hrun. En er eitt­hvað sem for­svars­menn stærstu líf­eyr­is­sjóð­anna hafa reiknað með að gæti gerst hvenær sem er, sér­stak­lega í fjár­mála­fyr­ir­tækjum með mikið eigið fé og víð­tæka fjár­fest­inga­starf­semi. Eins og t.d. trygg­inga­fé­lögum.

Þess vegna þurfa líf­eyr­is­sjóð­irnir að sýna með ein­hverjum hætti að þeir muni ekki sætta sig við að litlir eig­endur taki eigið fé félaga sem sjóð­irnir eiga stóran hlut í og fari með það í fjár­fest­inga­spila­vítið. Sér­stak­lega ef þeir eru að veðja á aðrar fjár­fest­ingar sem þeir eiga sjálfir í.

Keyptu í Kviku nokkrum vikum áður en VÍS gerði það

Tveir af stærstu hlut­höfum VÍS, Svan­hildur Nanna og Guð­mundur Örn ann­ars vegar og félag Sigurðar Bolla­sonar hins vegar, keyptu 15 pró­sent hlut í fjár­fest­inga­bank­anum Kviku í lok árs 2016. Félög þeirra, K2B fjár­fest­ingar (sem á átta pró­sent í Kviku) og Grandier ehf. (sem á sjö pró­sent), eru nú á meðal stærstu eig­enda bank­ans.

Þann 5. jan­úar 2017, rúmum mán­uði eftir að þau kaup gengu í gegn, var til­kynnt um að VÍS hefði keypt 21,8 pró­sent hlut í Kviku og sé nú stærsti eig­andi bank­ans. Alls nemur heild­ar­eign­ar­hlutur félags­ins nú tæp­lega 25 pró­sentum.

Þetta vakti mikla úlfúð á mark­aði af ýmsum ástæðum. Mögu­legir hags­muna­á­rekstrar blasa enda við. VÍS var nú komið í áhættu­sækna fjár­fest­ingu með kaupum í banka sem nokkrir af stærstu hlut­höfum trygg­inga­fé­lags­ins voru nýbúnir að kaupa sér hlut í. Til við­bótar þá situr Guð­mundur Örn í stjórn Kviku. VÍS var að fjár­festa með hópi einka­fjár­festa sem voru orðnir fyr­ir­ferða­miklir innan félags­ins.

Herdís Dröfn Fjelsted sagði af sér stjórnarmennsku í VÍS vegna þess að hún var ekki sammála þeim áherslum sem nýr stjórnarformaður vildi innleiða.
Herdís Dröfn Fjelsted sagði af sér stjórn­ar­mennsku í VÍS vegna þess að hún var ekki sam­mála þeim áherslum sem nýr stjórn­ar­for­maður vildi inn­leiða.

Herdís Dröfn Fjelsted hefur útskýrt í nokkrum skrefum af hverju hún sagði sig úr stjórn VÍS eftir að hafa beðið í lægri hlut í kjöri um nýjan stjórn­ar­for­mann. Það gerði hún fyrst í við­tali í apríl þar sem Herdís Dröfn sagði að hún og Svan­hildur Nanna, nýr stjórn­ar­for­maður, hefðu ólíka sýn á stjórn­ar­hætti skráðra og eft­ir­lits­skyldra félaga. Vegna gagn­rýni Herdísar Drafnar sendi ný stjórn VÍS frá sér yfir­lýs­ingu á föstu­dag, 12. maí. Í henni sagði að gagn­rýni fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns byggði á ágisk­unum. Rík áhersla sé lögð á að öllum lög­um, sam­þykkt­um, starfs­reglum og leið­bein­ingum um góða stjórn­ar­hætti sé fylgt til hins ítrasta við rekst­ur­inn.

Það vakti líka athygli að stjórnin sá sig knúna til að taka það fram, í sér­stakri yfir­lýs­ingu, að í ljósi nýlegra breyt­inga á yfir­stjórn VÍS og kaupa á hlut í fjár­fest­inga­bank­anum Kviku fyrr á árinu vilji hún líka árétta að fjár­fest­ing félags­ins í Kviku sé skil­greind sem eign í fjár­fest­ing­ar­bók og svo verði áfram. „Nú­ver­andi stjórn áformar heldur ekki að skipta sér af ein­stökum fjár­fest­ingum í fjár­fest­ing­ar­bók félags­ins. Slíkt hefur aldrei komið til tals.“ Yfir­lýs­ingin var, sam­an­dregið, hörð gagn­rýni á fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann félags­ins.

Þetta er allt mjög óvenju­legt, og raunar ein­stakt, fyrir íslenskan hluta­bréfa­markað eftir hrun.

Vildu að stjórn tæki ákvarðanir um fjárfestingar

Á laug­ar­dag opn­aði Herdís Dröfn sig svo að öllu leyti um hvað hefði búið að baki ákvörðun hennar. Það gerði hún í við­tali við Morg­un­blaðið. Þar sagði Herdís Dröfn að ein meg­in­á­stæða þess að hún hefði sagt sig úr stjórn VÍS hefði verið það sjón­ar­mið Svan­hildar Nönnu, núver­andi stjórn­ar­for­manns félags­ins, að stjórn ætti í rík­ari mæli að koma að fjár­fest­ing­ar­á­kvörð­unum á vett­vangi þess. Orðrétt er haft eftir henni í Morg­un­blað­inu að „á fundi sem ég átti með núver­andi stjórn­ar­for­manni VÍS í aðdrag­anda aðal­fundar félags­ins sem hald­inn var 15. mars síð­ast­lið­inn viðr­aði hún hug­myndir um aukna aðkomu stjórnar félags­ins að fjár­fest­ing­ar­starf­semi þess. Þær hug­myndir fólu sömu­leiðis í sér að for­stjóri félags­ins myndi ein­vörð­ungu koma að vátrygg­ing­ar­starf­semi þess.“ Svan­hildur Nanna neit­aði þessum full­yrð­ingum og sagði þær úr lausu lofti gripnar.

Kjarninn hefur upp­lýs­ingar um að það hafi verið umtals­verður ágrein­ingur um það innan stjórnar VÍS um hvort Svan­hildur Nanna væri hæf til að ann­ars vegar taka ákvarð­anir um og hins vegar að taka þátt í umræðum um eign­ar­hlut félags­ins í Kviku, í ljósi þess að hún á stóran hlut í báðum félögum. Svan­hildur Nanna lét tvær lög­fræði­stofur vinna álit um hæfi sitt og aðrir stjórn­ar­menn í VÍS létu þriðju stof­una gera slíkt hið sama. Svan­hildur Nanna sagði við Morg­un­blaðið að eign­ar­hald hennar á Kviku hefði ekki áhrif á hæfi hennar til að sitja í stjórn VÍS, sam­kvæmt álit­unum. Hún við­ur­kenndi hins vegar að ágrein­ingur hefði verið uppi um hæfi hennar til að fjalla um eign­ar­hlut VÍS í Kviku banka.

TM kaupir í gamla FL Group með nokkrum úr hluthafahópi sínum

Þótt kast­ljósið hafi verið á hrær­ing­unum innan VÍS að und­an­förnu er það ekki eina skráða trygg­inga­fé­lagið sem fjár­festar hafa áhyggjur af. Nýleg kaup TM í Stoðum, sem einu sinni hét FL Group, hafa líka valdið titr­ingi. Kaupin fóru ansi leynt en Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að TM hefði, ásamt hópi einka­fjár­festa, eign­ast rúm­lega helm­ings­hlut í Stoðum. Eina eignin sem er eftir í Stoðum í dag er 8,87 pró­sent hlutur í hol­lenska drykkja­vöru­fram­leið­and­anum Refresco. Sá hlutur er met­inn á um 15 millj­arða króna, en sá verð­miði gæti hækkað verði nýtt yfir­tökutil­boð gert í Refresco, líkt og búist er við.

Ekki er vitað hvað var greitt fyrir hlut­inn í Stoðum né hefur tíma­lína kaupana verið opin­beruð að fullu. Eina sem vitað er er að hóp­ur­inn hefur verið að kaupa þessa hluti á síð­ustu mán­uðum. Með­fjár­festar TM í við­skipt­unum eru að mestu leyti menn sem gegndu lyk­il­hlut­verkum í FL Group fyrir hrun. Þeir eru því að ná yfir­ráðum yfir gamla félag­inu sínu aftur.

Meðal ann­ars er um er að ræða félög í eigu Örvars Kærne­sted, Einars Arnar Ólafs­sonar, og fjöl­skyldu Bjargar Fenger, eig­in­konu Jóns Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra FL Group. Öll umrædd félög eru líka á meðal stærstu hlut­hafa í TM. Því er trygg­inga­fé­lagið að fjár­festa í óskráðri eign með nokkrum af helstu hlut­höfum sínum.

Bæði Örvar og Einar Örn sitja í stjórn TM.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár