Fréttamál

Samherjaskjölin

FréttirNý Samherjaskjöl

Skuggi Baldvins hjá Samherja í Namibíu

Hlutverk Baldvins Þorsteins­sonar, sonar Þorsteins Más Baldvins­sonar, hjá útgerðar­félaginu Samherja, hefur ekki legið alveg ljóst fyrir á liðnum árum. Hann hefur borið hina ýmsu starfs­titla og jafnvel stýrt félagi sem Samherji hefur keypt en á sama tíma alltaf líka verið með puttana í útgerðinni á bak við tjöldin. Þetta sýna rann­sóknar­gögnin í Samherja­málinu í Namibíu þar sem nafn Baldvins kemur það mikið fyrir að ætla má að hann sé eins konar aðstoðar­forstjóri föður síns hjá Samherja.

16 mín. lestur

FréttirNý Samherjaskjöl

KPMG breytti skýrslu um völd Þorsteins Más vegna „óánægju“ hans

Endur­skoðenda­fyrirtækið KPMG breytti skýrslu sinni um stjórnenda­strúktúr Samherja­samstæðunnar eftir að Þorsteinn Már Baldvinsson lýsti yfir óánægju með drög að skýrslunni. Embætti héraðs­saksóknara hefur yfirheyrt starfs­mann KPMG, sem sá um skýrslu­gerðina, sem vitni og er ljóst að ákæru­valdið hefur mikinn áhuga á valdsviði Þorsteins Más innan Samherja.
AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Jón Óttar sagðist ekki skyldugur til að „fela þetta“ fyrir Samherja í Namibíu

Eitt af því sem Jón Óttar Ólafsson, ráðgjafi Samherja, gerði ítrekað fyrir útgerðar­félagið var að reyna að stuðla að því að mútu­greiðslurnar til ráða­mannanna í Namibíu færu leynt. Jón Óttar sagðist ekki bera skylda til að fela þessar greiðslur en hélt samt áfram að gera það í rúm þrjú ár eftir að hann hóf störf hjá Samherja í Namibíu.

9 mín. lestur

AfhjúpunNý Samherjaskjöl

Banka­stjóri og stjórnar­maður Íslands­banka liðkuðu til fyrir viðskiptum Samherja í Namibíu

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, fundaði með stjórnar­manni og banka­stjóra Íslands­banka, Birnu Einars­dóttur, um aðstoð við að stunda fisk­veiðar í Namibíu. Fundurinn leiddi til þess að Samherji fékk meðmæla­bréf sem sent var til Bernhard Esau sjávar­útvegs­ráðherra. Birna Einars­dóttir segir að hún hafi einungis verið að aðstoða viðskiptavin bankans og að hún hafi aldrei vitað til hvers fundurinn leiddi.

11 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár