Fréttamál

kosningar2016

Fréttir

Bjarni boð­aður á Bessa­staði

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur boðað Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á sinn fund klukkan 11 í dag. Að því loknu mun for­set­inn ræða við fjöl­miðla. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu. Fastlega má því búast við því að for­seti Íslands ætli að veita Bjarna stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð. Guðni hitti alla for­menn flokka sem náðu kjöri á Alþingi á fundum á...
Fréttir

18% strik­uðu Sigmund Davíð út

Rétt um 18% kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi strik­uðu yfir nafn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, odd­vita flokks­ins, eða færðu hann neðar á lista. Þetta voru 817 atkvæði, en hefðu þau orðið 909 tals­ins, eða 20%, hefði Sig­mundur Davíð færst niður um sæti. Þetta kemur fram í skýrslu yfir­kjör­stjórnar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi til lands­kjör­stjórnar. 1.253 kjör­seðlum var breytt í heild­ina, svo að langstærstur hluti...
Fréttir

Oddný hættir sem for­maður Sam­fylk­ingar – flokk­ur­inn ekki í rík­is­stjórn

Oddný Harð­ar­dóttir er hætt sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Logi Ein­ars­son vara­for­maður tekur við tíma­bundið. Hún til­kynnti þetta á Bessa­stöðum rétt í þessu, að loknum fundi sínum með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands. Hún heldur áfram sem þing­maður. „Ég tók við sem for­maður á miklum erf­ið­leika­tímum í Sam­fylk­ing­unni, tæpum fimm mán­uðum fyrir kosn­ingar. Á þeim stutta tíma tókst ekki að snúa við...
Fréttir

Óttarr lagði til að Benedikt fengi stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, lagði til við for­seta Íslands að Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, fái stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð. Þetta sagði Óttarr við frétta­menn á Bessa­stöðum að loknum fundi hans og Evu Ein­ars­dóttur, stjórn­ar­for­manns flokks­ins, með Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta. Þetta kemur fram á Vísi. Óttarr sagði að hug­myndin um rík­is­stjórn Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins væri ágæt, rétt eins og til­laga...
Fréttir

Píratar vilja styðja minni­hluta­stjórn VG, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar

Píratar eru til­búnir til þess að styðja minni­hluta­stjórn þriggja flokka, Við­reisnar, Vinstri grænna og Bjartrar fram­tíðar. Þetta kom fram í máli Birgittu Jóns­dóttur, Smára McCarthy og Einars Brynj­ólfs­sonar eftir fund þeirra með for­seta Íslands, Guðna Th. Jóhann­essyni, nú eftir hádegi. Úrslit kosn­ing­anna bera það með sér að verið er að kalla eftir meiri breidd í stjórn­skipan lands­ins en áður hefur...
Fréttir

Bjarni reynir að mynda rík­is­stjórn með Bjartri fram­tíð og Viðreisn

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur sett sig í sam­band við Óttarr Proppé, for­mann Bjartrar fram­tíðar, um myndun nýrrar rík­is­stjórnar flokk­anna tveggja og Við­reisnar. Þeir ræddu saman í síma í gær. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, vill ekki gefa upp hvort að hann og Bjarni hafi rætt saman. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Rík­is­stjórn þess­ara þriggja flokka myndi vera...
Fréttir

Segir átök á flokks­þingi ástæðu taps Fram­sóknar

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir átök á flokks­þingi flokks­ins í byrjun októ­ber, þar sem hann tap­aði for­manns­kosn­ingu, vera ástæðu þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tap­aði jafn miklu fylgi og raun ber vitni í kosn­ing­unum um helg­ina. Hann seg­ist hafa hitt fjölda fólks sem sagð­ist ekki geta kosið Fram­sókn­ar­flokk­inn vegna átak­ana á flokks­þing­inu. Sjálf­stæð­is­menn hafi hins vegar staðið saman í kosn­inga­bar­átt­unni...
Fréttir

Viðreisn úti­lokar ekki sam­starf með stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að hann úti­loki ekki sam­starf með þeim fjórum flokkum sem sátu í stjórn­ar­and­stöðu á síð­asta kjör­tíma­bili, þótt hann hafi bent á að slíkt sam­starf gæti orðið erfitt og flókið. Þetta kom fram í kosn­inga­þætti á RÚV í kvöld. Benedikt hefur áður marg­sinnis úti­lokað að Viðreisn myndi rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki saman. Að mati Bene­dikts...

Mest lesið undanfarið ár