Laugavegur lokaður bílum fyrir jólin

Neðri hlutar Laugavegs og Skólavörðustígs verða göngugötur fyrir jólin.
Neðri hlutar Lauga­vegs og Skóla­vörðu­stígs verða göngu­götur fyrir jólin. Mynd: Birgir Þór

Lokað verður fyrir bíla­um­ferð á neðri hluta Lauga­vegs og Skóla­vörðu­stígs um helgar í des­em­ber og alfarið frá 18. des­em­ber til aðfanga­dags. Umhverfis- og skipu­lags­ráð Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti þetta í gær en málið bíður stað­fest­ingar borg­ar­ráðs. Borg­ar­ráð tekur málið til umfjöll­unar í næstu viku en í milli­tíð­inni verður hald­inn fundur með hags­muna­að­ilum.

Fyr­ir­komu­lagið verður með sama hætti og göngu­götur í mið­borg­inni á sumrin, og opið verður fyrir vöru­af­greiðslu á morgn­anna.

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í umhverfis- og skipu­lags­ráði, sat hjá við afgreiðslu máls­ins og gagn­rýndi það. „Þær við­vör­un­arraddir hafa heyrst frá kaup­mönnum að lokun Lauga­vegar á aðvent­unni muni draga úr verslun. Samtök kaup­manna á svæð­inu hafa óskað eftir fundi um málið en slíkur fundur hefur ekki verið hald­inn og er það miður,“ sagði hann í bókun sinni um málið. Stjórn­vald ætti ekki að taka ákvarð­anir sem hópur fólks telji vera íþyngj­andi, nema leitað sé eftir form­legu áliti og rök­semdum.

Full­trúar meiri­hlut­ans í borg­inni sögðu þvert á móti að með því opnun göngugatna sé í þágu allrar starf­semi í mið­borg­inni. „Enda hefur nýleg könnun borg­ar­innar leitt í ljós að yfir­gnæf­andi meiri­hluti rekstr­ar­að­ila sé jákvæður fyrir göngu­götum á aðvent­unni.“

Júlíus Vífill sagði að með þessu hafi meiri­hluti ráðs­ins við­ur­kenna skort á sam­ráði, en meiri­hlut­inn sagði að komið hafi verið til móts við áhyggjur um und­ir­bún­ings­tíma og fjölda opn­un­ar­daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár