Grænþvegnir kúrekar um allar koppagrundir

Mörg verk­efni sem kolefn­is­ein­ingar hafa verið seldar út á og áttu að nýt­ast til að vinna gegn hlýnun jarðar hafa ein­kennst af fúski og umdeildum aðferðum. Millj­arðar á millj­arða ofan fara um slíka mark­aði en trú­verð­ug­leiki þeirra hefur laskast og úrbóta er þörf.

Margvíslegur vandi steðjar að Amazon-frumskóginum og barist hefur verið fyrir verndun hans lengi. Þótt hann eigi að njóta verndar stjórnvalda þýðir það vissulega ekki endilega að sú vernd sé virt. Mörg fyrirtæki selja kolefniseiningar út á verndarverkefni í Amazon. Sum þeirra eru á landi sem er í ríkiseign.
Marg­vís­legur vandi steðjar að Amazon-frum­skóg­inum og barist hefur verið fyrir verndun hans lengi. Þótt hann eigi að njóta verndar stjórn­valda þýðir það vissu­lega ekki endi­lega að sú vernd sé virt. Mörg fyr­ir­tæki selja kolefn­is­ein­ingar út á vernd­ar­verk­efni í Amazon. Sum þeirra eru á landi sem er í rík­is­eign. Mynd: AFP

Stærstur hluti Amazon-regn­skóg­ar­ins nýtur verndar innan þjóð­lenda í Brasilíu. Áður var skóg­ur­inn nýttur til stór­felldrar timb­ur­fram­leiðslu og var þá gengið mjög nærri honum, en nú, þegar loks hefur tek­ist að færa hann undir hlífi­skjöld hins opin­bera, sem þó er langt í frá full­komin vernd, er ann­ars konar áhlaup hafið. Það leiða fyr­ir­tæki, oft­ast erlend, sem í nafni lofts­lags­mála sjá við­skipta­tæki­færi í vernd­un­inni og selja út á hana kolefn­is­ein­ingar. Sá galli er þó á þess­ari gjöf Njarðar að fyr­ir­tækin eiga ekki landið. Það er að lang­mestu leyti í eigu almenn­ings. Og almenn­ingur er hlunn­far­inn þegar kolefn­is­ein­ing­arnar eru gerðar upp. Hann fær raunar að því er virð­ist ekki krónu.

Verndun Amazon milljóna dollara bissness

Þessu var ljóstrað upp í banda­ríska dag­blað­inu Washington Post nýverið. Í umfjöll­un­inni kom fram að verndun Amazon væri orðin að millj­óna doll­ara biss­ness. Þessir doll­arar verða til í við­skiptum með kolefn­is­ein­ingar sem fyr­ir­tæki um víða ver­öld …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár