Aðili

Samherji

Fréttir

Katrín seg­ist ekki vita hvaða íslensku stjórn­mála­menn þrýstu á stjórn­völd í Færeyjum

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki vita hvaða þing­menn það voru sem settu þrýst­ing á stjórn­völd í Færeyjum út af breyt­ingum á lögum þar í landi á eign­ar­haldi erlendra aðila í sjáv­ar­út­vegi. Katrín tekur ekki afstöðu til þess hvort það voru mis­tök að gera Kristján Þór Júl­í­us­son að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. Hún tekur hins vegar afstöðu gegn aðferðum Samherja gegn Seðla­banka Íslands og RÚV.
FréttirSamherjaskjölin

Hannes Hólm­steinn í rit­deilu við finnsk-íslenskan fræði­mann: „Ísland er ekki spillt land“

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor gagn­rýnir þrjá fræði­menn við íslenska háskóla vegna orða þeirra um spill­ingu á Íslandi. Þetta eru þeir Lars Lundsten, Þor­valdur Gylfason og Grétar Þór Eyþórs­son. Hannes svarar þar með skrifum Lars Lundsten sem sagði fyrir skömmu að Ísland væri spillt­ast Norð­ur­land­anna.
FréttirSamherjaskjölin

Hvernig Jónshús í Kaup­manna­höfn teng­ist rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu

Umfjöllun fær­eyska rík­is­sjón­varps­ins um Sam­herj­a­málið í Namibíu hefur hjálpað til við að varpa ljósi á af hverju útgerð­ar­fé­lagið stofn­aði danskt félag, stað­sett í Jónshúsi, árið 2016. Í stað danska félags­ins var sam­nefnt fær­eyskt félag notað til að greiða íslenskum starfs­mönnum Samherja í Namibíu laun og er þetta nú til rann­sóknar í Færeyjum.

Mest lesið undanfarið ár