Flokkur

Umhverfismál

Skýring

Frá Hörpu til Reykja­dals

Fjölmargt fólk úr öllum álfum heimsins kom saman um nýafstaðna helgi og þingaði í einum mesta rok- og rigninga­rassi Evrópu. Hringborð Norðurslóða (e. Arctic Circle) er sannarlega stærsta kaup­stefnan sem er haldin í Hörpu ár hvert. Þar mætast pólitískir leiðtogar, stjórn­endur fyrir­tækja, vísinda­menn, frumkvöðlar, og sérfræðingar í umhverfis­málum og freista þess að eiga í samræðum um framtíð norðurslóða. Á þeim...
Aðsent

Sigursteinn R. Másson

Dýravernd er umhverfis­vernd

Það er nokkuð ljóst að eitt stærsta hagsmunamál mannkyns til skemmri og lengri tíma er umhverfis­vernd. Þótt Donald Trump haldi öðru fram er þetta nokkuð óumdeilt. Áherslur í stjórn­málum endur­spegla þetta samt ekki. Umhverfis- og auðlinda­ráðuneytið er enn veiga­minnsta ráðuneytið og málefnum umhverfis gefinn lítill tími í umræðum í aðdrag­anda kosninga. Síðustu 13 ár hef ég starfað með alþjóð­legum dýra­velferðar­samtökum...
Fréttir

Krafist óháðrar og opinberrar rann­sóknar

Lands­samband veiði­félaga hefur farið fram á það við bæði sjávar­útvegs­ráðherra og umhverfis­ráðherra að fram fari óháð opinber rannsókn á því hvers vegna og hvernig regnboga­silungur hafi sloppið í miklu magni á Vestfjörðum sem leitt hefur til þess að regnboga­silungur hefur veiðist um allt norðan- og vestan­vert land síðustu vikur og mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lands­sambandinu. „Staðfest hefur...
Aðsent

Jónas Guðmundsson

Er þetta það sem við viljum á hálendið?

Páll heitinn Skúlason kvaddi okkur með þeirri ábendingu að við Íslendingar hefðum „ekki enn yfirvegað að neinu ráði þýðingu nátt­úrunnar fyrir okkur og fyrir þróun mannlífs í landinu í fram­tíðinni“ . Hann sagði þetta í erindi sem síðan var birt í hans síðustu bók. Hann bætti við því sem sumum finnst augljóst: „Við höfum verið upptekin af því að tileinka...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hinn eilífi ágreinings­rammi

Skýrsla Orku­stofnunar um gagnrýni á vinnu verkefnis­stjórnar þriðja áfanga ramma­áætlunar er um margt athyglis­verð. Orku­stofnun segir aðferðir verkefnis­stjórnarinnar óvandaðar og á köflum séu þær ekki í samræmi við lög. Greiningar­vinna sé ófull­nægj­andi og utan skyn­sem­is­marka, mat sé byggt á of þröngu sjón­ar­horni, skortur sé á sam­ræmi í ein­kunna­gjöf og flokkun handa­hófs­kennd og órök­studd. Um er að ræða umsögn Orku­stofnunar vegna...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Betra að halda sig við málefna­lega umræðu

„Það er ekki þörf á tveimur Kára­hnjúka­virkjunum. Og það hefur hvergi komið fram að mér vitandi, og svo sannarlega ekki í þessari skýrslu og ekki í neinu sem við höfum lagt til. Skýrslan gerir eingöngu ráð fyrir að það séu um 250 megavött úr hefð­bundnum virkjunum eins og við þekkjum þær, sem er ígildi einnar Hraun­eyj­ar­foss­virkj­unnar eða innan við helming...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ramma­áætlunin er gríðar­lega mikilvæg til framtíðar

Mikil vinna hefur nú farið fram á vegum stjórn­valda, þar sem lagning sæstrengs milli Íslands og Bretlands er skoðuð, og voru gögn um málið kynnt ítarlega í gær. Við fyrstu sýn virðast gögnin sem tekin hafa verið saman, og greind, vera mikilvægt innlegg í þá vinnu sem verið hefur í gangi undan­farin misseri. Skýrslurnar eru ítarlegar og hefur greini­lega verið...
Fréttir

Tveir þriðju íbúa við Mývatn leggjast gegn hótel­byggingu

Liðlega tvö hundruð íbúar í Mývatns­sveit lýsa andstöðu við að byggt verði hótel á bakka Mývatns við Hótel Reykja­hlíð. Framkvæmdin er sögð ganga gegn anda laga um verndun Mývatns og Laxár. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu. Byggingin er samkvæmt teikningu öll langt innan 200 metra verndar­línu laganna. Íbúarnir telja að hún muni spilla útsýni til vatnsins og ímynd sveitarinnar. Samþykkt...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Betur má ef duga skal

Ný loftslags­stefna Reykja­víkurborgar hefur verið samþykkt í borgar­ráði Reykja­víkurborgar. Stefnt er að því að borgin verði kolefna­hlutlaus fyrir árið 2040 og að grænar áherslur ráði för í allri ákvörðunar­töku borgarinnar. Loftlags­áætlunin verður svo endur­skoðuð á fimm ára fresti í takti við Parísarsátt­málann sem Ísland hefur undir­ritað. Þetta er gleðiefni, en Reykja­víkurborg getur samt gengið enn lengra þegar kemur að sértækum...

Mest lesið undanfarið ár